Bloggfærslur mánaðarins, október 2024

Bæn dagsins...

Sé spottaranum refsað verður hinn fávísi hygginn og sé vitur maður fræddur vex hann að viti. Hinn réttláti fylgist með húsi hins rangláta og steypir óguðlegum í ógæfu. Sá sem daufheyrist við kveini hins fátæka mun sjálfur kalla og ekki fá bænheyrslu. Amen.

Orðs:21:11-13


Bæn dagsins...

Áform hins iðjusama færa arð en hroðvirkni endar í örbirgð. Fjársjóðir, fengnir með lygum, eru sem svipull vindblær og snörur dauðans. Ráðríki ranglátra feykir þeim burt því að þeir hafna réttlátri breytni. Hlykkjótt er leið hins seka en verk hins hreina eru vammlaus.Betri er dvöl í horni á húsþaki en sambúð við þrasgjarna konu. Hinn rangláti girnist illt, náungi hans finnur enga miskunn hjá honum. Amen.

Orðs:21:5-10


Bæn dagsins...

Hjarta konungsins er sem lækir í hendi Drottins, hann sveigir þá hvert sem honum þóknast. Maðurinn telur alla hætti sína rétta en Drottinn vegur hjörtun. Að ástunda réttlæti og rétt er Drottni þóknanlegra en sláturfórn. Drembilát augu og hrokafullt hjarta, lampi ranglátra er syndin. amen.

Orðs:21:1-4


Bæn dagsins...

Tvenns konar lóð eru Drottni andstyggð og fölsuð vog er ekki góð. Skref mannsins eru ákveðin af Drottni. Hvernig fær þá maðurinn skilið veg sinn? Það er gildra að gefa helgigjöf í flýti og hyggja fyrst að eftir að heit eru unnin. Vitur konungur vinsar hina ranglátu úr og lætur síðan þreskihjólið ganga yfir þá. Andi mannsins er lampi Drottins og rannsakar hvern afkima hjarta hans. Mildi og sannleikur vernda konunginn og hann styrkir hásæti sitt með réttlæti. Þrek er ungs manns þokki en hærurnar prýði öldunganna. Sár undan svipu hreinsa burt hið illa og högg sem taka djúpt í hold. Amen. 

Orðs:20:23-30


Bæn dagsins...

Vesæll er sá sem ljóstrar upp leyndarmálum, hafðu ekki samneyti við málugan mann. Formæli maður föður og móður mun lampi hans slokkna í náttmyrkrinu. Eignir, sem í upphafi voru skjótfengnar, blessast ekki að lokum. Segðu ekki: ,,Ég hefni hins illa." Treystu á Drottin og hann mun bjarga þér. Amen.

Orðs:20:19-22


Bæn dagsins...

Gnægð er af gulli og perlum en dýrmætastar eru þó vitar varir. Taktu skikkjuna af þeim sem hefur gengið í ábyrgð fyrir ókunnugan, taktu við af þeim sem hefur gengið í ábyrgð fyrir framandi. Sætt er svikabrauðið en eftir á fyllist munnurinn möl. Vel ráðin áform fá framgang, þiggðu hollráð ef þú heyr stríð. Amen.

Orðs:20:15-18


Bæn dagsins...

Jafnvel má þekkja af verkum barnsins hvort athafnir þess eru hreinar og einlægar. Eyrað sem heyrir og augað sem sér, hvort tveggja hefur Drottinn skapað. Elskaðu ekki svefninn svo að þú verðir ekki snauður, opnaðu augun, þá  muntu mettast af brauði. ,,Afleitt, afleitt," segir kaupandinn en þegar hann gengur burt hælist hann um. Amen.

Orðs:20:11-14


Bæn agsins...

Hver getur sagt: ,,Ég hef haldið hjarta mínu hreinu, ég er hreinn af synd?" Tvenns konar vog og tvenns konar mál, hvort tveggja er Drottni andstyggð. Amen.

Orðs:20:9-10


Bæn dagsins...

Margir láta vingjarnlega en tryggan vin, hver finnur hann? Réttlátur maður ástundar ráðvendni, sæl verða börn hans eftir hann. Þegar konungar situr á dómstóli vinsar hann allt illt úr með augnaráðinu einu. Amen.

Orðs:20:6-8


Bæn dagsins...

Vínið er illkvittið, sterkur drykkur glaumsamur, fávís verður sá sem lætur leiðast afvega. Reiði konungs er eins og ljónsöskur, sá sem egnir hann gegn sér hættir lífi sínu. Það er manni sómi að forðast deilur en afglapinn kveikir þrætur. Letinginn plægir ekki á réttum tíma, því leitar hann um uppskerutímann og grípur í tómt. Ráð mannshjartans eru sem djúp vötn og hygginn maður eys af þeim. Amen.

Orðs:20:1-5


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Gunnlaugur Halldór Halldórsson
Gunnlaugur Halldór Halldórsson

Ég elska Jesús. gullidori@gmail.com

21 dagur til jóla

Des. 2024
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.12.): 13
  • Sl. sólarhring: 16
  • Sl. viku: 133
  • Frá upphafi: 212358

Annað

  • Innlit í dag: 11
  • Innlit sl. viku: 85
  • Gestir í dag: 11
  • IP-tölur í dag: 11

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband