Bloggfærslur mánaðarins, nóvember 2010

orð í dag.

30.11.10

Þeir eru gróðursettir í húsi Drottins, gróa í forgörðum Guðs vors. Jafnvel í hárri elli bera þeir ávöxt, þeir eru safamiklir og grænir. Þeir kunngjöra, að Drottinn er réttlátur. Klettur minn, sem ekkert ranglæti er hjá. Sálm.92:14-16.

Orð Guðs er lifandi og kröftugt og beittara hverju tvíeggjuðu sverði og smýgur inn í innstu fylgsni sálar og anda, liðamóta og mergjar, það dæmir hugsanir og hugrenningar hjartans, Heb.4:12.

Guð/Jesús hjálpa mér og vinkonu minni að vera edrú og að okkar mál fari vel bið fyrir öllum vinum og okkar fólki og öllum sem eru veikir´

Anna+Gulli
Amen

 

 


Jesús

Anna Heiða Gulli Dóri

,,Ef þú játar með munni þínum Jesús er Drottinn og trúir í hjarta þínu, að Guð hafi uppvakið Hann frá dauðum muntu hólpinn verða. Með hjartanu er trúað til réttlætis, en með munninum játað til hjálpræðis.Róm.9:10.

Algóður Guð geymi þig og mig og blessi. (AHH+GHH)

Elska skalt þú Drottin, Guð þinn, af öllu hjarta þínu, allri sálu þinni og öllum huga þínum. Matt.22:37.


orð í dag

AA, Guð, von kærleikur

    þriðja sporbæn

,,Guð, ég fel mig á vald svo að þú getir mótað mig og gert við mig það sem þér þóknast. Leystu mig úr fjötrum sjálfshyggjunnar svo að ég megni betur að gera viljs þinn. Taktu frá mér erfiðleikana svo að sigurinn yfir þeim geti orðið þeim sem ég vil hjálpa vitnisburður um mátt þinn, kærleika og lífið með þér.  Hjálpaðu mér að fara ævinlega að vilja þínum."

Þegar við vöknum að morgni ættum við að hugsa umsólarhringinn sem framundan er. Við íhugum hvað er á dagskrá þennan daginn og áður en við hefjumst handa, biðjum við Guð að stýra hugsunum okkar og biðjum þess sérstaklega að þær verði lausar við sjálfsvorkunn, óheiðarleika eða eigingjörn áform.


orð í dag

29.11.10

Þá sem hann fyrirhugaði, þá hefur hann og kallað, og þá sem hann kallaði, hefur hann og réttlært, en þá sem hann réttlætti, hefur hann einnig vegsamlega gjört. Róm.8:30-32.

Drottinn er góður, athvarf á degi neyðarinnar, og hann þekkir þá, sem treysta honum. Nahúm.1:7.

Guð/Jesús blessa þú vinkonu að hún verði edrú og gangi vel og blessa þú mig líka að ég verði edrú bið fyrir öllum mínum vinum og þakka þeim allt.

Ég treysti Guði/Jesús

Anna+Gulli
Amen

manchester united.

Berbatov Búlgarinn magnaði skoraði þrennu gegn Liverpool

FA - Bikarkeppninnar þriðja umferð ensku

Manchester United og Liverpool drógust saman í bikarnum


orð í dag.

aa merki

              Loforð

Ef við vöndum vel til þessa stigs á þroskaleið okkar mun margt koma okkur þægilega á óvart áður en langt um líður. Við kynnumst nýju frelsi og nýrri hamingju. Við munum ekki finna til beiskju vegna fortíðarinnar eða óska þess að geta lokað á hana. Við munum skilja orðið æðruleysi og vita hvað friður er. Við munum sjá að reynsla okkar getur orðið öðrum til hjálpar - sama hversu djúpt við vorum sokkin sjálf. Tilgangsleysi og sjálfsvorkunn munu hverfa. Við losnum við eigingirnina og fáum áhuga á meðbræðrum okkar og systrum. Sjálfselskan rjátlast af okkur. Öll okkar framkoma og lífsviðhorf munu breytast. Við hættum að vera hrædd við fólk og efnalegt óöryggi. Okkur mun lærast að taka rétt á aðstæðum sem við stóðum áður ráðþrota gagnvart. Okkur mun skyndilega verða ljóst að Guð er að gera það fyrir okkur sem við gátum ekki sjálf. Eru þetta fjarstæðukennd loforð ? (NEI) Við vitum að svo er ekki. Þau hafa ræst í okkar hópi - stundum fljótt, stundum hægt og bítandi. Þau rætast alltaf ef við vinnum að þeim. AA bók.bla,111.

Jesús sagði: ,,Óttast ekki, trú þú aðeins." Mark.5:36.

                ,,Trú án verka er dauð."


orð í dag

27.11.10.

,,Skapari minn, nú er ég reiðubúin/n að leggja mig með öllum mínum kostum og göllum algjörlega í þínar hendur. Ég bið þig að losa mig við alla þá skapgerðarbresti sem hindra mig í að vera þér og náunga mínum að gagni. Gef mér styrk til að gera vilja þinn er ég held áfram héðan.Amen."

          Trú án verka er dauð

Ég fyrirverð mig ekki fyrir fagnaðarerindið. Það er kraftur Guðs til hjálpræðis hverjum þeim, sem trúir.Róm.1:16

hjálp
Amen

manchester united.

Berbatov var fjótur að koma man utd yfir

Manchester United...7...Blackburn...1

Enska úrvalsdeildinni í dag á Old Trafford.27.11.10.

Manchester United í sjöunda himmi Berbatov með 5 mörk

Dimitar Berbatov skaut manchester united á toppinn í ensku deildinni í dag með tilþrifum því hann skoraði fimm mörk í 7 - 1 stórsigri.

Park og Berbator skora í dag 27.11,10

Park og Berbatov skora í dag

Derbatov fór oft illa með varnamenn Blackbum

Ferguson: Frábært afrek hjá Berbatov...

Alex Ferguson stjóri manchester united hældi berbatov fyrir frammistöðuna gegn Blackburn í dag..

Hann er fjórði leikmaðurinn í sögu ensku úrvalsdeildarinnar sem skora fimm mörk í einum og sama leiknum.

Berbatov fagnar innilegaBerbatov fagnar einu marka sinna


orð í dag

26.11.10.

Ekki prédikum vér sjálfa oss, heldur Krist Jesú sem drottinn, en sjálfa oss sem þjóna yðar vegna Jesú.  Því að Guð, sem sagi: ,,Ljós skal skína fram úr myrkri!"   hann lét það skína í hjörtu vor, til þess að birtu legði af þekkingunni á dýrð Guðs, eins og hún skín frá ásjónu Jesú Krists. En þennan fjársjóð höfum vér í leirkerum, til þess að ofurmagn kraftarins sé Guðs, en ekki frá oss. 2.Kor.4:5-7.

Guð/Jesús Bið fyrir að hjálpa vinkonu minni að vera edrú og mér og að líf okkar gangi vel og okkar mál fari vel ég er þakklátur í dag þökk sér Guði.

Anna+Gulli
Amen

orð í dag.

25.11.10

Ég fyrirverð mig ekki fyrir fagnaðarerindið. Það er kraftur Guðs til hjálpræðis hverjum þeim sem trúir. Gyðingum fyrst, en einnig Grikkjum. Róm.1:16.

Það orð er satt og í alla staði þess vert, að við því sé tekið, að Kristur Jesús kom í heiminn til að frelsa synduga menn. 1.Tím.1:15.

Guð/Jesús bið þig að hjálpa og blessa vinkonu mína að vera edrú og að hinna mál fari vel og að ég verði edrú líka og mín mál fari vel.

Anna+Gulli
Amen

Næsta síða »

Höfundur

Gunnlaugur Halldór Halldórsson
Gunnlaugur Halldór Halldórsson

Ég elska Jesús. gullidori@gmail.com

242 dagar til jóla

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 16
  • Sl. sólarhring: 18
  • Sl. viku: 177
  • Frá upphafi: 207883

Annað

  • Innlit í dag: 12
  • Innlit sl. viku: 115
  • Gestir í dag: 12
  • IP-tölur í dag: 12

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.