Bæn dagsins

Skuldið ekki neinum neitt nema það eitt að elska hvert annað því að sá sem elskar náunga sinn hefur uppfyllt lögmálið. Amen. 

Róm 13:8.


Bæn dagsins

Hlusta, Drottinn, á það sem rétt er, hlýð á hróp mitt, ljá eyra bæn minni sem ég flyt falslausum vörum. Amen.

Sálm 17:1


Bæn dagsins

Enda þótt þeim væri refsað að mæti manna eiga þeir vissa von um ódauðleika. Eftir skammvinna hirting munu þeir njóta mikillar gæsku því að Guð reyndi þá og fann að þeir voru honum maklegir. Amen.

Speki Salómons. 3:4-5


Bæn dagsins

En sálir réttlátra eru í hendi Guðs og engin kvöl mun ná til þeirra. Í augum heimskingjanna eru þeir dánir.  Brottför þeirra er talin ógæfa og viðskilnaður þeirra við oss tortíming en þeir eru í friði. Amen.

Speki Salómons 2. 3:2-3.


Bæn dagsins

Ég þakka Guði mínum ávallt er ég minnist þín í bænum mínum því að ég heyri um trú þína á Drottni Jesú og um kærleika þinn til hinna heilögu. Ég bið að það sem þú átt og gefur í trúnni styrki þig til þess að skilja allt hið góða sem veitist í Kristi. Mikla gleði og uppörvun hef ég þegið sakir kærleika þíns því að þú, bróðir, hefur endurnært hjörtu heilagra. Amen.

Bréf Páls til fílemons. 4-7


Bæn dagsins

Ég elskar ykkur, segir Drottinn. En þið spyrjið: ,,Hvernig hefur þú sýnt okkur kærleika þinn?" Amen.

Malakí 1:2


Bæn dagsins

Orð Drottins kom til mín: Mannssonur, farðu með gátu fyrir Ísraelsmenn, flyttu þeim líkingu og segðu: Sog segir Drottinn Guð: 

Stór örn með vítt vænghaf, mikla vængi og þéttan, marglitan fjaðurham kom til Líbanons og svipti toppnum af sedrustrénu. Amen.

Eskíel 17:2-3skálholdkirkja








:


Bæn dagsins

Orð Drottins kom til mín: Hvernig dettur ykkur í hug að taka ykkur þetta orðtak í munn í landi Ísraels: ,,Feðurnir eta súr vínber og synirnir fá sljóar tennur?" Svo sannarlega sem ég lifi, segir Drottinn Guð skal enginn ykkar taka sér þetta orðtak í munn framar í Ísrael. Líf allra manna er mín eign, líf föður  jafnt og líf sonar er mín eign. Aðeins  sá sem syndgar skal deyja. Amen.

Esekíel 18:2-4


Bæn dagsins

Til þín, Drottinn, kalla ég. Eldur hefur sviðið hagaspildur öræfanna og bálið eytt skógum merkurinnar.Jafnvel dýr merkurinnar beina til þín kveinstöfum sínum. Farvegir lækjanna eru þornaðir og eldurinn hefur burt hagaspildur öræfanna. Amen.

Jóel 1:19-20


Bæn dagsins

Ég þakka Guði mínum í hvert skipti sem ég hugsa til ykkar og geri ávallt í öllum bænum mínum með gleði bæn fyrir ykkur öllum vegna samfélags ykkar um fagnaðarerindið frá því þið tókuð við því og allt til þessa. Ég fulltreysti einmitt því að hann, sem byrjaði í ykkur góða verkið, muni fullkomna það allt til dags Jesú Krists. Amen.

Bréf Páls til filip 1:3-6


Bæn dagsins

Þér hafið heyrt að sagt var: þú skalt elska  náunga þinn og hata óvin þinn. En ég segi yður: Elskið óvini yðar og biðjið fyrir þeim sem ofsækja yður. Þannig sýnið þérað þér eruð börn föður yðar á himnum er lætur sól sína renna upp yfir vonda sem góða og rigna yfir réttláta sem rangláta. Þótt þér elskið þá sem yður elska, hver laun eigið þér fyrir það? Gera ekki tollheimtumenn hið sama? Og hvað er það þótt þér heilsið bræðrum yðar og systrum einum? Þ:að gera jafnvel heiðnir menn. Verið því fullkomin eins og faðir yðar himneskur er fullkominn.amen.

Matt 5:43-48.


Bæn dagsins

Og vilji einhver þreyta lög við þig og hafa af þér kyrtil þinn gef honum eftir yfirhöfnina líka. Og neyði einhver þig með sér eina mílu þá far með honum tvær. Gef þeim sem biður þig og snú ekki baki við þeim sem vill fá hjá þér. Amen.

sálm 5:40-42


Bæn dagsins

Þér hafið heyrt að sagt var: Auga fyrir auga og tönn fyrir tönn. En ég segi yður: Rísið ekki gegn þeim sem gerir yður mein. Nei, slái einhver þig á hægri kinn þá bjóð honum einnig hina. AMEN.

Matt 5:38-39


Bæn dagsins

Sæl eruð þér þá er menn smána yður, ofsækja og ljúga á yður öllu illu mín vegna. Gleðjist og fagnið því að laun yðar eru mikil á himnum. Þannig ofsóttu þeir spámennina sem voru á undan yður. Amen.

Matt 5:11-12


Bæn dagsins

Sæli eru friðflytjendur því að þeir munu Guðs börn kallaðir verða. Sælir eru þeir sem ofsóttir eru fyrir réttlætis sakir því að þeirra er himnaríki. AMEN.

Matt.5:9-10


Bæn dagsins

Sælir eru þeir sem hungrar og þyrstir eftir réttlætinu því að þeir munu saddir verða. Sælir eru miskunnsamir því að þeim mun miskunnað verða. Sælir eru hjartahreinir því að þeir munu Guð sjá. AMEN.

matt 5:6-8 


Bæn dagsins

Ég hef Drottin ætíð fyrir augum, þegar hann er mér til hægri handar hnýt ég ekki. Fyrir því fagnar hjarta mitt, hugur minn gleðst og líkami minn hvílist í friði því að þú ofurselur helju ekki líf mitt, sýnir ekki gröfina þeim sem treystir þér. Kunnan gerðir þú mér veg lífsins, gleðignótt er fyrir augliti þínu, yndi í hægri hendi þinni að eilífu. AMEN.

sálm 16:8-11


Bæn dagsins

Varðveit mig, Guð, því að hjá þér leita ég hælis. Ég segi við Drottin: ,,þú ert Drottinn minn, ég á engin gæði nema þig." Á hinum heilögu í landinu og hinum dýrlegu hef ég alla velþóknun mína. Miklar eru þjáningar þeirra sem elta aðra guði. Ég vil ekki dreypa þeirra blóðugu dreypifórnum og ekki taka nöfn þeirra mér í munn. Drottinn, þú ert hlutskipti mitt og minn afmældi bikar, þú heldur uppi hlut mínum. Mér féllu að erfðahlut indælir staðir og arfleifð mín líka mér vel. Ég lofa Drottin sem gefur mér ráð, jafnvel um nætur er ég áminntur hið innra. AMEN.

sálm 16:2-7


Bæn dagsins

Drottinn, hver fær að leita hælis í tjaldi þínu, hver má dveljast á þínu heilaga fjalli? Sá sem gengur í flekkleysi og ástundar réttlæti og talar sannleik af hjarta, sá sem ekki ber út róg með tungu sinni, gerir náunga sínum ekki illt og leiðir ekki skömm yfir nágranna sinn, sá sem fyrirlítur þann sem illa breytir en heiðrar þá sem óttast Drottin, sá sem heldur eiða sína þótt það sé honum til tjóns, sá sem ekki lánar fé sitt gegn vöxtum og þiggur ekki mútur í máli gegn saklausum. Sá sem þetta gerir er óhultur að eilífu. AMEN.

sálm 15:1-5


Bæn dagsins

Drottinn er vörn hinum kúgaða vígi á neyðartímum, þeir sem þekkja nafn þitt treysta þér því að þú, Drottinn, bregst ekki þeim sem til þín leita. AMEN.

sálm 9:10-11


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Gunnlaugur Halldór Halldórsson
Gunnlaugur Halldór Halldórsson

Ég elska Jesús. gunnlaugurh62@gmail.com

92 dagar til jóla

Sept. 2025
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.9.): 5
  • Sl. sólarhring: 22
  • Sl. viku: 92
  • Frá upphafi: 218252

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 71
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu færslur

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband