Markúsarguðspjall.

Mannssonurinn á margt að líða

Þá tók Jesús að kenna þeim: ..Mannssonurinn á margt að líða. Öldungarnir, æðstu prestarnir og fræðimennirnir munu útskúfa honum. Menn munu lífláta hann en hann mun upp rísa  eftir þrjá daga." Þetta sagði Jesús berum orðum. En Pétur tók hann á einmæli og fór að átelja hann. Jesús sneri sér við, leit til lærisveina sinna, ávítaði Pétur og sagði: ,,Vík frá mér Satan, eigi hugsar þú um það sem Guðs er heldur það sem manna er." Og Jesús kallaði til sín mannfjöldann ásamt lærisveinum sínum og sagði: ,, Hver sem vill fylgja mér afneiti sjálfum sér, taki kross sinn og fylgi mér. Því að hver sem vill bjarga lífi sínu mun týna því og hver sem týnir lífi sínu vegna mín og fagnaðarerindisins mun bjarga því. Hvað stoðar það manninn að eignast allan heiminn en glata sálu sinni? Eða hvað gæti maður látið til endurgjalds fyrir sálu sína? þegar Mannssonurinn kemur í dýrð föður síns með heilögum englum mun hann blygðast sín fyrir hvern þann sem blygðast sín fyrir mig hjá þessari ótrúu og syndugu kynslóð." Mark.8:31-38.

Og Jesús sagði: ,,Sannlega segi ég ykkur: Nokkrir þeirra sem hér standa munu eigi deyja fyrr en þeir sjá Guðs ríki komið með krafti." Mark.9.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Hver er summan af þremur og núlli?
Nota HTML-ham

Höfundur

Gunnlaugur Halldór Halldórsson
Gunnlaugur Halldór Halldórsson

Ég elska Jesús. gullidori@gmail.com

33 dagar til jóla

Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.11.): 11
  • Sl. sólarhring: 11
  • Sl. viku: 104
  • Frá upphafi: 212107

Annað

  • Innlit í dag: 7
  • Innlit sl. viku: 76
  • Gestir í dag: 7
  • IP-tölur í dag: 7

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu færslur

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband