Sálmarnir:31:2-7

Hjá þér, Drottinn, leita ég hælis, lát mig aldrei verða til skammar. Bjarga mér í réttlæti þínu. Hneig eyra þitt að mér, kom skjótt mér til hjálpar. Ver mér verndarbjarg, vígi mér til hjálpar, því að þú ert bjarg mitt og vígi og sakir nafns þíns munt þú leiða mig og stjórna mér. Leystu mig úr netinu sem lagt var fyrir mig því að þú ert vörn mín. Í þínar hendur fel ég anda minn, þú frelsar mig, Drottinn, þú trúfasti Guð. Ég hata þá sem dýrka fánýt skurðgoð en treysti Drottni. AMEN.


Sálmur 26:8.

Drottinn, ég elska húsið sem er bústaður þinn og staðinn það sem dýrð þín býr.


Dáinn, grafinn Jóhnnes:19:28-30

Jesús vissi að allt var þegar fullkomnað. Þá sagði hann til þess að ritningin rættist: ,,Mið þyrstir." Þar stóð ker fullt af ediki. Hermennirnir vættu njarðarvött í ediki, settu hann á ísópslegg og báru að munni honum. Þegar Jesús hafði fengið edikið sagði hann: ,,Það er fullkomnað." Þá hneigði hann höfuðið og gaf upp andann.


Jesús krossfestur 19:21-27.

Þá sögðu æðstu prestar Gyðinga við Pílatus: ,,Skrifaðu ekki konungur Gyðinga, heldur að hann hafi sagt:Ég er konungur Gyðinga." Pílatus svaraði: ,,Það sem ég hef skrifað það hef ég skrifað." Þegar hermennirnir höfðu krossfest Jesú tóku þeir klæði hans og skiptu í fjóra hluti og fékk hver sinn hlut. Þeir tóku og kyrtilinn en hann var saumlaus, ofinn í eitt ofan frá og niður úr. Þeir sögðu því hver við annan: ,,Rífum hann ekki sundur, köstum heldur hlut um hver skuli fá hann. Svo rættist ritningin: þeir skiptu með sér klæðum mínum og köstuðu hlut um kyrtil minn. Þetta gerðu hermennirnir. En hjá krossi Jesú stóðu móðir hans og móðursystir, María, kona Kópa, og María Magdalena. Þegar Jesú sá móður sína standa þar og lærisveininn, sem hann elskaði, segir hann við móður sína: ,,kona nú er hann sonur þinn. Síðan sagði hann við lærisveininn: ,, Nú er hún móðir þín. Og frá þeirri stundu tók lærisveinninn hana  heim til sín. AMEN.


Bæn dagsins

Enginn á meiri kærleik en þann að leggja líf sitt í sölurnar fyrir vini sína. AMEN.

Jóhannesarguðspjall 15:13

Það þarf mikla elsku og kjark til að færa til betri vegar það sem aflaga hefur farið í samskiptum. Góði Guð, gef mér æðruleysi, kjark og vit...


Jesús krossfestur

Hermennirnir tóku þá við Jesú. Og hann bar kross sinn og fór út til staðar sem nefnist  Hauskúpa, á hebresku Golgata. Þar krossfestu þeir hann og með honum tvo aðra hvorn til sinnar handar, Jesú í miðið. Pílatus hafði látið gera yfirskrift og setja á krossinn. Þar stóð skrifað: JESÚS FRÁ NASARRET, KONUNGUR GYÐINGA.  Margir Gyðingar lásu þessa áletrun því staðurinn,þar sem Jesús var krossfestur, var nærri borginni og þetta var ritað á hebresku, latínu og grísku. AMEN.

 

          Jóhannesarguðspjall 19:17-20.


Bloggfærslur 7. apríl 2023

Höfundur

Gunnlaugur Halldór Halldórsson
Gunnlaugur Halldór Halldórsson

Ég elska Jesús. gullidori@gmail.com

238 dagar til jóla

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (30.4.): 14
  • Sl. sólarhring: 22
  • Sl. viku: 158
  • Frá upphafi: 207970

Annað

  • Innlit í dag: 13
  • Innlit sl. viku: 120
  • Gestir í dag: 13
  • IP-tölur í dag: 13

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband