Færsluflokkur: Trúmál og siðferði

orð í dag

13.03.10

Látið orð Krists búa ríkulega hjá yður með allri speki. Fræðið og áminnið hver annan með sálmum, lofsöngum og andlegum ljóðum og syngið Guði sætlega lof í hjörtum yðar. Kól.3:16.

Bæn dagsins:

Ég bið þig Guð að gera mig að farvegi þínum. Ég bið, að ég megi vera farvegur blessunar Guðs til annarra.

Jesús sagði: ,,Ég er upprisan og lífið. Sá sem trúir á mig, mun lifa, þótt hann deyi. Og hver, sem lifir og trúi á mig, mun aldrei að eilífu deyja. Trúir þú þessu?"Já. AMEN. Jóh.11:25-26.

13 mars 2010
Amen

orð í dag

12.03.10

Aftur sendi hann aðra þjóna og mælti: ,,Segið þeim, sem boðnir voru: Veislu mína hef ég búið, uxum mínum og alifé er slátrað, og allt er tilbúið, komið í brúðkaupið. Matt.22:4.

Bæn dagsins:

Ég bið að ég haldi mig við að gera það sem mér virðist rétt. Ég bið, að ég geti hlýtt leiðsögn Guðs, eins og mér tekst að skilja hana.

Þér elskaðir, elskum hver annan, því að kærleikurinn er frá Guði kominn, og hver sá, er elskar, er af Guði fæddur og þekkir Guð.1.Jóh.4:7.

hönd Guðs til þín
Amen

orð í dag

11.03.10

Ekki getið þér drukkið bikar Drottins og bikar illra anda. Ekki getið þér tekið þátt í borðhaldi Drottins og borðhaldi illra anda. Kor.10:21.

Eða eigum vér að reita Drottin til reiði?  Munum vér vera máttugri en hann? Kor.10:22

Skapa í mér hreint hjarta, ó, Guð, og veit mér af nýju stöðugan anda. Sálm.21:12.

16 ágúst 2009
Amen

orð í dag

10.03.10

En það, sem var mér ávinningur, met ég nú vera tjón sakir Krists.  Já meira að segja met ég allt vera tjón hjá þeim yfirburðum að þekkja Krist Jesú, Drottin minn. Sakir hans hef ég misst allt og met það sem sorp, til þess að ég geti áunnið Krist  og reynst vera í honum.  Nú á ég ekki eigið réttlæti, það er fæst af lögmáli, heldur það er fæst fyrir trú á Krist, réttlætið frá Guði með trúnni. Filip.3:7-9.

orð Guðs:

Jesús sagði: ,,Sælla er að gefa en þiggja."Post.20:35.

4636_97520598784_534813784_1870091_4150699_n
Amen

 


Orð í dag

06.03.10

Því að hvar sem tveir eða þrír eru saman komnir í mínu nafni, þar er ég mitt á meðal þeirra." matt.18:20.

Jesús, hann lifir og hann gefur líf

Jesús, hann lifir nú í mér.

29 des 09
Amen

 


AA bókin fjórða prentun 1988

gamla AA bók.1988

REYNSLUSÖGUR

sakleysisleg byrjun:

Hann byrjaði til að vinna bug á feimni í glöðum félagsskap, en missti brátt vald á drykkju sinni, uns yfir vofði að hann missti atvinnu sína eiginkonu og heimili.

átta ára stríð:

Í átta ár var hann dyggur þjónn í liði Bakkusar. Þeirri þjónustu lauk á kleppi með deleríum temens, sem stóð í sjö daga. Síðan eru liðin sextán ár án þess hann hafi bragðað áfengi - AA samtökunum fyrir að þakka.

á ystu nöf:

Hann byrjaði ungur að drekka og kynntist AA samtökunum, en eftir tvö ár tók að læðast að honum sú spurning hvort hann ætti nokkuð heima í þessum samtökum, hvort hann væri nú ekki búinn að læra að drekka. Hann kastaði bjarghringnum og lét sig sökkva - hægt og rólega næstu 11 árin. Þeirri vegferð lauk með 5 daga ,, útilegu" og seinna með margra mánaða vist á geðveikrahæli. Aftur urðu AA samtökin bjarghringur hans og nú telur hann sig hafa öðlast réttan skilning á sjálfum sér og gildi samtakanna fyrir sig og sína líka.

eiginkonan sem drakk heima:

Hún faldi flöskurnar í fatakörfum og kommóðuskúffum. Hún vissi vel hvert stefndi. Í AA komst hún að raun  um, að hún hafði engu tapað en eignast allt.

05.05.2010
BATI

AA bókin fjórða prentun 1988.

gamla AA bók.1988

                            FORMÁLI:

                               fyrir íslensku útgáfunni

Drykkjusýki er sjúkdómur. Sjúkdómur, sem ekki verður læknaður að fullu, aðeins gerður óvirkur. Óvirkur þannig að lifa má eðlilegu lífi meðan áfengis er ekki neytt.  Hver sá maður, sem stendur andspænis ólæknandi sjúkdómi, er grafið hefur undan félagslegri velferð hans og rænt hann stjórn á eigin lífi, er kominn í ógöngur.  Bókin sem hér fer á eftir er vegvísir. Vegvísir saminn af körlum og konum, er komist hafa í ógöngur en fundið úr þeim leið. Leið, sem stendur opin öllum er þurfa og vilja fara hana.

                                                Jóhannes Bergsveinsson

                                                                            læknir.

05.03.2010
BATI

                                                         


AA bók fjórða prentun 1988

gamla AA bók.1988

                            5.kafli.

Hvernig það er í framkvæmd

Sjaldan höfum við vitað til þess að nokkur villtist af leið, sem einarðlega fetaði í spor okkar. Þeir, sem ekki fá bata, eru fólk sem getur ekki, eða vill ekki gefa sig algerlega á vald þessari einföldu stefnu, venjulega karlar og konur, sem eðlis síns vegna er ókleift að vera heiðarleg gagnvart sjálfum sér. Slíkt ógæfufólk er til. Þríverður ekki um kennt. Það virðist vera fætt svona. Það er haldið eðlislægu getuleysi til að skilja og þroska með sér lifnaðarhætti, sem krefjast strangs heiðarleika. Líkur þess fyrir bata eru undir meðallagi. Einnig er til fólk sem þjáist af geðrænum truflunum alvarlegs eðlis, en margir úr þessum hóp geta náð sér, ef þeir hafa eiginleika til að vera heiðarlegir.  Sögur okkar sýna í stórum dráttum hvernig við vorum, hvað gerðist, og hvernig við erum núna. Sért þú viss um að þú viljir eiga hlutdeild í því sem okkur hefur hlotnast og ert reiðubúinn til að ganga eins langt og þarf til þess - þá ertu reiðubúinn að stíga ákveðin spor.  Okkur hraus hugur við sumum þeirra.  Við héldum að við gætum fundið auðveldari og þægilegri leið.  En það gátum við ekki. Við biðjum þig af dýpstu og einlægustu alvöru að ganga óhræddur ýtarlega til verks, strax frá byrjun.  Sum okkar hafa reynt að halda í gamlar hugmyndir með þeim afleiðingum að árangurinn var enginn, þar til við slepptum þeim alveg.  Minnstu þess að það er áfengi sem við erum að glíma við - og það er lævís, óútreiknanlegur og voldugur andstæðingur.  Hjálparlaust ráðum við ekki við það. En einn er það, sem allt vald er gefið, og það er Guð.  Megir þú finna hann núna.  Allt hálfkák reyndist okkur gagnslaust.  Við stóðum á krossgötum. Við fólum okkur skilyrðislaust vernd og umhyggju hans.  Hér eru sporin sem við stigum, og í þeim felast tillögur okkar um leiðina til bata:

1. Við viðurkennum vanmátt okkar gegn áfengi og að okkur var orðið um megn að stjórna eigin lífi.

2. Við fórum að trúa, að æðri máttur gæti gert okkur heilbrigð að nýju.

3. Við tókum þá ákvörðun að leita Guðs og láta vilja okkar og líf lúta handleiðslu hans, samkvæmt skilningi okkar á honum.

4. Við gerðum rækilega og óttalaust siðferðileg reikningsskil í lífi okkar.

5. Við játuðum afdráttarlaust fyrir Guði, sjálfum okkur og trúnaðarmanni yfirsjónir okkar.

6. Við vorum þess albúin að láta Guð lækna allar okkar skapgerðarveilur.

7. Við báðum Guð í auðmýkt að losa okkur við brestina.

8. Við skráðum misgjörðir okkar gegn náunganum og vorum fús til að bæta fyrir þær.

9. Við bættum brot okkar milliliðalaust, svo framarlega sem það særði engan.

10. Við iðkuðum stöðuga sjálfsrannsókn og þegar út af bar, viðurkenndum við yfirsjónir okkar undanbragðalaust.

11. Við leituðumst við með bæn og hugleiðslu, að styrkja vitundarsamband okkar við Guð,  samkvæmt skilningi okkar á honum, og báðum um skilning á því sem okkur var fyrir bestu og mátt til að framkvæma það.

12. Við fundum, að sá árangur, sem náðist  með hjálp reynslusporanna, var andleg vakning og þess vegna reyndum við að flytja öðrum alkóhólistum þennan boðskap og fylgja þessum meginreglum í lífi okkar og starfi.

Mörgum okkar varð að orði: ,,Naumast eru það nú fyrirmælin! þetta tekst mér aldrei." Láttu ekki hugfallast. Engu okkar hefur tekist að fara eftir þessum frumatriðum út í ystu æsar. Við erum ekki dýrlingar. Aðalatriðið er, að við séum fús til að þroskast eftir andlegum leiðum. Frumskilyrðin, sem við höfum skrifað hjá okkur, eru vörður við þroskaleiðina. Við stefnum að andlegri framför frekar en andlegri fullkomnun.  Lýsingar okkar á alkóhólistanum, kaflinn sem skrifaður er fyrir efasemdarmennina og það sem við höfum upplifað sjálf á undan og eftir,  gerir þrjár mikilvægar staðreyndir deginum ljósari:

a) að við vorum alkóhólistar og gátum ekki stjórnað eigin lífi.

b) að sennilega hefði enginn mannlegur máttur getað bjargað okkur frá alkóhólisma.

c) að Guð gat það bæði og vildi, ef við leituðum hans.

05.03.2010
BATI

orð í dag

1.Mars.2010

Ó Ísrael, bið þú Drottins, því að hjá Drottni er miskunn, og hjá honum er gnægð lausnar.  Hann mun leysa Ísrael frá öllum misgjörðum hans. Sálm.130:7-8.

Ég er vegurinn, sannleikurinn og lífið. jóh.14:6.

Sælir eru friðflytjendur, því að þeir munu Guðs börn kallaðir verða. Matt.5:9.

Íslensk þjóð.

Við biðjum þig Drottinn fyrir íslenskri þjóð og fósturjörð, blessa forseta Íslands og ríkisstjórn, alþingi og dómstóla. Gef frið og einingu í þjóðlífinu og gef að viðhorf okkar mótist af vilja þínum, réttlæti og mannúð og lotningu fyrir lífi, í Jesú nafni. Amen

1.Mars.2010
Amen


orð í dag.

28.02.10.

Ákalla mig á degi neyðarinnar, og ég mun frelsa þig, og þú skalt vegsama mig.Sálm.50:15.

Jesús sagði: ,,Elskið óvini yðar, og biðjið fyrir þeim, sem ofsækja yður." Matt. 5:44.

Elsku Jesús.7.maí.2009
Amen

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Gunnlaugur Halldór Halldórsson
Gunnlaugur Halldór Halldórsson

Ég elska Jesús. gunnlaugurh62@gmail.com

91 dagur til jóla

Sept. 2025
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.9.): 8
  • Sl. sólarhring: 16
  • Sl. viku: 98
  • Frá upphafi: 218270

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 76
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu færslur

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.