Bloggfærslur mánaðarins, febrúar 2022
5.2.2022 | 14:40
Markúsarguðspjall.
Trú þú aðeins
Þegar Jesús kom aftur yfir um á bátnum safnaðist að honum mikill mannfjöldi þar sem hann var við vatnið. Þar kom og einn af samsamkundustjórunum, Jaírus að nafni, og er hann sá Jesú féll hann til fóta honum, bað hann ákaft og sagði: ,,Dóttir mín litla er að dauða komin. Kom og legg hendur yfir hana að hún læknist og lifi." Jesús fór með honum. Og mikill mannfjöldi fylgdi honum og var þröng um hann. Þar var kona sem hafði haft blóðlát í tólf ár. Hún hafði orðið margt að þola hjá mörgum læknum, kostað til aleigu sinni en engan bata fengið, öllu heldur versnað. Hún heyrði um Jesú og kom hún í mannþrönginni að baki honum og snart klæði hans. Hún hugsaði: ,,Ef ég fæ aðeins snert klæði hans mun ég heill verða." Jafnskjótt þvarr blóðlát hennar og hún fann það á sér að hún var heil af meini sínu. Jesús fann þegar á sjálfum sér að kraftur hafði farið út frá honum og hann sneri sér við í mannþrönginni og sagði: ,,Hver snart klæði mín?" Lærisveinar hans sögðu við hann: ,,Þú sérð að mannfjöldinn þrengir að þér og spyrð þó: Hver snart mig?" Jesús litaðist um til að sjá hver þetta hefði gert en konan, sem vissi hvað fram við sig hafði farið, kom hrædd og skjálfandi, féll til fóta honum og sagði honum allan sannleikann. Jesús sagði við hana:,,Dóttir trú þín hefur bjargað þér. Far þú í friði og ver heil meina þinna." Meðan hann var að segja þetta koma menn heiman frá samkundustjóranum og segja: ,,Dóttir þín er látin, hví ómakar þú meistarann lengur?" Jesús heyrði hvað þeir sögðu en gaf ekki um heldur sagði við samkundustjórann: ,,Óttast ekki, trú þú aðeins." Og nú leyfði hann engum að fylgja sér nema Pétri og þeim bræðrum Jakobi og Jóhannesi. Þeir koma að húsi samkundustjórans. Þar sér hann að allt er í uppnámi, grátur mikill og kleinan. Jesús gengur inn og segir: ,, Hví hafið þið svo hátt og grátið? Barnið er ekki dáið það sefur." En menn hlógu að honum. þá lét Jesús alla fara út og tók með sér föður barnsins og móður og þá sem með honum voru og gekk þar inn sem barnið var. Og hann tók hönd barnsins og sagði: ,,Talíþa kúm!" Það þýðir: ,,Stúlka litla, ég segi, rís upp!" Jafnskjótt reis stúlkan upp og fór að ganga um en hún var tólf ára. Og menn urðu frá sér numdir af undrum. En Jesús lagði ríkt á við þá að láta engan vita þetta og bauð að gefa henni að eta.Mark.5:21-43.
Trúmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.2.2022 | 08:50
Bæn dagsnis
Laun syndarinnar er dauði, en náðargjöf Guðs er eilíft líf í Kristi Jesú, Drottni vorum. Róm.6:23.
Jesús sagði: ,,Ég er ljós heimsins. Sá, sem fylgir mér mun ekki ganga í myrkri, heldur hafa ljós lífsins." Jóh.8:12.
Trúmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.2.2022 | 20:02
Markúsarguðspjall.
Í byggð Gerasena
Þeir komu nú yfir um vatnið í byggð Gerasena. Og um leið og Jesús sté úr bátnum kom maður á móti honum frá gröfunum, haldinn óhreinum anda. Hann hafðist við í gröfunum og enginn gat lengur bundið hann, ekki einu sinni með hlekkjum. Oft hafði hann verið fjötraður á fótum og höndum en hann braut jafnóðum af sér hlekkina og sleit fjötrana og gat enginn ráðið við hann. Allar nætur og daga var hann í gröfunum eða á fjöllum, æpti og lamdi sig grjóti. Þegar hann sá Jesú álengdar hljóp hann og féll fram fyrir honum og æpti hárri röddu: ,,Hvað vilt þú mér, Jesús, sonur Guðs Hins hæsta? Ég bið þið í Guðs nafni, kvel þú mig eigi!" því að Jesús hafði sagt við hann: ,,þú óhreini andi, far út af manninum." Jesús spurði hann þá: ,,Hvað heitir þú?" Hinn svaraði: ,,Hersing heiti ég, við erum margir." Og hann bað Jesú ákaft að senda þá ekki brott úr héraðinu. En þar í fjallinu var mikil svínahjörð á beit. Og þeir báðu hann: ,,Send okkur í svínin, lát okkur fara í þau!" Hann leyfði þeim það og fóru þá óhreinu andarnir úr manninum og í svínin og gjörðin, nær tveim þúsundum, ruddist fram af bröttum árbakkanum í vatnið og drukknaði þar. En hirðarnit flýðu og sögðu tíðindin í borginni og sveitinni. Menn fóru þá að sjá hvað gerst hafði, komu til Jesú og sáu óða manninn, sem hersingin hafði verið í, sitja þar klæddan og heilvita. Og þeir urðu hræddir. En sjónarvottar sögðu þeim hvað fram hafði farið við óða manninn og frá svínunum. Og þeir tóku að biðja Jesú að fara úr héruðum þeirra. Þá er Jesús sté í Bátinn bað sá er læknaður hafði verið að fá að vera með honum. En Jesús leyfði honum það eigi, heldur sagði: ,,Far heim til þín og þinna og seg þeim hve mikið Drottinn hefur gert fyrir þig og verið þér miskunnsamur." Hann fór og tók að kunngjöra í Dekapólis hve mikið Jesús hafði gert fyrir hann og undruðust það allir. Mark.5:2-20.
Trúmál | Breytt s.d. kl. 21:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.2.2022 | 04:52
Bæn dagsins
Drottinn er minn hirðir, mig mun ekkert bresta. Sálm.23:1
Sæll er sá, er afbotn eru fyrirgefin, synd hans hulin. Sálm.32:1
Ef vér segjum: ,,Vér höfum samfélag við hann," og göngum þó í myrkrinu, þá ljúgum vér og iðkum ekki sannleikann. 1.Jóh.1:6.
Trúmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.2.2022 | 18:56
Markúsarguðspjall.
Líkt mustarðskorni
Og Jesús sagði: ,,Við hvað eigum við að líkja Guðs ríki? Með hvaða dæmi eigum við að lýsa því? Líkt er það mustarðskorni.Þegar því er sáð í mold er það smærra hverju sáðkorni á jörðu. En eftir að því er sáð tekur það að spretta, það verður öllum jurtum meira og fær svo stórar greinar að fuglar himins geta hreiðrað sig í skugga þess." Í mörgum slíkum dæmisögum flutti Jesús þeim orðið svo sem þeir gátu numið og án dæmisagna talaði hann ekki til þeirra en fyrir lærisveinum sínum skýrði hann allt þegar þeir voru einir. Mark.4:30-34.
Í stormi
Að kvöldi sama dags sagði Jesús við þá: ,,Förum yfir um vatnið!" Þeir skildu þá við mannfjöldann, fóru í bátinn þar sem Jesús var og sigldu burt. Aðrir bátar fylgdu þeim eftir. Þá brast á stormhrina mikil og féllu öldurnar inn í bátinn svo við lá að hann fyllti. Jesús var í skutnum og svaf á kodda. Þeir vöktu hann og sögðu við hann: ,, Meistari, hirðir þú ekki um að við förumst?" Hann vaknaði, hastaði á vindinn og sagði við vatnið: ,,Þegi þú, haf hljótt um þig!" Þá lægði vindinn og gerði stillilogn. Og hann sagði við þá: ,,Hví eruð þið hræddir, hafið þið enn enga trú?" En þeir urðu miklum ótta lostnir og sögðu hver við annan: ,,Hver er þessi? Jafnvel vindur og vatn hlýða honum." Mark.4:35-41.
Trúmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.2.2022 | 04:57
Bæn dagsins.
Ég geymi orð þín í hjarta mínu, til þess að ég skuli eigi syndga gegn þér. Sálm.119:11.
Trúin er fullvissa um það, sem menn vona, sannfæring um þá hluti, sem eigi er auðið að sjá. Heb.11:1.
Guð auðsýnir kærleika sinn til vor, þar sem Kristur er fyrir oss dáinn, meðan vér enn vorum í syndum vorum. Róm.5:8.
Trúmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.2.2022 | 18:31
Markúsarguðspjall.
Ljós á ljósastiku
Og Jesús sagði við þá: ,,ekki bera menn inn ljós og setja það undir mæliker eða bekk. Er það ekki sett á ljósastiku? Því að ekkert er hulið að það verði eigi gert opinbert né leynt að það komi ekki í ljós. Ef einhver hefur eyru að heyra, hann heyri!" Enn sagði hann við þá: ,,Gætið að hvað þið heyrið. Með þeim mæli, sem þið mælið, mun ykkur mælt verða og við ykkur bætt. Því að þeim sem hefur mun gefið verða og frá þeim sem eigi hefur mun tekið verða jafnvel það sem hann hefur." Mark.4:21-25.
Sæðið grær og vex
Þá sagði Jesús: ,,Svo er Guðs ríki sem maður sái sæði í jörð. Hann sefur síðan og vakir, nætur og daga, en sæðið grær og vex, hann veit ekki með hverjum hætti. Sjálfkrafa ber jörðin ávöxt, fyrst stráið, þá axið og síðan fullvaxið hveiti í axinu. En þá er ávöxturinn er fullþroska lætur hann þegar bera út sigðina því að uppskeran er komin." Mark.4:26-29.
Trúmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.2.2022 | 04:55
Bæn dagsins.
Styrkist nú í Dottni og í krafti máttar hans Ef es.6:10.
Með hverju getur ungur maður haldið vegi sínum hreinum? Með því að gefa gaum að orði þínu.S´´alm.119:9.
Drottinn er í nánd. Fil.4:5.
Trúmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.2.2022 | 20:09
Markúsarguðspjall.
Merking dæmisögunnar
Og Jesús sagir við lærisveinana: ,,Þið skiljið eigi þessa dæmisögu. Hvernig fáið þið þá skilið nokkra dæmisögu? Sáðmaðurinn sáir orðinu.Það hjá götunni, þar sem orðinu er sáð, merkir þá sem heyra en Satan kemur jafnskjótt og tekur burt orðið sem í þá var sáð. Eins það sem sáð var í grýtta jörð, það merkir þá sem taka orðinu með fögnuði um leið og þeir heyra það en hafa enga rótfestu. Þeir eru hvikulir og þegar þrenging verður eða ofsókn vegna orðsins bregðast þeir þegar. Öðru var sáð meðal þyrna. Það merkir þá sem heyra orðið en áhyggjur heimsins, til auðæfanna og aðrar girndir koma til og kefja orðið svo það ber engan ávöxt. Hitt, sem sáð var í góða jörð, merkir þá sem heyra orðið, taka við því og bera þrítugfaldan, sextugfaldan og hundraðfaldan ávöxt." Mark.4:13-20
Trúmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.2.2022 | 04:47
Bæn dagsins.
Látið orð Krists búa ríkulega hjá yður með allri speki. Fræðið og áminnið hver annan með sálmum, lofsöngum og andlegum ljóðum, og syngið Guði sætlega lof í hjörtum yðar. Kól.3:16
Sæll er sá maður, sem stenzt freistingu, því að þegar hann hefir reynzt hæfur, mun hann öðlast kórónu lífsins, sem Guð hefir heitið þeim, er elska hann. Jak.1:12.
Trúmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30 dagar til jóla
Tenglar
Mínir tenglar
- Lindin útvarp
- Bylgjan útvarp
- útvarp saga Útvarp
- Létt Bylgjan Útvarp
heimasíðu
- S Á Á vogur
- AA samtökinn AA á Íslandi
- Hjálpræðisherinn Jesús
- Gospel Ísland
- Glaetan bókakaffi. er í Reykjavík
- manchester united manchester united vefurinn á Íslandi
- Biblían
- Boðunarkirkjan kópavogi
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.11.): 12
- Sl. sólarhring: 18
- Sl. viku: 105
- Frá upphafi: 212156
Annað
- Innlit í dag: 9
- Innlit sl. viku: 82
- Gestir í dag: 9
- IP-tölur í dag: 9
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Nýjustu færslur
- 24.11.2024 Bæn dagsins...
- 23.11.2024 Bæn dagsins...
- 22.11.2024 Bæn dagsins...
- 21.11.2024 Bæn dagsins...
- 20.11.2024 Bæn dagsins...
- 19.11.2024 Bæn dagsins...
- 18.11.2024 Bæn dagsins...
- 17.11.2024 Bæn dagsins...
- 16.11.2024 Bæn dagsins...
- 15.11.2024 Bæn dagsins...
Bloggvinir
- Anna Heiða Harðardóttir
- Aida.
- Kvíðin kona
- Rafn Haraldur Sigurðsson
- Jón Magnússon
- Björgvin Þangbrandur "Birkirmár" Gíslasson
- Sverrir Halldórsson
- Kafteinninn
- Rósa Aðalsteinsdóttir
- Auðun Gíslason
- Guðrún Sæmundsdóttir
- Kristín Ketilsdóttir
- Ragnheiður Katla Laufdal
- Unnur Arna Sigurðardóttir
- Helga Kristjánsdóttir
- Íris María
- Ásdís Rán
- Brynja skordal
- Ágúst Böðvarsson
- Bryndís Böðvarsdóttir
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Rakel Lind
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Aðalbjörn Leifsson
- Myndlistarfélagið
- Helga Nanna Guðmundsdóttir
- Vilborg Traustadóttir
- Jóna Á. Gísladóttir
- Pálmi Gunnarsson
- Sædís Ósk Harðardóttir
- Svavar Alfreð Jónsson
- Eygló Hjaltalín
- Halla Vilbergsdóttir
- Mín veröld
- egvania
- halkatla
- Þórarinn Þ Gíslason
- Bergþóra Árnadóttir - RIP 15.2.48 - 8.3.07
- Svanur Heiðar Hauksson
- Pétur Björgvin
- Ester
- Nancy Drew
- Benna
- Guðrún Olga Clausen
- Inga Lára Helgadóttir
- Agný
- Ólafur Jóhannsson
- Nanna Katrín Kristjánsdóttir
- Helena Leifsdóttir
- Bergþóra Guðmunds
- Valdís Anna Jónsdóttir
- Helga Dóra
- Heiða B. Heiðars
- Blúshátíð í Reykjavík
- Guðný Lára
- Heiður Helgadóttir
- Baldvin Jónsson
- Gunnhildur Hauksdóttir
- Guðfríður Lilja
- Birna G
- Jóhann Helgason
- Ruth
- Mofi
- Heiða
- Sigvarður Hans Ísleifsson
- gudni.is
- Sigríður Jónsdóttir
- Alma Guðmundsdóttir og Freyja Haraldsdóttir
- Grétar Örvarsson
- Jens Guð
- Elísa Ósk Jónsdóttir
- Svava frá Strandbergi
- Óskar Arnórsson
- oktober
- Árni þór
- Jakob Falur Kristinsson
- Hilmar Sæberg Ásgeirsson
- Jóhann Hauksson
- Snorri Óskarsson
- HÉR & NÚ
- Guðbjörg Edda Björgvinsdóttir
- Gunnlaugur Helgason
- Sverrir Stormsker
- Öll lífsins gæði?
- Dagrún Þórný Marínardóttir
- Ágúst Ólafur Ágústsson
- Jón Ingi Cæsarsson
- Sveinn Arnarsson
- Kristján L. Möller
- Karl V. Matthíasson
- Guðríður Arnardóttir
- Lára Stefánsdóttir
- Taflfélagið Hellir
- Bergljót Hreinsdóttir
- Skák.is
- Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir
- Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir
- Ómar Ragnarsson
- Guðmundur St Ragnarsson
- Rannsóknarskýrslan
- Þórdís Ragnheiður Malmquist
- Elma Berglind Stefánsdóttir
- Sigþrúður Þorfinnsdóttir
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- brahim
- Kristin stjórnmálasamtök
- Jón Valur Jensson
- Ásar, Víkingafélag Akureyrar
- Óskar Sigurðsson
- Hugarafl - Valdefling
- Samtök um rannsóknir á ESB ...
- ADHD
- Ragnar Birkir Bjarkarson
- Guðrún Norberg
- Bjarni Harðarson
- Tómas Ibsen Halldórsson