Bloggfærslur mánaðarins, júlí 2022

Opinberunarbók Jóhannesar 5.

Bókin og lambið

Í hægri hendi hans, er í hásætinu sat, sá ég bók sem 

ritað var á báðum megin og innsiglaða sjö innsiglum.

Og ég sá sterkan engil sem kallaði hárri röddu:

,,Hver er þess verður að ljúka upp bókinni

og rjúfa innsigli hennar?" En enginn var sá

á himni eða jörðu eða undir jörðunni sem lokið

gæti upp bókinni og litið í hana. Og ég grét 

stórum af því að enginn reyndist maklegur

að ljúka henni upp og líta í hana.

En einn af öldungunum segir við mig: ,,Grát

þú eigi! Sjá, sigrað hefur ljónið af Júda

ættkvísl, rótarkvistur Davíðs. Hann getur 

lokið upp bókinni og rofið innsigli hennar sjö." 5:1-5

 


Þriðja Mósebók 20.

Taki maður konur og móður hennar sér fyrir eiginkonur 

er það blóðskömm. Hann skal brenndur í eldi ásamt 

konunum: Blóðskömm skal ekki eiga sér stað á meðal

ykkur. Hafi karlmaður samræði við skepnu skal hann 

tekinn af lífi. Þið skuluð einnig farga skepnunni.

Nálgist kona skepnu til þess að eiga við hana

samræði skaltu lífláta konuna og skepnuna.

Þau skulu líflátin. Blóðsök þeirra skal koma yfir þau.

Taki einhver maður systur sína, hvort sem hún er

dóttir föður hans eða móður, og sér blygðun hennar

og hún sér blygðun hans, er það hneisa. 

Þau skulu upprætt í augsýn landa sinna.

Vegna þess að hann hefur berað blygðun systur sinnar

skal hann taka á sig sekt sína.20:14-17.

 


Bæn dagsins

Varpið allri áhyggju yðar á hann, því að hann ber umhyggju fyrir yður 1.Pét.5:7.

Þann, sem þekkti ekki synd, gjörði hann að synd vor vegna, til þess að vér skyldum verða réttlæti Guðs í honum.2.kor. 5:21.


Sálmarnir.

Drottinn heyr þú bæn mína, hróp mitt berist til þín. Byrg eigi auglit þitt fyrir mér þegar ég er í nauðum staddur, hneig eyra þitt að mér, svara mér skjótt þegar ég kalla. Dagar mínir líða hjá sem reykur og bein mín brenna sem í eldi, hjarta mitt er mornað og þornað sem gras því að ég gleymi að eta brauð mitt. Af kveinsstöfum mínum er ég sem skinin bein. sálm 102:2-6


Bæn dagsins.

Hvað sem þér gjörið, þá vinnið af heilum huga, eins og Drottinn ætti í hlut, en ekki menn Kól.3:23

Leitið Drottins, meðan hann er að finna,kallið á hann, meðan hann er nálægur! Jes.55:6


Sálmarnir.

Óttastu ekki þegar einhver auðgast, þegar velmegun eykst í húsi hans, því að hann tekur ekkert af því með sér þegar hann deyr, auður hans fylgir honum ekki til heljar.Sálm 50:17-18

Hann kann að telja sig sælan meðan hann lifir, - þér er hælt því að þér vegnar vel - samt verður hann að safnast til feðra sinna sem aldrei framar líta ljósið. Sá sem á auð en engan skilning hlýtur að deyja eins og dýrin. sálm.50:19-21


Bæn dagsins

Verið því eigi hryggir, því að gleði Drottins er hlífiskjöldur yðar. Neh.8:10

Jesús sagði: ,,Allt, sem þér viljið, að aðrir menn gjöri yður, það skuluð þér og þeim gjöra." Matt.7:12.


Bæn dagsins.

Úr fjarlægð birtist Drottinn mér: ,,Með ævarandi elsku hefi ég elskað þig. Fyrir því hefi ég látið náð mína haldast við þig." Jer.31:3


Þriðja Mósebók

LEVITICUS

Leggist karlmaður með karlmanni eins og

þegar lagst er er með konu fremja þeir

báðir viðurstyggilegt athæft. Þeir skulu

báðir líflátnir. Blóðsök þeirra skal koma

yfir þá. 20:13


Speki Salómons

Viðhorf hinna guðlausu

En guðlausir kalla dauðann yfir sig með orðum og verkum og telja hann eftirsóknarverðan vin. Þeir gera sáttmála við hann og eru maklegir þess að ganga honum í greipar. 1:16.


Næsta síða »

Höfundur

Gunnlaugur Halldór Halldórsson
Gunnlaugur Halldór Halldórsson

Ég elska Jesús. gullidori@gmail.com

249 dagar til jóla

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 27
  • Sl. viku: 166
  • Frá upphafi: 207689

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 128
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.