Bloggfærslur mánaðarins, maí 2022
3.5.2022 | 04:48
Bæn dagsins.
Elska skalt þú Drottin, Guð þinn, af öllu hjarta þínu, allri sálu þinni og öllum huga þínum. Matt 22:37.
Trúmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.5.2022 | 22:09
Bréfið til Hebrea 11.
Fyrir trú
Trúin er fullvissa um það sem menn vona, sannfæring um þá hluti sem eigi er auðið að sjá. Fyrir trú hlutu mennirnir fyrr á tíðum velþóknun Guðs. Fyrir trú skiljum við að Guð skapaði heimana með orði sínu og að hið sýnilega varð til af hinu ósýnilega. Fyrir trú bar Abel fram fyrir Guð betri fórn en Kain af því að hann treysti Guði, og fyrir trú fékk hann þann vitnisburð að hann væri réttlátur er Guð bar vitni um fórn hans. Með trú sinni hann enn þótt dáinn sé. Fyrir trú var Enok burt numinn til þess að hann skyldi ekki deyja eins og ritað er: ,,Ekki var hann framar að finna af því að Guð hafði numið hann burt." Áður en hann var burt numinn hafði hann fengið þann vitnusburð ,,að hann hefði verið Guði þóknanlegur". Ógerlegt er að þóknast Guði án trúar því að sá sem vill nálgast Guð verður að trúa því að hann sé til og hann umbuni þeim er leita hans. Bréf/Hebrea 11:1-6.
Trúmál | Breytt s.d. kl. 22:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.5.2022 | 05:00
Bæn dagsins.
Kristur Jesús tók á sig mein vor og bar sjúkdóma vora. Matt.8:17.
Trúmál | Breytt s.d. kl. 05:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.5.2022 | 08:25
Bréfið til Hebrea 10.
Ný og lifandi vegur
Vegna þess að Jesús úthellti blóði sínu megum við nú, systkin, með djörfung ganga inn í hið heilaga. Þangað vígði hann okkur veginn, nýjan veg lífsins inn í gegnum fortjaldið sem er líkami hans. Við höfum mikinn prest yfir húsi Guðs. Göngum því fram fyrir Guð með einlægum hjörtum, í öruggu trúartrausti, með hjörtum sem hreinsuð hafa verið og eru laus við meðvitund um synd, og með líkömum sem laugaðir hafa verið í hreinu vatni. Höldum fast við játningu vonar okkar án þess að hvika því að trúr er sá sem fyrirheitið hefur gefið. Gefum gætur hvert að öðru og hvetjum hvert annað til kærleika og góðra verka. Vanrækið ekki safnaðarsamkomur ykkar eins og sumra er siður heldur uppörvið hvert annað og það því fremur sem þið sjáið að dagurinn færist nær. Því að ef við syndgum af ásettu ráði, eftir að hafa öðlast þekkingu á sannleikanum, þá er úr því enga fórn að fá fyrir syndirnar heldur er það óttaleg bið eftir dómi og heitum eldi sem eyða mun andstæðingum Guðs. Sá er að engu hefur lögmál Móse verður vægðarlaust líflátinn ef tveir eða þrír vottar bara. Hve miklu þyngri hegning ætlið þið þá ekki að sá muni vera talinn verðskulda er fyrirlítur son Guðs og metur einskis blóðið, sem sáttmálinn var grundvallaður á, og smánar anda náðarinnar? Við þekkjum þann er sagt hefur: ,,Mín er hefndin, ég mun endurgjalda.." Og á öðrum stað : ,,Drottinn mun dæma lýð sinn." óttalegt er að falla í hendur lifanda Guðs. Minnist fyrri daga, er þið höfðuð tekið á móti ljósinu, hvernig þið stóðust miklar þrengingar. Það var ýmist að þið sjálf, smánuð og aðþrengd, voruð höfð að augnagamni eða þá hitt að þið tókuð þátt í kjörum þeirra er áttu slíku að sæta. Þið þjáðust með bandingjum og tókuð því með gleði er þið voruð rænd eignum ykkar því að þið vissuð að þið áttuð sjálf betri eign og varanlega. Varpið því eigi frá ykkur djörfung ykkar. Hún mun hljóta mikla umbun. þolgæðis hafið þið þörf, til þess að þið gerið Guðs vilja og öðlist fyrirheitið. Því að:
Innan harla skamms tíma mun sá koma sem koma á og ekki dvelst honum. Minn réttláti mun lifa fyrir trúna en skjóti hann sér undan þá hefur sála mín ekki velþóknun á honum.
En við skjótum okkur ekki undan og glötumst heldur trúum við og frelsumst. Bréf/Hebrea 10:19-39.
Trúmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.5.2022 | 06:55
Bæn dagsins.
Hver sá,sem ákallar nafn Drottins, mun frelsast. Post.2:21.
Trúmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
33 dagar til jóla
Tenglar
Mínir tenglar
- Lindin útvarp
- Bylgjan útvarp
- útvarp saga Útvarp
- Létt Bylgjan Útvarp
heimasíðu
- S Á Á vogur
- AA samtökinn AA á Íslandi
- Hjálpræðisherinn Jesús
- Gospel Ísland
- Glaetan bókakaffi. er í Reykjavík
- manchester united manchester united vefurinn á Íslandi
- Biblían
- Boðunarkirkjan kópavogi
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 15
- Sl. sólarhring: 15
- Sl. viku: 108
- Frá upphafi: 212111
Annað
- Innlit í dag: 11
- Innlit sl. viku: 80
- Gestir í dag: 10
- IP-tölur í dag: 10
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Nýjustu færslur
- 21.11.2024 Bæn dagsins...
- 20.11.2024 Bæn dagsins...
- 19.11.2024 Bæn dagsins...
- 18.11.2024 Bæn dagsins...
- 17.11.2024 Bæn dagsins...
- 16.11.2024 Bæn dagsins...
- 15.11.2024 Bæn dagsins...
- 14.11.2024 Bæn dagsins...
- 13.11.2024 Bæn dagsins...
- 12.11.2024 Bæn dagsins...
Bloggvinir
- Anna Heiða Harðardóttir
- Aida.
- Kvíðin kona
- Rafn Haraldur Sigurðsson
- Jón Magnússon
- Björgvin Þangbrandur "Birkirmár" Gíslasson
- Sverrir Halldórsson
- Kafteinninn
- Rósa Aðalsteinsdóttir
- Auðun Gíslason
- Guðrún Sæmundsdóttir
- Kristín Ketilsdóttir
- Ragnheiður Katla Laufdal
- Unnur Arna Sigurðardóttir
- Helga Kristjánsdóttir
- Íris María
- Ásdís Rán
- Brynja skordal
- Ágúst Böðvarsson
- Bryndís Böðvarsdóttir
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Rakel Lind
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Aðalbjörn Leifsson
- Myndlistarfélagið
- Helga Nanna Guðmundsdóttir
- Vilborg Traustadóttir
- Jóna Á. Gísladóttir
- Pálmi Gunnarsson
- Sædís Ósk Harðardóttir
- Svavar Alfreð Jónsson
- Eygló Hjaltalín
- Halla Vilbergsdóttir
- Mín veröld
- egvania
- halkatla
- Þórarinn Þ Gíslason
- Bergþóra Árnadóttir - RIP 15.2.48 - 8.3.07
- Svanur Heiðar Hauksson
- Pétur Björgvin
- Ester
- Nancy Drew
- Benna
- Guðrún Olga Clausen
- Inga Lára Helgadóttir
- Agný
- Ólafur Jóhannsson
- Nanna Katrín Kristjánsdóttir
- Helena Leifsdóttir
- Bergþóra Guðmunds
- Valdís Anna Jónsdóttir
- Helga Dóra
- Heiða B. Heiðars
- Blúshátíð í Reykjavík
- Guðný Lára
- Heiður Helgadóttir
- Baldvin Jónsson
- Gunnhildur Hauksdóttir
- Guðfríður Lilja
- Birna G
- Jóhann Helgason
- Ruth
- Mofi
- Heiða
- Sigvarður Hans Ísleifsson
- gudni.is
- Sigríður Jónsdóttir
- Alma Guðmundsdóttir og Freyja Haraldsdóttir
- Grétar Örvarsson
- Jens Guð
- Elísa Ósk Jónsdóttir
- Svava frá Strandbergi
- Óskar Arnórsson
- oktober
- Árni þór
- Jakob Falur Kristinsson
- Hilmar Sæberg Ásgeirsson
- Jóhann Hauksson
- Snorri Óskarsson
- HÉR & NÚ
- Guðbjörg Edda Björgvinsdóttir
- Gunnlaugur Helgason
- Sverrir Stormsker
- Öll lífsins gæði?
- Dagrún Þórný Marínardóttir
- Ágúst Ólafur Ágústsson
- Jón Ingi Cæsarsson
- Sveinn Arnarsson
- Kristján L. Möller
- Karl V. Matthíasson
- Guðríður Arnardóttir
- Lára Stefánsdóttir
- Taflfélagið Hellir
- Bergljót Hreinsdóttir
- Skák.is
- Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir
- Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir
- Ómar Ragnarsson
- Guðmundur St Ragnarsson
- Rannsóknarskýrslan
- Þórdís Ragnheiður Malmquist
- Elma Berglind Stefánsdóttir
- Sigþrúður Þorfinnsdóttir
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- brahim
- Kristin stjórnmálasamtök
- Jón Valur Jensson
- Ásar, Víkingafélag Akureyrar
- Óskar Sigurðsson
- Hugarafl - Valdefling
- Samtök um rannsóknir á ESB ...
- ADHD
- Ragnar Birkir Bjarkarson
- Guðrún Norberg
- Bjarni Harðarson
- Tómas Ibsen Halldórsson