20.2.2022 | 08:01
Bæn dagsins.
Hvort fær kona gleymt brjóstbarni sínu, að hún miskunni eigi lífsafkvæmi sínu? Og þó að þær gætu gleymt, þá gleymi ég þér samt ekki. Sjá, ég hefi rist þig í lófa míns. Jes.49:15-16.
Treystu Drottni af öllu hjarta, en reiddu þig ekki á eigið hyggjuvit. Orðskv.3.5.
Meistarinn er hér og vill finna þig. Jóh.11:28.
Trúmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.2.2022 | 21:57
Markúsarguðspjall.
Mannssonurinn á margt að líða
Þá tók Jesús að kenna þeim: ..Mannssonurinn á margt að líða. Öldungarnir, æðstu prestarnir og fræðimennirnir munu útskúfa honum. Menn munu lífláta hann en hann mun upp rísa eftir þrjá daga." Þetta sagði Jesús berum orðum. En Pétur tók hann á einmæli og fór að átelja hann. Jesús sneri sér við, leit til lærisveina sinna, ávítaði Pétur og sagði: ,,Vík frá mér Satan, eigi hugsar þú um það sem Guðs er heldur það sem manna er." Og Jesús kallaði til sín mannfjöldann ásamt lærisveinum sínum og sagði: ,, Hver sem vill fylgja mér afneiti sjálfum sér, taki kross sinn og fylgi mér. Því að hver sem vill bjarga lífi sínu mun týna því og hver sem týnir lífi sínu vegna mín og fagnaðarerindisins mun bjarga því. Hvað stoðar það manninn að eignast allan heiminn en glata sálu sinni? Eða hvað gæti maður látið til endurgjalds fyrir sálu sína? þegar Mannssonurinn kemur í dýrð föður síns með heilögum englum mun hann blygðast sín fyrir hvern þann sem blygðast sín fyrir mig hjá þessari ótrúu og syndugu kynslóð." Mark.8:31-38.
Og Jesús sagði: ,,Sannlega segi ég ykkur: Nokkrir þeirra sem hér standa munu eigi deyja fyrr en þeir sjá Guðs ríki komið með krafti." Mark.9.
Trúmál | Breytt s.d. kl. 22:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.2.2022 | 19:31
Markúsarguðspjall.
Blindur fær sýn
Þeir koma nú til Betsaídu. Þar færa menn til Jesú blindan mann og biðja að hann snerti hann. Hann tók í hönd hins blinda, leiddi hann út úr þorpinu, skyrpti í augu hans, lagði hendur yfir hann og spurði: ,,Sérðu nokkuð?" Hann leit upp og mælti: ,, Ég sé menn, ég greini þá líkt og tré, þeir ganga." Þá lagði Jesús aftur hendur yfir augu hans og nú sá hann skýrt, varð albata og gat greint allt. Jesús sendi hann síðan heim til sín og sagði: ,,Inn í þorpið máttu ekki fara."
Játning Péturs
Jesús fór nú ásamt lærisveinum sínum til þorpanna hjá Sesareu Filippí. Á leiðinni spurði hann lærisveina sína: ,,Hvern segja menn mig vera?" Þeir svöruðu honum: ,,Jóhannes skírara, aðrir Elía og aðrir einn af spámönnunum." Og hann spurði þá: ,,En þið, hvern segið þið mig vera? Pétur svaraði honum: ,,Þú ert Kristur." Og hann lagði ríkt á við þá að segja engum frá sér. Mark.8:22-30.
Trúmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.2.2022 | 08:29
Bæn dagsins.
Jesús sagði: ,,Hver, sem vill fylgja mér, afneiti sjálfum sér, taki kross sinn daglega og fylgi mér." Lúk.9:23.
Af náð eruð þér hólpnir orðnir fyrir trú. Þetta er ekki yður að þakka. Það er Guðs gjöf. Ekki byggt á verkum, enginn skal geta miklast af því. Efes. 2:8-9.
Treyst Drottni og gjör gott, bú þú í landinn og iðka ráðvendni, þá munt þú gleðjast yfir Drottni, og hann mun veita þér það, sem hjarta þitt girnist. Sálm.37:3-4.
Trúmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.2.2022 | 04:43
Bæn dagsins.
Lát engan líta smáum augum á æsku þína, en ver fyrirmynd trúaðra, í orði, í hegðun, í kærleika, í trú, í hreinleika. 1. Tím. 4:12.
Jesús sagði: ,, Biðjið, og yður mun gefast, leitið, og þér munuð finna, knýið á, og fyrir yður mun upp lokið verða." Matt.7:7.
Svo mælti Drottinn: Nemið staðar við vegina og litist um og spyrjið um gömlu göturnar, hver sé hamingjuleiðin, og farið hana, svo að þér finnið sálum yðar hvíld. Jer.6:16.
Trúmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.2.2022 | 21:15
Markúsarguðspjall.
Súrdeig farísea
Lærisveinarnir höfðu gleymt að taka brauð, höfðu ekki nema eitt brauð með sér í bátnum. Jesús áminnti þá og sagði: ,,Gætið ykkar, varist súrdeig farísea og súrdeig Heródísar." En þeir ræddur sín á milli að þeir hefðu ekki brauð. Jesús varð þess vís og sagir við þá: ,,Hvað eruð þið að tala um að þið hafið ekki brauð? Skynjið þið ekki enn né skiljið? Eru hjörtu ykkar sljó? Þið hafið augu, sjáið þið ekki? Þið hafið eyru, heyrið þið ekki? Eða munið þið ekki? Þegar ég braut brauðin fimm handa fimmþúsundum, hve margar körfur fullar af brauðbitum tókuð þið saman?" Þeir svara honum: ,,Tólf." ,,Eða brauðin sjö handa fjórum þúsundunnum, hve margar körfur fullar af brauðbitum tókuð þið þá saman?" Þeir svara: ,,Sjö." Og Jesús sagði við þá: ,, Skiljið þið ekki enn?" Mark.8:14-21
Trúmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.2.2022 | 04:44
Bæn dagsins.
Jesús sagði: ,,Allt vald er mér gefið á himni og jörðu. Farið því og gjörið allar þjóðir, að lærisveinum, skírið þá í nafni föður, sonar og heilags anda, og kennið þeim að halda allt það, sem ég hefi boðið yður." Matt.28:18-20.
Ég er almáttugur Guð. Gakk þú fyrir mínu augliti og ver grandvar. 1.Mós. 17:1
Minnist bandingjanna, sem væruð þér sambandingjar þeirra. Minnist þeirra, er illt líða, þar sem þér sjálfir eruð einnig með líkama. Heb.13.3.
Trúmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.2.2022 | 21:39
Markúsarguðspjall.
Skiljið þig ekki enn?
Um þessa mundir bar enn svo við að mikill mannfjöldi var saman kominn og hafði ekkert til matar.Jesús kallar þá til sín lærisveinana og sagir við þá: ,, Ég kenni í brjósti um mannfjöldann. Menn hafa nú verið hjá mér þrjá daga og hafa ekkert til matar. Láti ég þá fara fastandi heim til sín örmagnast þeir á leiðinni en sumir þeirra eru langt að." Þá svöruðu lærisveinarnir: ,,Hvar er hægt að fá brauð til að metta þetta fólk hér í óbyggðum?" Hann spurði þá: ,,Hve mörg brauð hafið þið?" Þeir sögðu: ,,Sjö." Þá bauð Jesús fólkinu að setjast á jörðina, tók brauðin sjö, gerði þakkir og braut þau og gaf lærisveinum sínum að þeir bæru þau fram. En þeir báru þau fram fyrir fólkið. Þeir höfðu og fáeina smáfiska. Hann bað Guð að blessa þá og bauð að einnig þeir skyldu bornir fram. Menn neyttu og urðu mettir. Síðan tóku lærisveinarnir saman leifarnar, sjö körfur. En þar voru um fjögur þúsund manns. Síðan lét hann fólkið fara. Og hann sté þegar í bátinn með lærisveinum sínum og kom í Dalmanútabyggðir. Þangað komu farísear og tóku að þrátta við Jesú, þeir vildu freista hans og kröfðu hann um tákn af himni. Hann andvarpaði þungan og mælti: ,,Hví heimtar þessi kynslóð tákn? Sannlega segi ég ykkur: Þessari kynslóð verður alls ekki gefið tákn." Hann skildi síðan við þá, sté aftur í bátinn og fór yfir um. Mark.8:1-13.
Trúmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.2.2022 | 04:41
Bæn dagsins
Drottinn er minn hjálpari, eigi mun ég óttast. Hvað geta mennirnir gjört mér? Heb.13:6.
Ég fulltreysti einmitt því, að Guð, sem byrjaði í yður góða verkið, muni fullkomna það allt til dags Jesú Krists. Fil.1.6.
Guði séu þakkir, sem gefur oss sigurinn fyrir Drottin vorn Jesúm Krist! 1.kor.15:57.
Trúmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.2.2022 | 04:44
Bæn dagsins
Drottinn agar þann, sem hann elskar, og hirtir harðlega hvern þann son, er hann að sér tekur. Þolið aga. Heb.12:6-7.
Ef Guð er með oss, hver er þá á móti oss? Róm.8:31.
Trúmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.2.2022 | 04:48
Bæn dagsins
Guð er enginn hlutur um megn. Lúk.1:37.
Hjálp vor er fólgin í nafni Drottins, skapara himins og jarðar. Sálm. 124:8.
Kenn oss að telja daga vora, að vér megum öðlast viturt hjarta Sálm.90:12.
Trúmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.2.2022 | 20:54
Markúsarguðspjall.
Allt gerir hann vel
Síðan hélt Jesús úr Týrusarbyggðum, um Sídon og yfir Dekapólisbyggðir miðjar til Galíleuvatns. Þá færa menn til hans daufan og málhaltan mann og biðja hann að leggja hönd sína yfir hann. Jesús leiddi hann afsíðis frá fólkinu, stakk fingrum sínum í eyru honum og vætti tungu hans með munnvatni sínu. Þá leit hann upp til himins, andvarpaði og sagði við hann: ,,Effaþa," það er:Opnist þú. Og eyru hans opnuðust og haft tungu hans losnaði og hann talaði skýrt. Jesús bannaði þeim að segja þetta neinum en svo mjög sem hann bannaði þeim því frekar sögðu þeir frá því. Menn undruðust mjög og sögðu: ,,Allt gerir hann vel, daufa lætur hann heyra og mállausa mæla." Mark.7:31-37.
Trúmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.2.2022 | 11:17
Bæn dagsins.
Hann, sem þyrmdi ekki sínum eigin syni, heldur framseldi hann fyrir oss alla, hví skyldi hann ekki líka gefa oss allt með honum? Róm.8:32
Sá, sem trúir á soninn, hefir eilíft líf, en sá, sem óhlýðnast syninum, mun ekki sjá lífið, heldur varir reiði Guðs yfir honum. Jóh.3:36.
Gjörið iðrun, himnaríki er í nánd. Matt.4:17.
Trúmál | Breytt s.d. kl. 11:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
12.2.2022 | 20:21
Markúsarguðspjall.
Eigi fékk hann dulist
Jesús tók sig upp þaðan og hélt til byggða Týrusar. Þar fór hann inn í hús og vildi engan láta vita. En eigi fékk hann dulist. Kona ein frétti þegar af honum og kom og féll honum til fóta en dóttir hennar hafði óhreinan anda. Konan var heiðin, ættuð úr Fönikíu sýrlensku. Hún bað Jesú að reka illa andann út af dóttur sinni. Hann sagði við hanna: ,,Lofaðu börnunum að seðjast fyrst, ekki sæmir að taka brauð barnanna og kasta því fyrir hundana." Hún svaraði honum: ,,Satt er það, herra, þó eta hundarnir undir borðinu af molum barnanna." Og Jesús sagði við hana: ,,Vegna þessara orða skaltu heim snúa, illi andinn er farinn úr dóttir þinni." Hún fór heim, fann barnið liggjandi á rúminu og illi andinn var farinn. Mark.7:24-30.
Trúmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.2.2022 | 07:49
Bæn dagsins.
Þá heyrði ég raust Drottins. Hann sagði: ,,Hvern skal ég senda? Hver vill vera erindreki vor?" Og ég sagði: ,,Hér er ég,send þú mig!" Jes.6:8
Mannssonurinn er ekki kominn til þess að láta þjóna sér, heldur til að þjóna og gefa líf sitt til lausnargjalds fyrir marga Matt. 20.28.
Fel þú Drottni verk þín, þá mun áformum þínum framgangt verða. Orðskv. 16:3.
Trúmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.2.2022 | 21:30
Markúsarguðspjall.
Hið ytra og innra
Nú safnast að Jesú farísear og nokkrir fræðimenn, komnir frá Jerúsalem. Þeir sáu að sumir lærisveina hans neyttu matar með vanhelgum, það er óþvegnum, höndum. En farísear, og reyndar Gyðingar allir, eta ekki nema þeir þvoi hendur sínar og fylgja þannig erfðavenju forfeðra sinna. Og ekki neyta þeir matar þegar þeir koma frá torgi nema þeir hreinsi sig áður. Þeir fara einnig eftir mörgum öðrum fyrirmælum sem þeim hefur verið kennt, svo sem að hreinsa bikara, könnur og eirkatla. Farísearnir og fræðimennirnir spyrja hann: ,,Hvers vegna fylgja lærisveinar þínir ekki erfðavenju forfeðranna heldur neyta matar með vanhelgum höndum?" Jesús svarar þeim: ,,Sannspár var Jesaja um ykkur hræsnara þar sem ritað er: Þessir menn heiðra mig með vörunum en hjarta þeirra er langt frá mér. Til einskis dýrka þeir mig því að þeir kenna það eitt sem menn hafa samið. Þið hafnið boðum Guðs en haldið erfikenning manna." Enn sagði Jesús við þá: ,,Listavel gerið þið að engu boðorð Guðs svo þig getið rækt erfikenning ykkar. Móse sagði: Heiðra föður þinn og móður þína, og Hver sem formælir föður eða móður skal deyja. En þið segið: Ef maður segir við föður sinn eða móður: það sem ég hefði átt að styrkja þig með er korban ég gef það til musterisins, þá leyfið þið honum ekki framar að gera neitt fyrir föður sinn eða móður. Þannig látið þið erfikenning ykkar, sem þið fylgið, ógilda orð Guðs. Og margt annað gerið þið þessu líkt."Aftur kallaði Jesús til sín mannfjöldann og sagði: ,,Heyrið mig öll og skiljið. Ekkert er það utan mannsins er saurgi hann þótt inn í hann fari. Hitt saurgar manninn sem út frá honum fer. Ef einhver hefur eyru að heyra, hann heyri! Þegar Jesús var kominn inn frá fólkinu spurðu lærisveinar hans hann um líkinguna. Og hann sagir við þá: ,,Eruð þið einnig svo skilningslausir? Skiljið þið ekki að ekkert sem fer inn í manninn utan frá getur saurgað hann? því að ekki fer það inn í hjarta hans heldur maga og út síðan í safnþróna. Þannig lýsti hann alla fæðu hreina. Og hann sagði: ,,Það sem fer út frá manninum það saurgar manninn. Því að innan frá, úr hjarta mannsins, koma hinar illu hugsanir, saurlifnaður, þjófnaður, manndráp, hórdómur, ágirnd, illmennska, sviksemi, taumleysi, öfund, lastmælgi, hroki, heimska. Allt þetta illa kemur innan að og saurgar manninn." Mark.7:2-23.
Trúmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
11.2.2022 | 04:42
Bæn dagsins.
Öllum þeim, sem tóku við honum (Jesú), gaf hann rétt til að verða Guðs börn, þeim er trúa á nafn hans. Jóh.1:12.
Varpa áhyggjum þínum á Drottin, hann mun bera umhyggju fyrir þér, hann mun eigi að eilífu láta réttlátan mann verða valtan á fótum. Sálm.55:23.
Um Krist: ,,Vér mátum hann einskis. En vorar þjáningar voru það, sem hann bar, og vor harmkvæli, er hann á sig lagði." Jes.53:3-4.
Trúmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.2.2022 | 21:01
Markúsarguðspjall.
Það var ég
Tafarlaust knúði Jesús lærisveina sína að fara í bátinn og halda á undan yfir Betsaídu meðan hann sendi fólkið brott. Og þá er hann hafði kvatt það fór hann til fjalls að biðjast fyrir. Þegar kvöld var komið var báturinn á miðju vatni en Jesús einn á landi. Hann sá að þeim var þungur róðurinn því að vindur var á móti þeim og er langt var liðið nætur kemur hann til þeirra gangandi á vatninu og ætlar fram hjá þeim. Þegar þeir sáu Jesú ganga á vatninu hugðu þeir að það færi vofa og æptu upp yfir sig. Því að allir sáu þeir hann og urðu skelfdir. En. Jesús mælti jafnskjótt til þeirra: ,,verið hughraustir, það er ég, verið óhræddir. Og hann sté í bátinn til þeirra og lægði þá vindinn. Og þeir urðu öldungis agndofa enda höfðu þeir ekki skilið það sem gerst hafði með brauðin, hjörtu þeirra voru blind.
ÞEIR URÐU HEILIR
Þegar þeir höfðu náð yfir um komu þeir að landi við Genesaret og lögðu það að. Um leið og þeir stigu úr bátnum þekku menn Jesú. Og fólk tók að steypa fram og aftur um allt það hérað og bera sjúklinga í burðarrekkjum hvert þangað sem það heyrði að hann væri. Og hvar sem Jesús kom í þorp, borgir eða bæi lögðu menn sjúka á torgin og báðu hann að þeir fengju rétt að snerta fald klæða hans og allir þeir sem snertu hann urðu heilir. Mark.6:45-56
Trúmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
10.2.2022 | 04:46
Bæn dagsins.
Jesús sagði: ,,Hver, sem vill fylgja mér, afneiti sjálfum sér, taki kross sinn daglega og fylgi mér." Lúk.9:23.
Drottinn er góður, athvarf á degi neyðarinnar, og hann þekkir þá, sem treysta honum. Nahúm.1:7.
Hjálp mín kemur frá Drottni, skapara himins og jarðar. Sálm. 121:2.
Trúmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.2.2022 | 04:51
Bæn dagsins.
Vísa mér veg þinn,Drottinn, lát mig ganga í sannleika þínum, gef mér heilt hjarta, að ég tigni nafn þitt. sálm.86:11.
Þann, sem þekkti ekki synd, gjörði hann að synd vor vegna, til þess að vér skyldum verða réttlæti Guðs í honum. 2.Kor.5:21.
Ég fyrirverð mig ekki fyrir fagnaðarerindið. Það er kraftur Guðs til hjálpræðis hverjum þeim, sem trúir. Róm.1:16.
Trúmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
180 dagar til jóla
Tenglar
Mínir tenglar
- Lindin útvarp
- Bylgjan útvarp
- útvarp saga Útvarp
- Létt Bylgjan Útvarp
heimasíðu
- S Á Á vogur
- AA samtökinn AA á Íslandi
- Hjálpræðisherinn Jesús
- Gospel Ísland
- Glaetan bókakaffi. er í Reykjavík
- manchester united manchester united vefurinn á Íslandi
- Biblían
- Boðunarkirkjan kópavogi
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (27.6.): 0
- Sl. sólarhring: 25
- Sl. viku: 106
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 71
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Nýjustu færslur
- 26.6.2025 Bæn dagsins...
- 25.6.2025 Bæn dagsins...
- 24.6.2025 Bæn dagsins...
- 23.6.2025 Bæn dagsins...
- 22.6.2025 Bæn dagsins...
- 21.6.2025 Bæn dagsins...
- 20.6.2025 Bæn dagsins...
- 19.6.2025 Bæn dagsins...
- 18.6.2025 Bæn dagsins...
- 17.6.2025 Bæn dagsins...
Bloggvinir
-
Anna Heiða Harðardóttir
-
Auðun Gíslason
-
Rósa Aðalsteinsdóttir
-
Kvíðin kona
-
Páll Vilhjálmsson
-
Aðalbjörn Leifsson
-
ADHD
-
Helena Leifsdóttir
-
Agný
-
Ágúst Ólafur Ágústsson
-
Guðrún Sæmundsdóttir
-
Alma Guðmundsdóttir og Freyja Haraldsdóttir
-
Aida.
-
Árni þór
-
Ásdís Rán
-
Bryndís Böðvarsdóttir
-
Baldvin Jónsson
-
Bergþóra Guðmunds
-
Bergljót Hreinsdóttir
-
Benna
-
Bergþóra Árnadóttir - RIP 15.2.48 - 8.3.07
-
Birna G
-
Guðbjörg Edda Björgvinsdóttir
-
Guðrún Olga Clausen
-
Bjarni Harðarson
-
Blúshátíð í Reykjavík
-
brahim
-
Helga Kristjánsdóttir
-
Hilmar Sæberg Ásgeirsson
-
egvania
-
Ester
-
Elma Berglind Stefánsdóttir
-
Jóhann Helgason
-
Dagrún Þórný Marínardóttir
-
Eygló Hjaltalín
-
Grétar Örvarsson
-
Svanur Heiðar Hauksson
-
Samtök um rannsóknir á ESB ...
-
Brosveitan - Pétur Reynisson
-
Halla Vilbergsdóttir
-
gudni.is
-
Guðríður Arnardóttir
-
Guðrún Norberg
-
Gunnlaugur Helgason
-
Ágúst Böðvarsson
-
halkatla
-
Sverrir Halldórsson
-
Heiða
-
Heiður Helgadóttir
-
Helga Dóra
-
Þórarinn Þ Gíslason
-
Helga Nanna Guðmundsdóttir
-
Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir
-
Taflfélagið Hellir
-
Hugarafl - Valdefling
-
Óskar Arnórsson
-
Nancy Drew
-
Inga Lára Helgadóttir
-
Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir
-
Svava frá Strandbergi
-
Vilborg Traustadóttir
-
Íris María
-
Jakob Falur Kristinsson
-
Jens Guð
-
Jóhann Hauksson
-
Jóna Á. Gísladóttir
-
Kafteinninn
-
Jón Ingi Cæsarsson
-
Jón Magnússon
-
Pétur Björgvin
-
Jón Valur Jensson
-
Karl V. Matthíasson
-
Elísa Ósk Jónsdóttir
-
Kristín Ketilsdóttir
-
Mín veröld
-
Þórdís Ragnheiður Malmquist
-
Kristin stjórnmálasamtök
-
Ómar Ragnarsson
-
Kristján L. Möller
-
Lára Stefánsdóttir
-
Lára Hanna Einarsdóttir
-
Guðný Lára
-
Mofi
-
Guðmundur St Ragnarsson
-
Myndlistarfélagið
-
Nanna Katrín Kristjánsdóttir
-
oktober
-
Ólafur Jóhannsson
-
Öll lífsins gæði?
-
Gunnhildur Hauksdóttir
-
Pálmi Gunnarsson
-
Rafn Haraldur Sigurðsson
-
Ragnar Birkir Bjarkarson
-
Rakel Lind
-
Rannsóknarskýrslan
-
Ragnheiður Katla Laufdal
-
Ruth
-
Sædís Ósk Harðardóttir
-
Sigvarður Hans Ísleifsson
-
Sigríður Jónsdóttir
-
Skák.is
-
Óskar Sigurðsson
-
Heiða B. Heiðars
-
Brynja skordal
-
Snorri Óskarsson
-
HÉR & NÚ
-
Sigþrúður Þorfinnsdóttir
-
Sverrir Stormsker
-
Svavar Alfreð Jónsson
-
Sveinn Arnarsson
-
Björgvin Þangbrandur "Birkirmár" Gíslasson
-
Tómas Ibsen Halldórsson
-
Valdís Anna Jónsdóttir
-
Unnur Arna Sigurðardóttir
-
Guðfríður Lilja
-
Ásar, Víkingafélag Akureyrar
-
Guðsteinn Haukur Barkarson