Bloggfærslur mánaðarins, október 2024

Bæn dagsins...

Hlýddu ráðum og taktu umvöndun svo að þú verðir vitur að lokum. Mörg er ráðagerð mannshjartans en áform Drottins standa. Maðurinn þráir miskunnarverk og betri er fátækur maður en lygari. Að óttast Drottin leiðir til lífs,þá hvílast menn mettir og óhultir. Latur maður dýfir hendinni ofan í skálina en nennir ekki að bera hana upp að munni sér. Sláir þá spottarann verður hinn fávísi hygginn, sé vandað um við skynsaman mann vex hann að viti. Sá sem misþyrmir föður sínum og rekur burt móður sína, sá sonur fremur smán og óhæfu. Sonur minn, hættu að hlýða á umvöndun og þú fjarlægist orð þekkingarinnar. Gagnslaust vitni hæðir  réttinn og illkvittni býr í munni ranglátra. Spottarar eiga refsingar í vændum og bök heimskingjanna verða barin. Amen.

Orðs:19.20-29


Bæn dagsins...

Hús og auður er arfur frá feðrunum en hyggin kona er gjöf: frá Drottni. Letin svæfir þungum svefni og iðjuleysingjann mun hungra. Sá sem hlýðir lögmálinu varðveitir líf sitt en sá deyr sem ekki hefur gát á vegum sínum. Sá lánar Drottni  sem líknar fátækum, hann mun endurgjalda honum. Agaðu son þinn meðan enn er von, gættu þess að gera ekki út af við hann. Hinn skapbráði mun hljóta refsingu, reynir þú að bjarga honum gerir þú illt verra. Amen.

Orðs:19:14-19


Bæn dagsins...

Það er viska að vera seinn til reiði og sæmd að láta rangsleitni ekki á sig fá. Reiði konungs er eins og ljónsöskur en hylli hans sem dögg  á grasi. Heimskur sonur steypir föður sínum í glötun, konuþras er sem sífelldur þakeki. Amen.

Orðs:19:11-13


Bæn dagsins...

Falsvotti verður ekki látið órefsað, sá sem fer með lygar kemst ekki undan. Margir smjaðra fyrir tignarmanninum, allir eru vinir hins örláta. Allir bræður hins snauða fyrirlíta hann, hve miklu fremur forðast þá vinir hans hann. Sá sem öðlast skilning vinnur sér mest gegn, sá sem ann skynseminni hlýtur hamingju. Falsvotti verður ekki látið órefsað og sá sem fer með lygar tortímist. Sællífi hæfir ekki heimskum manni, hvað þá þræli að drottna yfir höfðingjum. Amen.

Orðs:19:5-10 


Bæn dagsins...

Betri er fátækur maður og ráðvandur en sá sem er flár í orðum og heimskur. Kapp er best með forsjá og sá hrasar sem hraðar sér. Flónska mannsins eyðir efnum hans en hjarta hans kennir Drottni um. Auður fjölgar vinum en fátækum manni bregst vinur. Amen.

Orðs:19:1-4


Bæn dagsins...

Dauði og líf eru á valdi tungunnar, sá sem henni beitir mun og þiggja ávöxt hennar. Sá sem eignast konu eignast gersemi og hlýtur náðargjöf frá Drottni. Hinn fátæki biður í auðmýkt en hinn ríki svarar með hörku. Til eru vinir sem bregðast og til er sá vinur sem reynis tryggari en bróðir. Amen.

Orðs:18:21-24


Bæn dagsins...

Hlutkestið bindur enda á deilu og sker úr málum hinna voldugu. Hlunnfarinn bróðir er sem rammbyggt virki, deilur sem slagbrandar fyrir hallardyrum. Af ávexti munnsins mettast kviðurinn, uppskeran varanna seður manninn. Amen.

Orðs:18: 18-20


Bæn dagsins

Gjöf greinir þeim veg sem gefur og leiðir hann fram fyrir stórmenni. Sá er fyrst flytur mal sitt virðist hafa á réttu  að standa uns andstæðingurinn vefengir rök  hans. Amen. Orðs:18:16=17


bæn dagsins...

Guð, lát þér þóknast að frelsa mig, Drottinn, skunda mér  til hjálpar. Lát þá verða til skammar og hljóta kinnroða er sitja um líf mitt, Lát þá hverfa aftur með skömm er óska mér ógæfu. Amen. Sálmar: 70:2=3 


Bæn dagsins...

Svari einhver áður en hann hlustar er það heimska hans og skömm. Kjarkur styrkir menn í sjúkleika en hver fær borið dapurt geð? Hjarta hins hyggna aflar sér  og eyra hinna vitru leitar þekkingar. Amen. Orðs:18;13=15


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Gunnlaugur Halldór Halldórsson
Gunnlaugur Halldór Halldórsson

Ég elska Jesús. gullidori@gmail.com

20 dagar til jóla

Des. 2024
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.12.): 6
  • Sl. sólarhring: 17
  • Sl. viku: 119
  • Frá upphafi: 212366

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 78
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.