Bæn dagsins

Hafið frið við alla menn að því leyti sem það er unnt og á ykkar valdi. ...Lát ekki hið illa sigra þig en sigra þú illt með góðu.

 Rómverjabréfið 12:18-21

Kærleikur Krists er ætíð sterkur en hið illa, þess vegna þurfum við að elska og vera elskuð. Svo einfalt er það.

   Móðir Teresa.


Bæn dagsins

Verið ástúðleg hvert við annað í bróðurlegum kærleika og keppist um að sýna hvert öðru virðingu. AMEN.

  Rómverjabréfið 12:10

Guð, hjálpaðu mér að muna að allar manneskjur heyja sína baráttu.


Sálmur 11

Hjá Drottni leita ég hælis, hvernig getið þér sagt við mig: ,,Fljúgðu sem fugl til falla. Sjá hinir óguðlegu hafa spennt boga, lag örvar á streng til að hæfa hina hjartahreinu í skjóli myrkurs. Sé grunnurinn brostinn, hvað megnar þá hinn réttláti? Drottinn er í sínu heilaga musteri, hásæti Drottins er á himnum.  Augu hans sjá sjónir hans sjá, Drottinn reynir reynir réttlátan og ranglátan, hann hatar þann sem elskar ofríki. Yfir óguðlega lætur hann rigna glóandi kolum; eldur brennisteinn og glóðheitur vindur er hlutskipti þeirra því að Drottinn er réttlátu, hann elskar rétta breytni, hinn ráðvandi fær að sjá auglit hans. AMEN.


Bæn dagsins

Og eins og þér viljið að aðrir menn geri við yður, svo  skuluð þér og þeim gera. AMEN.

  Lúkasarguðspjall 6:31


Bæn dagsins

Sáið réttlæti og uppskerið kærleika, brjótið land til ræktunar Nú er tími til að leita svara hjá Drottni þar til hann kemur og lætur réttlæti rigna yfir yður. AMEN.

    Hósea 10:12


Bæn dagsins

En ég segi yður: Elski óvini yðar og biðjið fyrir þeim sem ofsækja yður. Þannig sýnið þér að þér eruð börn föður yðar á himnum er lætur sól sína renna upp yfir vonda sem góða og rigna yfir réttláta sem rangláta.AMEN

Mattheusarguðspjall 5:44-45

Guð, ég get ekki elskað óvini mína, eða þau sem hafa sært mig eða móðgað. Viltu hjálpa mér að líkjast þér...


Markúsarguðspjall 13

skelfist ekki

Þegar Jesús gekk út úr helgidóminum segir einn lærisveina hans við hann: ,,Meistari, sjáðu, hvílíkir steinar, hvílíkar bygginga Jesús svaraði honum: ,,Sérð þessa miklu byggingar? Hér verður ekki ekki steinn yfir steini, allt lagt í rúst. Þá er Jesús sat á Olíufjallinu gegnt helgidóminum spurðu hann einslega þeir Pétur, Jakob, Jóhannes og Andrés: ,,Seg þú okkur, hvenær verðu þetta? Og hvert mun tákn þess að allt þetta sé að koma fram? En Jesús tók að segja þeim: Varist að láta nokkurn leiða yður í villu. Margir munu koma í mínu nafni og segja: það er ég og marga munu þeir leiða í villu. En þegar þér spyrjið hernað og ófriðartíðindi þá skelfst ekki. Þetta á að verða en endirinn er ekki þar með komi. Þjóð mun rísa gegn þjóð og ríki gegn ríki, þá verða landskjálftar á ýmsum stöðum og hungur. Þetta er upphaf fæðingarhríðanna.


Bæn dagsin

Þetta er mitt boðorð, að þér elskið hvert annað eins og ég hef elskað yður. AMEN.

  Jóhannesarguðspall 15:12


Bæn dagsins

Þreytumst ekki að gera það sem gott er því að á sínum tíma munum við uppskera ef við gefumst ekki upp. Þess vegna skulum við, meðan tími er til, gera öllum gott...

    Galarabréfið 6:9-10


Bæn dagsins

Það sem auga sá ekki og eyra heyrði ekki og ekki kom upp í hjarta nokkurs manns, það allt hefur Guð fyrirbúð þeim er hann elska. AMEN.

     Úr fyrra korintubréfi 2:9


Bæn dagsins

Farið því og gerið allar þjóðir að lærisveinum, skírið þá í nafni föður og sonar og heilags anda og kennið þeim að halda allt það sem ég hef boðið yður. Sjá ég er með yður alla daga allt til enda veraldar. AMEN.

   Mattheusarguðspjall 28:19-20


Bæn dagsins

Látið frið Krists ríkja í hjörtum ykkar því að Guð allaði ykkur til að lifa saman í friði sem limi í einum líkama. Verið þakklát. Látið orð Krists búa með ykkur í allri sinni auðlegð og speki. AMEN.

   Kólossubréfið 3:15-16


Bæn dagsins

Allt sem þér viljið að aðrir menn geri yður, það skuluð þér og þeim gera.

      Mattheusarguðspjall 7:12

Í þessum orðum Jesú felst djúp viska sem er sameiginleg mörgum trúarbrögðum. þess vegna eru þau skýr skilaboð til okkar í hvert sinn sem við eigum samskipti eða samtal við fólk sem hefur aðrar skoðanir, tilheyrir öðrum kirkjudeildum eða aðhyllist önnur trúarbrögð en kristni: Allt sem þér viljið... 


Bæn dagsins

Ef einhver óskar lífs, þráir lífdaga til þess að njóta hamingjunnar þá varðveit tungu þína frá illu og varir þínar frá svikatali. Forðastu illt og gerðu gott, leitaðu friðar og leggðu stund á hann. AMEN.

 Davíðsálmur 34:13-15

         

               Kenn okkur að sjá Jesú í hverju

               einu af okkur, sérstaklega þegar

               hann kemur hulinn í einhverjum 

               sem pirrar okkur.

                       Móðir Teresa


Bæn dagsins

Kærleiksríkur maður vinnur sjálfum sér gagn, harðlyndur maður vinnur sér mein.AMEN.

Orðskviðirnir 11:17

 


Bæn dagsins

Skuldið ekki neinum neitt nema það eitt að elska hvert annað. AMEN.

     Rómverjabréfið 3:8


Bæn dagsins

Varðveit hjarta þitt framar öllu öðru því að þar eru uppsprettur lífsins. Haltu munni þínum fjarri fláum orðum og vörum þínum fjarri lygamálum. AMEN.

  Orðskviðirnir 4:23-24


Bæn dagsins

Verið glöð í voninni, þolinmóð í þjáningunni, staðföst í bæninni AMEN.

     Rómverjabréfið 12:12


Bæn dagsins

Því að ég er þess fullviss að hvorki dauði né líf, englar né tignir, hvorki hið yfirstandandi né hið ókomna, hvorki kraftar, hæð né dýpt né nokkuð annað skapað muni geta gert okkur viðskila við kærleika Guðs sem birtist í Kristi Jesú...

   Rómverjabréfið 8:38-39


Bæn dagsins

Við eigum heldur að ástunda sannleikann í kærleika og vaxa í öllu upp til hans sem er höfuðið, Kristur. Hann tengir líkamann saman og heldur honum saman með því að láta sérhverja taug innan sína þjónustu af hendi, allt eftir þeim krafti sem hann úthlutar hverri þeirra. Þannig lætur hann líkamann vaxa og byggjast upp í kærleika.

       Efesusbréfið 4:15-16


Næsta síða »

Höfundur

Gunnlaugur Halldór Halldórsson
Gunnlaugur Halldór Halldórsson

Ég elska Jesús. gullidori@gmail.com

238 dagar til jóla

Mars 2023
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (30.4.): 10
  • Sl. sólarhring: 23
  • Sl. viku: 154
  • Frá upphafi: 207966

Annað

  • Innlit í dag: 9
  • Innlit sl. viku: 116
  • Gestir í dag: 9
  • IP-tölur í dag: 9

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband