Bloggfærslur mánaðarins, nóvember 2024

Bæn dagsins...

Með vörum sínum gerir hatursmaðurinn sér upp vinalæti en í hjarta sínu hyggur hann á svik. Þó að hann mæli fagurt, þá trúðu honum ekki því að sjö andstyggðir búa í hjarta hans. Þótt hatrið hylji sig hræsni, þá verður illska þess opinber í söfnuðinum. Sá sem grefur gröf fellur í hana og steinninn fellur aftur í fang þeim er veltir honum. Lygin tunga hatar þá sem hún hefur unnið mein og smjaðuryrði leiða til glötunar. AMEN.

Orðs:26:24-28


Bæn dagsins...

Þegar eldsneytið þrýtur slokknar eldurinn og þegar enginn er rógberinn stöðvast deilurnar. Eins og kol þarf til glóða og við til elds, eins þarf þrætugjarnan mann til að kveikja deilur. Orð rógberans eru eins og sælgæti, þau læsa sig inn í innstu fylgsni hjartans. Sem sorasilfur utan af leirbroti, svo eru eldheitir kossar og illt hjarta. AMEN.

Orðs:26:20-23


Bæn dagsins...

Latur maður þykist vitrari en sjö sem veita viturleg  ráð. Sá sem blandar sér í annarra deilu er eins og sá sem grípur í eyrun á hundi sem fram hjá hleypur. Eins og óður maður sem þeytir eldibröndum og örvum er sá sem svíkur náunga sinn og segir síðan: ,,Ég var bara að gera að gamni mínu." AMEN. 

Orðs:26:16-19


Bæn dagsins...

Eins og skytta sem skýtur á alla vegfarendur, svo er sá sem ræður heimskingja eða vergangsmann til verka. Eins og hundur sem snýr aftur til spýju sinnar, svo er heimskingi sem endurtekur fíflsku sína. Sjáir þú mann sem telur sig vitran, þá á heimskinginn meiri von en hann. Letinginn segir: ,,Óargadýr er úti fyrir, ljón á torgunum." Hurðin snýst á hjörunum og letinginn í hvílu sinni. Latur maður dýfir hendinni ofan í skálina en honum er um megn að bera hana upp að munninum. AMEN.

Orðs:26:10-15


Bæn dagsins...

Eins og snjór um sumar eða regn um uppskeru, svo illa á sæmd við heimskan mann. Eins og spörfugl hlýtur að flögra og svala að fljúga, eins er um óverðskuldaða formælingu, hún verður ekki að áhrínsorðum. Svipan hæfir hestinum og taumurinn asnanum en vöndurinn baki heimskingjans. Svaraðu ekki heimskingjanum eftir fíflsku hans svo að þú verðir ekki honum jafn. Svaraðu heimskingjanum eftir fíflsku hans, annars heldur hann að hann sé vitur. Sá fórnar fótum sínum og fær að súpa á ranglæti sem sendir orð með heimskingja. Eins og fótleggir hins lamaða hanga máttlausir, svo fer spakmælum í munni heimskingjanna. Þeim sem sýnir heimskum manni sæmd fer eins og þeim er hnýtir stein í slöngvu. Eins og þyrnir stingst í hönd á drukknu manni, svo er spakmæli í munni heimskingjanna.AMEN.

26:1-9


Bæn dagsins...

Finnir þú hunang fáðu þér nægju þína svo að þú verðir ekki afsaddur  af því og spýir því upp. Stígðu fæti þínum hóflega oft í hús náunga þíns svo að hann verði ekki leiður á þér og honum í nöp við þig. Sleggja, sverð, hvöss ör, svo er sá sem ber falsvitni gegn náunga sínum. Laus tönn og hrasandi fótur, slíkt er traust á svikara á degi neyðarinnar. Að fara úr fötum í kalsaveðri, að hella ediki í sár, eins er að syngja sorgmæddum gleðisöngva. Ef óvin þinn hungrar gefðu honum þá að eta og þyrsti hann gefðu honum þá að drekka því að þú safnar glóðum elds að höfði honum og Drottinn mun endurgjalda þér það. Norðanvindurinn ber með sér regn og launskraf reiðileg andlit. Betri er dvöl í horni á húsþaki en sambúð við þrasgjarna konu. Eins og kalt vatn í skrælnaða kverk, svo er heillafregn úr fjarlægu landi. Eins og grugguð lind og skemmdur brunnur, svo er réttlátur maður er lætur undan vondum manni. Of mikið hunangsát er ekki gott, vertu því spar á hólið. Eins og opin borg án borgarmúra, svo er sá maður sem ekki hefur stjórn á skapi sínu. AMEN.

Orðs:25:16-28


Bæn dagsins...

Eins og gullhringur og skartgripur af skíru gulli, svo er áminning viturs manns sem hlýtt er á. Eins og snjósvali um uppskerutímann, svo er áreiðanlegur sendiboði þeim sem sendir hann því að hann hressir sál húsbónda síns. Ský  og vindur en engin rigning, svo er sá sem hrósar sér af örlæti en gefur þó ekkert.Með þolinmæði má telja höfðingja hughvarf,mjúk tunga mylur bein.Amen.

Orðs:25:12-15


Bæn dagsins...

Hvað sem augu þín kunna að hafa séð, vertu þá ekki of hvatur í málavafstur því að hverjar  verða lyktirnar ef náungi þinn gerir þér minnkun? Verðu rétt þinn gegn náunga þínum en ljóstraðu ekki upp leyndarmálum annars manns til þess að sá sem heyrir það átelji þig ekki og þú fáir á þig varanlegt óorð. Gullepli í silfurskálum, svo eru vel valin orð. Amen.

Orðs:25:8-11


Bæn dagsins...

Sér hinir ranglátu teknir burt frá augliti konungsins, þá verður hásæti hans stöðugt í réttlæti. Stærðu þig ekki frammi fyrir konunginum og ætlaðu þér ekki stað stórmenna því að betra er að menn segi við þig: ,,Færðu þig hingað upp," en að menn niðurlægi þig frammi fyrir tignarmanni. Amen.

Orðs:25:5-7


Bæn dagsins...

Þetta eru líka orðskviðir Salómons sem menn Hiskía Júdaskonungs söfnuði: Guð er sæmd að dylja mál, konungum sæmd að útkljá mál. Eins og hæð himins og dýpt jarðar, svo eru konungshjörtun órannsakanleg. Sé sorinn tekinn úr silfrinu, þá fær smiðurinn ker úr því. Amen.

Orðs:25:1-4


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Gunnlaugur Halldór Halldórsson
Gunnlaugur Halldór Halldórsson

Ég elska Jesús. gunnlaugurh62@gmail.com

267 dagar til jóla

Apríl 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30      

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (1.4.): 17
  • Sl. sólarhring: 31
  • Sl. viku: 106
  • Frá upphafi: 215490

Annað

  • Innlit í dag: 9
  • Innlit sl. viku: 74
  • Gestir í dag: 9
  • IP-tölur í dag: 9

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.