Bloggfærslur mánaðarins, febrúar 2022
11.2.2022 | 04:42
Bæn dagsins.
Öllum þeim, sem tóku við honum (Jesú), gaf hann rétt til að verða Guðs börn, þeim er trúa á nafn hans. Jóh.1:12.
Varpa áhyggjum þínum á Drottin, hann mun bera umhyggju fyrir þér, hann mun eigi að eilífu láta réttlátan mann verða valtan á fótum. Sálm.55:23.
Um Krist: ,,Vér mátum hann einskis. En vorar þjáningar voru það, sem hann bar, og vor harmkvæli, er hann á sig lagði." Jes.53:3-4.
Trúmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.2.2022 | 21:01
Markúsarguðspjall.
Það var ég
Tafarlaust knúði Jesús lærisveina sína að fara í bátinn og halda á undan yfir Betsaídu meðan hann sendi fólkið brott. Og þá er hann hafði kvatt það fór hann til fjalls að biðjast fyrir. Þegar kvöld var komið var báturinn á miðju vatni en Jesús einn á landi. Hann sá að þeim var þungur róðurinn því að vindur var á móti þeim og er langt var liðið nætur kemur hann til þeirra gangandi á vatninu og ætlar fram hjá þeim. Þegar þeir sáu Jesú ganga á vatninu hugðu þeir að það færi vofa og æptu upp yfir sig. Því að allir sáu þeir hann og urðu skelfdir. En. Jesús mælti jafnskjótt til þeirra: ,,verið hughraustir, það er ég, verið óhræddir. Og hann sté í bátinn til þeirra og lægði þá vindinn. Og þeir urðu öldungis agndofa enda höfðu þeir ekki skilið það sem gerst hafði með brauðin, hjörtu þeirra voru blind.
ÞEIR URÐU HEILIR
Þegar þeir höfðu náð yfir um komu þeir að landi við Genesaret og lögðu það að. Um leið og þeir stigu úr bátnum þekku menn Jesú. Og fólk tók að steypa fram og aftur um allt það hérað og bera sjúklinga í burðarrekkjum hvert þangað sem það heyrði að hann væri. Og hvar sem Jesús kom í þorp, borgir eða bæi lögðu menn sjúka á torgin og báðu hann að þeir fengju rétt að snerta fald klæða hans og allir þeir sem snertu hann urðu heilir. Mark.6:45-56
Trúmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
10.2.2022 | 04:46
Bæn dagsins.
Jesús sagði: ,,Hver, sem vill fylgja mér, afneiti sjálfum sér, taki kross sinn daglega og fylgi mér." Lúk.9:23.
Drottinn er góður, athvarf á degi neyðarinnar, og hann þekkir þá, sem treysta honum. Nahúm.1:7.
Hjálp mín kemur frá Drottni, skapara himins og jarðar. Sálm. 121:2.
Trúmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.2.2022 | 04:51
Bæn dagsins.
Vísa mér veg þinn,Drottinn, lát mig ganga í sannleika þínum, gef mér heilt hjarta, að ég tigni nafn þitt. sálm.86:11.
Þann, sem þekkti ekki synd, gjörði hann að synd vor vegna, til þess að vér skyldum verða réttlæti Guðs í honum. 2.Kor.5:21.
Ég fyrirverð mig ekki fyrir fagnaðarerindið. Það er kraftur Guðs til hjálpræðis hverjum þeim, sem trúir. Róm.1:16.
Trúmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.2.2022 | 22:52
Markúsarguðspjall.
Jesús mettar
Postularnir komur nú aftur til Jesú og sögðu honum frá öllu því er þeir höfðu gert og kennt. Hann sagði við þá: ,,Komið nú á óbyggðan stað, svo að við séum saman, og hvílist um stund." En fjöldi fólks var stöðugt að koma og fara svo að þeir höfðu ekki einu sinni næði til að matast. Og þeir fóru á bátnum einir saman á óbyggðan stað. Menn sáu þá fara og margir þekktu þá og nú streymdi fólk þangað gangandi úr öllum borgunum og varð á undan þeim. Þegar Jesús steig á land sá hann þar margt manna og hann kenndi í brjósti um þá því að þeir voru sem sauðir er engan hirði hafa. Og hann kenndi þeim margt. Þá er mjög var áliðið dags komu lærisveinarnir að máli við Jesú og sögðu: ,,Hér er engin mannabyggð og langt á daginn liðið. Lát fólkið fara svo að það geri náð til býla og þorpa hér í kring og keypt sér eitthvað til matar." En Jesús svaraði þeim: ,,Gefið því sjálfir að eta." Þeir svara honum: ,,Eigum við að fara og kaupa brauð fyrir tvö hundruð denara og gefa því að eta?" Jesús spyr þá: ,,Hve mörg brauð hafið þið? Farið og gætið að." Þeir hugðu að og svöruðu: ,, Fimm brauð og tvo fiska." Þá bauð hann þeim að láta alla setjast í grængresið og skipta sér í hópa. Fólkið settist niður í flokkum, hundrað í sumum en fimmtíu í öðrum. Og Jesús tók brauðin fimm og fiskana tvo, leit upp til himins, þakkaði Guði, braut brauðin og gaf lærisveinunum til að bera fram fyrir mannfjöldann. Fiskunum tveim skipti hann og meðal allra. Og allir neyttu og urðu mettir. Þeir tóku saman brauðbitana er fylltu tólf körfur, svo og fiskleifarnar. En þeir sem brauðanna neyttu voru fimmþúsund karlmenn. Mark.6:30-44.
Trúmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.2.2022 | 04:45
Bæn dagsins.
Varpið allri áhyggju yðar á hann, því að hann ber umhyggju fyrir yður. 1.Pét.5:7.
Drottinn er nálægur öllum, sem ákalla, hann, öllum,sem ákalla hann í einlægni. Sálm.145:18.
Jesús sagði: ,,Himinn og jörð munu líða undir lok, en orð mín munu aldrei undir lok líða." Mark.13:31.
Trúmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.2.2022 | 21:01
Markúsarguðspjall.
Heródes uggandi
Heródes konungur ftéttir þetta enda var nafn Jesú orðið víðfrægt. Sögðu sumir: ,,Jóhannes skírari er risinn upp frá dauðum, þess vegna gerir hann þessi kraftaverk." Aðrir sögðu: ,,Hann er Elía," enn aðrir: ,,Hann er spámaður eins og spámennirnir fornu." Þegar Heródes heyrði þetta sagði hann: ,,Jóhannes, sem ég lét hálshöggva, hann er upp risinn.2 En Heródes hefði sent menn að taka Jóhannes höndum, fjötra hann og varpa í fangelsi vegna Heródísar, konu Filippusar, bróður síns. Hann hafði gengið að eiga hana en Jóhannes hafði sagt við Heródes: ,,Þú mátt ekki eiga konu bróður þíns." Þess vegna lagði Heródes fæð á Jóhannes og vildi deyða hann en gat ekki því að Heródes hafði beyg af honum og verndaði hann þar eð hann vissi að hann var maður réttlátur og heilagur. Hann komst í mikinn vanda þegar hann hlýddi á mál hans en þó var honum ljúft að hlusta á hann. En nú kom hentugur dagur. Á afmæli sínu gerði Heródes veislu gæðingum sínum, hershöfðingjum og fyrirmönnum Galíleu. Dóttir Heródísar gekk þar inn og sté dans. Hún hreif Heródes og gesti hans og konungur sagði við stúlkuna: ,,Bið mig hvers þú vilt og mun ég veita þér." Og Heródes sór henni: ,,Hvað sem þú biður um það mun ég veita þér, allt að helmingi ríkis míns." Hún gekk þá út og spurði móður sína: ,,Um hvað á ég að biðja?" Hún svaraði: ,,Höfuð Jóhannesar skírara." Jafnskjótt skundaði hún til konungs og bað hann: ,, Gef mér þegar á fati höfuð Jóhannesar skírara." Konungur varð hryggur við en vegna eiðsins og gæska sinna vildi hann ekki synja henni þessa heldur sendi þegar böðul og bauð að færa sér höfuð Jóhannesar. Hann fór og hjó af höfuð Jóhannesar í fangelsinu, kom með höfuð hans á fati og færði stúlkunni en stúlkan móður sinni. þegar lærisveinar hans fréttu þetta komu þeir, tóku lík Jóhannesar og lögðu í gröf. Mark.6:14-29.
Trúmál | Breytt s.d. kl. 21:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.2.2022 | 06:04
Bæn dagsins
Flý þú æskunnar girndir, en stunda réttlæti, trú, kærleika og frið við alla þá, sem ákalla Drottin af hreinu hjarta. 2.Tím.2.22.
Síðasta daginn, hátíðardaginn mikla, stóð Jesús þar og kallaði: ,,Ef nokkurn þyrstir, þá komi hann til mín og drekki." Jóh.7:37.
Lát ekki hið vonda yfirbuga þig, heldur sigra þú illt með góðu. Róm.12:21.
Trúmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.2.2022 | 16:51
Markúsarguðspjall.
Í Nasaret
Þaðan fór Jesús og kom í ættborg sína og lærisveinar hans fylgdu honum. Þegar hvíldardagur var kominn tók hann að kenna í samkundunni. Fjöldinn sem á hlýddi undraðist stórum. Menn sögðu: ,,Hvaðan kemur honum þetta? Hver er sú speki sem honum er gefin og hvernig getur hann gert slík kraftaverk? Er þetta ekki smiðurinn, sonur Maríu, bróðir þeirra Jakobs, Jóse, Júdasar og Símonar? Og eru ekki systurhans hér hjá okkur?" Og þeir hneyksluðust á honum. Þá sagði Jesús: ,,Hvergi er spámaður minna metinn en í landi sínu, með frændfólki sínu og heimamönnum." Og hann gat ekki gert þar neitt kraftaverk nema hann lagði hendur yfir nokkra sjúka og læknaði þá. Og hann undraðist vantrú þeirra. Mark.6:2-6.
Postular sendir.
Jesús fór nú um þorpin þar í kring og kenndi. Og hann kallaði þá tólf til sín, að senda þá út, tvo og tvo, og gaf þeim vald yfir óhreinum öndum. Hann bauð þeim að taka ekkert til ferðarinnar annað en staf, ekki brauð, mal né peninga í belti. Þeir skyldu hafa skó á fótum en ekki tvo kyrtla. Og hann sagði við þá: ,,Hvar sem þið fáið inni, þar sé aðsetur ykkar uns þið leggið upp að nýju. En hvar sem ekki er tekið við ykkur né á ykkur hlýtt, þaðan skuluð þið fara og hrista dustið af fótum ykkar þeim til viðvörunar." Þeir lögðu af stað og prédikuðu að menn skyldu taka sinnaskiptum, ráku út marga illa anda og smurðu marga sjúka með olíu og læknuðu þá.Mark.6:7-13.
Trúmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.2.2022 | 08:21
Bæn dagsins.
Þakkið alla hluti, því að það er vilji Guðs með yður í Kristi Jesú. 1.þess.5:18.
Kristur Jesús afmáði dauðann, en leiddi í ljós líf og óforgengileika með fagnaðarerindinu. 2. Tím. 1:10.
Fyrir því hefir og Guð hátt upp hafið hann og gefið honum nafnið, sem hverju nafni er æðra, til þess að fyrir nafni Jesú skuli hvert kné beygja sig á himni, jörðu og undir jörðu og sérhver tunga játa Guði föður til dýrðar: Jesús Kristur er Drottinn. Fil. 2:9-11.
Sæli eru hjartahreinir, því að þeir munu Guð sjá Matt. 5:8.
Trúmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
33 dagar til jóla
Tenglar
Mínir tenglar
- Lindin útvarp
- Bylgjan útvarp
- útvarp saga Útvarp
- Létt Bylgjan Útvarp
heimasíðu
- S Á Á vogur
- AA samtökinn AA á Íslandi
- Hjálpræðisherinn Jesús
- Gospel Ísland
- Glaetan bókakaffi. er í Reykjavík
- manchester united manchester united vefurinn á Íslandi
- Biblían
- Boðunarkirkjan kópavogi
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 14
- Sl. sólarhring: 14
- Sl. viku: 107
- Frá upphafi: 212110
Annað
- Innlit í dag: 10
- Innlit sl. viku: 79
- Gestir í dag: 9
- IP-tölur í dag: 9
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Nýjustu færslur
- 21.11.2024 Bæn dagsins...
- 20.11.2024 Bæn dagsins...
- 19.11.2024 Bæn dagsins...
- 18.11.2024 Bæn dagsins...
- 17.11.2024 Bæn dagsins...
- 16.11.2024 Bæn dagsins...
- 15.11.2024 Bæn dagsins...
- 14.11.2024 Bæn dagsins...
- 13.11.2024 Bæn dagsins...
- 12.11.2024 Bæn dagsins...
Bloggvinir
- Anna Heiða Harðardóttir
- Aida.
- Kvíðin kona
- Rafn Haraldur Sigurðsson
- Jón Magnússon
- Björgvin Þangbrandur "Birkirmár" Gíslasson
- Sverrir Halldórsson
- Kafteinninn
- Rósa Aðalsteinsdóttir
- Auðun Gíslason
- Guðrún Sæmundsdóttir
- Kristín Ketilsdóttir
- Ragnheiður Katla Laufdal
- Unnur Arna Sigurðardóttir
- Helga Kristjánsdóttir
- Íris María
- Ásdís Rán
- Brynja skordal
- Ágúst Böðvarsson
- Bryndís Böðvarsdóttir
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Rakel Lind
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Aðalbjörn Leifsson
- Myndlistarfélagið
- Helga Nanna Guðmundsdóttir
- Vilborg Traustadóttir
- Jóna Á. Gísladóttir
- Pálmi Gunnarsson
- Sædís Ósk Harðardóttir
- Svavar Alfreð Jónsson
- Eygló Hjaltalín
- Halla Vilbergsdóttir
- Mín veröld
- egvania
- halkatla
- Þórarinn Þ Gíslason
- Bergþóra Árnadóttir - RIP 15.2.48 - 8.3.07
- Svanur Heiðar Hauksson
- Pétur Björgvin
- Ester
- Nancy Drew
- Benna
- Guðrún Olga Clausen
- Inga Lára Helgadóttir
- Agný
- Ólafur Jóhannsson
- Nanna Katrín Kristjánsdóttir
- Helena Leifsdóttir
- Bergþóra Guðmunds
- Valdís Anna Jónsdóttir
- Helga Dóra
- Heiða B. Heiðars
- Blúshátíð í Reykjavík
- Guðný Lára
- Heiður Helgadóttir
- Baldvin Jónsson
- Gunnhildur Hauksdóttir
- Guðfríður Lilja
- Birna G
- Jóhann Helgason
- Ruth
- Mofi
- Heiða
- Sigvarður Hans Ísleifsson
- gudni.is
- Sigríður Jónsdóttir
- Alma Guðmundsdóttir og Freyja Haraldsdóttir
- Grétar Örvarsson
- Jens Guð
- Elísa Ósk Jónsdóttir
- Svava frá Strandbergi
- Óskar Arnórsson
- oktober
- Árni þór
- Jakob Falur Kristinsson
- Hilmar Sæberg Ásgeirsson
- Jóhann Hauksson
- Snorri Óskarsson
- HÉR & NÚ
- Guðbjörg Edda Björgvinsdóttir
- Gunnlaugur Helgason
- Sverrir Stormsker
- Öll lífsins gæði?
- Dagrún Þórný Marínardóttir
- Ágúst Ólafur Ágústsson
- Jón Ingi Cæsarsson
- Sveinn Arnarsson
- Kristján L. Möller
- Karl V. Matthíasson
- Guðríður Arnardóttir
- Lára Stefánsdóttir
- Taflfélagið Hellir
- Bergljót Hreinsdóttir
- Skák.is
- Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir
- Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir
- Ómar Ragnarsson
- Guðmundur St Ragnarsson
- Rannsóknarskýrslan
- Þórdís Ragnheiður Malmquist
- Elma Berglind Stefánsdóttir
- Sigþrúður Þorfinnsdóttir
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- brahim
- Kristin stjórnmálasamtök
- Jón Valur Jensson
- Ásar, Víkingafélag Akureyrar
- Óskar Sigurðsson
- Hugarafl - Valdefling
- Samtök um rannsóknir á ESB ...
- ADHD
- Ragnar Birkir Bjarkarson
- Guðrún Norberg
- Bjarni Harðarson
- Tómas Ibsen Halldórsson