Bloggfærslur mánaðarins, mars 2022

Bæn dagsins.

Hjálp vor er fólgin í nafni Drottins, skapara himins og jarðar. Sálm.124:8.

Óttist aðeins og þjónið honum trúlega af öllu hjarta yðar, því sjáið,hversu mikið hann hefir fyrir yður gjört. 1. Sam.12:24

Ákalla mig á degi neyðarinnar, og ég mun  frelsa þig, og þú skalt vegsama mig. Sálm.50:15.


Markúsarguðspjall.

Sumar í nánd

Nemið líkingu af fíkjutrénu. Þegar greinar þess fara að mýkjast og laufið að springa út, þá vitið þér að sumar er í nánd. Eins skuluð þér vita,þegar þér sjáið þetta verða, að endirinn er í nánd, fyrir dyrum. Sannlega segi ég yður: Þessi kynslóð mun ekki líða undir lok uns allt þetta er komið fram. 

Himinn og jörð munu líða undir lok en orð mín munu aldrei undir lok líða. Mark.13:28-31.


Markúsarguðspjall.

Mannssonurinn kemur

En á þeim dögum, eftir þrenging þessa,

mun sólin sortna og tunglið hætta að skína.

Stjörnurnar munu hrapa af himni og festingin riðlast.

Þá munu menn sjá Mannssoninn koma í skýjum með miklum mætti og dýrð. Og hann mun senda út englana og safna sínum útvöldu úr áttunum fjórum, frá skautum jarðar til himinskauta. Mark.13:24-27.


Bæn dagsins.

Jesús sagði: ,,Hver, sem gjörir vilja föður míns, sem er á himnum, sá er bróðir minn, systir og móðir." Matt.12:50.

Jesús sagði: ,,Hverja þá bæn, sem tveir yðar verða einhuga um á jörðu, mun faðir minn á himnum veita þeim." Matt.18:19.

Allt megna ég fyrir hjálp hans, sem mig styrkan gjörir. Fil.4:13.


Markúsarguðspjall.

Verið vör um yður

Gætið að sjálfum yður. Menn munu draga yður fyrir dómstóla, í samkundum verðið þér húðstrýkt og þér munuð leidd fyrir landshöfðingja og konunga mín vegna til þess að bera vitni um mig. En fyrst á að prédika öllum þjóðum fagnaðarerindið. Þegar menn taka yður og draga fyrir rétt skuluð þér ekki hafa áhyggjur af því hvað þér eigið að segja heldur talið það sem yður verður gefið á þeirri stundu. Það eruð ekki þér sem talið heldur talar heilagur andi í yður. Þú mun bróðir selja bróður í dauða og faðir barn sitt. Börn munu rísa gegn foreldrum og valda þeim dauða. Allir munu hata yður af því að þér trúið á mig. En sá sem staðfastur er allt til enda verður hólpinn. En þegar þér sjáið viðurstyggð eyðingarinnar standa þar er síst skyldi - lesandinn athugi það - þá flýi þau, sem í Júdeu eru, til fjalla. Sá sem er uppi á þaki fari ekki ofan og inn í húsið að sækja neitt. Og sá sem er á akri skal ekki hverfa aftur að taka yfirhöfn sína. Veit þeim sem þungaðar eru eða börn hafa á brjósti á dögum. Biðjið að það verði ekki um vetur. Á þeim dögum verður sú þrenging sem engin hefur þvílík verið frá upphafi sköpunar allt til þessa og mun aldrei verða. Ef Drottinn hefði ekki stytt þessa daga kæmist enginn maður af. En hann hefur stytt þá vegna þeirra sem hann hefur útvalið. Og ef einhver segir þá við yður: Hér er Kristur, eða: Þar, þá trúið því ekki. Því að fram munu koma falskistur og falsspámenn og þeir munu gera tákn svo að þeir gætu leitt hin útvöldu afvega ef það væri hægt. Gætið yðar. Ég hef sagt yður allt fyrir. Mark.13:9-23.


Bæn dagsins

Jesús sagði: ,,Ég er ljós heimsins, Sá, sem fylgir mér, mun ekki ganga í myrkri, heldur hafa ljós lífsins." Jóh.8:12.

Lát ekki hið vonda yfirbuga þig, heldur sigra þú illt með góðu. Róm.12:21.

Jesús sagði: ,,Sælla er að gefa en þiggja." Post.20:35.


Bæn dagsins.

Barn er oss fætt, sonur er oss gefinn. Á hans herðum skal höfðingjadómurinn hvíla. Nafn hans skal kallað Undraráðgjafi, Guðhetja, Eilífðarfaðir, Friðarhöfðingi. Jes.9:6.

Þú ert skjól mitt, þú leysir mig úr nauðum, með frelsisfögnuði umkringir þú mig. Sálm.32:7.

Gangið inn um þrönga hliðið. Því að vítt er hliðið og vegurinn breiður, sem liggur til glötunar, og margir þeir, sem þar fara inn. Hve þröngt er það hlið og mjór sá vegur, er liggur til lífsins, og fáir þeir, sem finna hann. Matt 7:13-14.


Markúsarguðspjall.

Skelfist ekki

Þegar Jesús gekk út úr helgidóminum segir einn lærisveina hans við hann: ,,Meistari, sjáðu, hvílíkir steinar byggingar!" Jesús svaraði honum: ,,Sérðu þessar miklu byggingar? Hér verður ekki steinn yfir steini, allt lagt í rúst." Þá er Jesús sat á Olíufjallinu gegnt helgidóminum spurðu hann einslega þeir Pétur, Jakob, Jóhannes og Andrés: ,,Seg þú okkur, hvenær verður þetta? Og hvert mun tákn þess að allt þetta sé að koma fram?" En Jesús tók að segja þeim: ,,Varist að láta nokkurn leiða yður í villu. Margir munu koma í mínu nafni og segja: Það er ég! og marga munu þeir leiða í villu. En þegar þér spyrjið hernað og ófriðartíðindi þá skelfist ekki. Þetta á að verða en endirinn er ekki þar með kominn. Þjóð mun rísa gegn þjóð og ríki gegn ríki, þá verða landskjálftar á ýmsum stöðum og hungur. Þetta er upphaf fæðingarhríðanna. Mark.13:1-8.

 


Bæn dagsins.

Jesús sagði: ,,Mínir sauðir heyra raust mína og ég þekki þá, og þeir fylgja mér. Ég gef þeim eilíft líf, og þeir skulu aldrei að eilífu glatast, og enginn skal slíta þá úr hendi minni." Jóh.10:27-28.

Sjá Guðs lambið, sem ber synd heimsins. Jóh.1:29.


Bæn dagsins.

Um Krist: ,,Vér mátum hann einskis. En vorar þjáningar voru það, sem hann bar, og vor harmkvæli, er hann á sig lagði." Jes.53:3-4.

Hver sá, sem ákallar nafn Drottins, mun frelsast. Post.2:21.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Gunnlaugur Halldór Halldórsson
Gunnlaugur Halldór Halldórsson

Ég elska Jesús. gullidori@gmail.com

220 dagar til jóla

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 26
  • Sl. sólarhring: 31
  • Sl. viku: 135
  • Frá upphafi: 208392

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 91
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband