Bloggfærslur mánaðarins, nóvember 2024
11.11.2024 | 05:35
Bæn dagsins...
Latur maður þykist vitrari en sjö sem veita viturleg ráð. Sá sem blandar sér í annarra deilu er eins og sá sem grípur í eyrun á hundi sem fram hjá hleypur. Eins og óður maður sem þeytir eldibröndum og örvum er sá sem svíkur náunga sinn og segir síðan: ,,Ég var bara að gera að gamni mínu." AMEN.
Orðs:26:16-19
Trúmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.11.2024 | 18:25
Bæn dagsins...
Eins og skytta sem skýtur á alla vegfarendur, svo er sá sem ræður heimskingja eða vergangsmann til verka. Eins og hundur sem snýr aftur til spýju sinnar, svo er heimskingi sem endurtekur fíflsku sína. Sjáir þú mann sem telur sig vitran, þá á heimskinginn meiri von en hann. Letinginn segir: ,,Óargadýr er úti fyrir, ljón á torgunum." Hurðin snýst á hjörunum og letinginn í hvílu sinni. Latur maður dýfir hendinni ofan í skálina en honum er um megn að bera hana upp að munninum. AMEN.
Orðs:26:10-15
Trúmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.11.2024 | 11:34
Bæn dagsins...
Eins og snjór um sumar eða regn um uppskeru, svo illa á sæmd við heimskan mann. Eins og spörfugl hlýtur að flögra og svala að fljúga, eins er um óverðskuldaða formælingu, hún verður ekki að áhrínsorðum. Svipan hæfir hestinum og taumurinn asnanum en vöndurinn baki heimskingjans. Svaraðu ekki heimskingjanum eftir fíflsku hans svo að þú verðir ekki honum jafn. Svaraðu heimskingjanum eftir fíflsku hans, annars heldur hann að hann sé vitur. Sá fórnar fótum sínum og fær að súpa á ranglæti sem sendir orð með heimskingja. Eins og fótleggir hins lamaða hanga máttlausir, svo fer spakmælum í munni heimskingjanna. Þeim sem sýnir heimskum manni sæmd fer eins og þeim er hnýtir stein í slöngvu. Eins og þyrnir stingst í hönd á drukknu manni, svo er spakmæli í munni heimskingjanna.AMEN.
26:1-9
Trúmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.11.2024 | 07:36
Bæn dagsins...
Finnir þú hunang fáðu þér nægju þína svo að þú verðir ekki afsaddur af því og spýir því upp. Stígðu fæti þínum hóflega oft í hús náunga þíns svo að hann verði ekki leiður á þér og honum í nöp við þig. Sleggja, sverð, hvöss ör, svo er sá sem ber falsvitni gegn náunga sínum. Laus tönn og hrasandi fótur, slíkt er traust á svikara á degi neyðarinnar. Að fara úr fötum í kalsaveðri, að hella ediki í sár, eins er að syngja sorgmæddum gleðisöngva. Ef óvin þinn hungrar gefðu honum þá að eta og þyrsti hann gefðu honum þá að drekka því að þú safnar glóðum elds að höfði honum og Drottinn mun endurgjalda þér það. Norðanvindurinn ber með sér regn og launskraf reiðileg andlit. Betri er dvöl í horni á húsþaki en sambúð við þrasgjarna konu. Eins og kalt vatn í skrælnaða kverk, svo er heillafregn úr fjarlægu landi. Eins og grugguð lind og skemmdur brunnur, svo er réttlátur maður er lætur undan vondum manni. Of mikið hunangsát er ekki gott, vertu því spar á hólið. Eins og opin borg án borgarmúra, svo er sá maður sem ekki hefur stjórn á skapi sínu. AMEN.
Orðs:25:16-28
Trúmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.11.2024 | 05:54
Bæn dagsins...
Eins og gullhringur og skartgripur af skíru gulli, svo er áminning viturs manns sem hlýtt er á. Eins og snjósvali um uppskerutímann, svo er áreiðanlegur sendiboði þeim sem sendir hann því að hann hressir sál húsbónda síns. Ský og vindur en engin rigning, svo er sá sem hrósar sér af örlæti en gefur þó ekkert.Með þolinmæði má telja höfðingja hughvarf,mjúk tunga mylur bein.Amen.
Orðs:25:12-15
Trúmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.11.2024 | 06:12
Bæn dagsins...
Hvað sem augu þín kunna að hafa séð, vertu þá ekki of hvatur í málavafstur því að hverjar verða lyktirnar ef náungi þinn gerir þér minnkun? Verðu rétt þinn gegn náunga þínum en ljóstraðu ekki upp leyndarmálum annars manns til þess að sá sem heyrir það átelji þig ekki og þú fáir á þig varanlegt óorð. Gullepli í silfurskálum, svo eru vel valin orð. Amen.
Orðs:25:8-11
Trúmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.11.2024 | 05:29
Bæn dagsins...
Sér hinir ranglátu teknir burt frá augliti konungsins, þá verður hásæti hans stöðugt í réttlæti. Stærðu þig ekki frammi fyrir konunginum og ætlaðu þér ekki stað stórmenna því að betra er að menn segi við þig: ,,Færðu þig hingað upp," en að menn niðurlægi þig frammi fyrir tignarmanni. Amen.
Orðs:25:5-7
Trúmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.11.2024 | 05:45
Bæn dagsins...
Þetta eru líka orðskviðir Salómons sem menn Hiskía Júdaskonungs söfnuði: Guð er sæmd að dylja mál, konungum sæmd að útkljá mál. Eins og hæð himins og dýpt jarðar, svo eru konungshjörtun órannsakanleg. Sé sorinn tekinn úr silfrinu, þá fær smiðurinn ker úr því. Amen.
Orðs:25:1-4
Trúmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.11.2024 | 06:04
Bæn dagsins...
Hlutdrægni í dómi er röng.
Þeim sem segir við hinn seka: ,,Þú hefur rétt fyrir þér," honum formæla menn og þjóðir fordæma hann. Þeim sem fella réttan úrskurð mun farnast vel, þeir munu hljóta ríkulega blessun. Að veita rétt svör er eins og að gefa koss. Sinntu útiverkunum og ljúktu þeim á akrinum, síðan getur þú byggt þér hús. Vitnaðu ekki gegn náunga þínum án gildrar ástæðu, eða vilt þú svíkja með orðum þínum? Segðu ekki: ,,Eins og hann gerði mér, eins ætla ég að gera honum, ég ætla að veita manninum makleg málagjöld." Ég gekk fram hjá akri letingja nokkurs, fram hjá víngarði heimsks manns. Hann var allur vaxinn þistlum, hann var alþakinn netlum og steingarðurinn umhverfis hann var hruninn. Ég sá þetta og veitti því athygli, horfði á það og lét mér það að kenningu verða: Sofa ögn enn, blunda ögn enn , leggja saman hendurnar ögn enn til að hvílast, þá kemur fátæktin yfir þig eins og ræningi og skorturinn eins og vopnaður maður. Amen.
Orðs:24:24-34
Trúmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.11.2024 | 11:46
Bæn dagsins...
Rangláti maður, sit ekki um búntað hins réttláta og spilltu ekki heimkynnum hans því að sjö sinnum fellur hinn réttláti og stendur upp aftur en hinir ranglátu hrasa og tortímast. Gleðstu ekki yfir falli óvinar þíns og hjarta þitt fagni ekki þótt hann hrasi svo að Drottinn sjái það ekki og honum mislíki og hann snúi reiði sinni frá honum. Reiðstu ekki vegna illgjörðamanna, láttu ekki rangláta angra þig því að vondur maður á sér enga fratíð, á lampa ranglátra slokknar. Sonur minn, óttastu Drottin og konunginn, eigðu ekki samneyti við uppreisnarseggi því að ógæfa þeirra ríður yfir þegar minnst varir og hver getur séð fyrir ófarir þeirra?.
Orðs:24:15-22
Þessi spakmæli eru líka eftir spekinga:
Orðs:24:23
Trúmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
33 dagar til jóla
Tenglar
Mínir tenglar
- Lindin útvarp
- Bylgjan útvarp
- útvarp saga Útvarp
- Létt Bylgjan Útvarp
heimasíðu
- S Á Á vogur
- AA samtökinn AA á Íslandi
- Hjálpræðisherinn Jesús
- Gospel Ísland
- Glaetan bókakaffi. er í Reykjavík
- manchester united manchester united vefurinn á Íslandi
- Biblían
- Boðunarkirkjan kópavogi
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 10
- Sl. sólarhring: 14
- Sl. viku: 103
- Frá upphafi: 212106
Annað
- Innlit í dag: 6
- Innlit sl. viku: 75
- Gestir í dag: 6
- IP-tölur í dag: 6
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Nýjustu færslur
- 21.11.2024 Bæn dagsins...
- 20.11.2024 Bæn dagsins...
- 19.11.2024 Bæn dagsins...
- 18.11.2024 Bæn dagsins...
- 17.11.2024 Bæn dagsins...
- 16.11.2024 Bæn dagsins...
- 15.11.2024 Bæn dagsins...
- 14.11.2024 Bæn dagsins...
- 13.11.2024 Bæn dagsins...
- 12.11.2024 Bæn dagsins...
Bloggvinir
- Anna Heiða Harðardóttir
- Aida.
- Kvíðin kona
- Rafn Haraldur Sigurðsson
- Jón Magnússon
- Björgvin Þangbrandur "Birkirmár" Gíslasson
- Sverrir Halldórsson
- Kafteinninn
- Rósa Aðalsteinsdóttir
- Auðun Gíslason
- Guðrún Sæmundsdóttir
- Kristín Ketilsdóttir
- Ragnheiður Katla Laufdal
- Unnur Arna Sigurðardóttir
- Helga Kristjánsdóttir
- Íris María
- Ásdís Rán
- Brynja skordal
- Ágúst Böðvarsson
- Bryndís Böðvarsdóttir
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Rakel Lind
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Aðalbjörn Leifsson
- Myndlistarfélagið
- Helga Nanna Guðmundsdóttir
- Vilborg Traustadóttir
- Jóna Á. Gísladóttir
- Pálmi Gunnarsson
- Sædís Ósk Harðardóttir
- Svavar Alfreð Jónsson
- Eygló Hjaltalín
- Halla Vilbergsdóttir
- Mín veröld
- egvania
- halkatla
- Þórarinn Þ Gíslason
- Bergþóra Árnadóttir - RIP 15.2.48 - 8.3.07
- Svanur Heiðar Hauksson
- Pétur Björgvin
- Ester
- Nancy Drew
- Benna
- Guðrún Olga Clausen
- Inga Lára Helgadóttir
- Agný
- Ólafur Jóhannsson
- Nanna Katrín Kristjánsdóttir
- Helena Leifsdóttir
- Bergþóra Guðmunds
- Valdís Anna Jónsdóttir
- Helga Dóra
- Heiða B. Heiðars
- Blúshátíð í Reykjavík
- Guðný Lára
- Heiður Helgadóttir
- Baldvin Jónsson
- Gunnhildur Hauksdóttir
- Guðfríður Lilja
- Birna G
- Jóhann Helgason
- Ruth
- Mofi
- Heiða
- Sigvarður Hans Ísleifsson
- gudni.is
- Sigríður Jónsdóttir
- Alma Guðmundsdóttir og Freyja Haraldsdóttir
- Grétar Örvarsson
- Jens Guð
- Elísa Ósk Jónsdóttir
- Svava frá Strandbergi
- Óskar Arnórsson
- oktober
- Árni þór
- Jakob Falur Kristinsson
- Hilmar Sæberg Ásgeirsson
- Jóhann Hauksson
- Snorri Óskarsson
- HÉR & NÚ
- Guðbjörg Edda Björgvinsdóttir
- Gunnlaugur Helgason
- Sverrir Stormsker
- Öll lífsins gæði?
- Dagrún Þórný Marínardóttir
- Ágúst Ólafur Ágústsson
- Jón Ingi Cæsarsson
- Sveinn Arnarsson
- Kristján L. Möller
- Karl V. Matthíasson
- Guðríður Arnardóttir
- Lára Stefánsdóttir
- Taflfélagið Hellir
- Bergljót Hreinsdóttir
- Skák.is
- Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir
- Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir
- Ómar Ragnarsson
- Guðmundur St Ragnarsson
- Rannsóknarskýrslan
- Þórdís Ragnheiður Malmquist
- Elma Berglind Stefánsdóttir
- Sigþrúður Þorfinnsdóttir
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- brahim
- Kristin stjórnmálasamtök
- Jón Valur Jensson
- Ásar, Víkingafélag Akureyrar
- Óskar Sigurðsson
- Hugarafl - Valdefling
- Samtök um rannsóknir á ESB ...
- ADHD
- Ragnar Birkir Bjarkarson
- Guðrún Norberg
- Bjarni Harðarson
- Tómas Ibsen Halldórsson