22.8.2024 | 05:45
Bæn dagsins...Hagnýt ráð
Skoðaðu háttu hans og lærðu hyggindi. þótt hann hafi engan höfðingja, engan yfirboðara eða valdsherra, þá aflar hann sér samt vista á sumrin og dregur saman fæðuna um uppskerutímann. Hve lengi ætlar þú að hvílast, letingi? Hvenær ætlar þú að rísa af svefni? Sofa ögn enn, blunda ögn enn, leggja saman hendur til að hvílast ögn enn. Þá kemur fátæktin yfir þig eins og ræningi, skorturinn eins og vopnaður maður. Amen.
Orðs:6:7-11
Trúmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.8.2024 | 05:16
Bæn dagsins...Hagnýt ráð
Losaðu þig eins og dádýr úr höndum hans, eins og fugl úr höndum fuglarans. Farðu til maursins, letingi. Amen.
Orðs:6:5-6
Trúmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.8.2024 | 05:14
Bæn dagsins...Hagnýt ráð
Sonur minn, hafir þú gengið í ábyrgð fyrir náunga þinn, hafir þú átt handsal við framandi mann, þá hefurðu bundið þig eigin orðum, látið fangast af orðum munns þíns. Gerðu þá þetta, sonur minn, til að losa þig því að þú ert kominn á vald náunga þínum. Láttu þér hvorki koma dúr á auga né blundur á brá. Amen.
Orðs:6:1-4
Trúmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.8.2024 | 05:36
Bæn dagsins...Varað við lausung
Leggðu leið þína langt frá henni og komdu hvergi nærri dyrum hennar svo að þú gefir ekki öðrum æskuþrótt þinn og líf þitt hörðum húsbónda, svo að framandi menn nærist ekki af þreki þínu og þú erfiðir í annarra húsi og þú andvarpir að lokum, þegar líkami þinn og hold veslast upp, og segir: ,,Hví fyrtist ég við leiðsögn og lét mér umvöndun í léttu rúmi liggja, að ég skyldi ekki hlýða rödd kennara minna og hneigja eyra mitt til þeirra sem fræddu mig. Minnstu munaði að ég rataði í harðar raunir á dómþingi safnaðarins."Drekktu vatn úr brunni þínum og ferskt vatn úr eigin lind. Eiga lindir þínar að flóa út á götuna og lækir þínir út á torgin? þínar skulu þær vera og ekki falla öðrum í skaut. Uppspretta þín sé blessuð og gleddu þig yfir eiginkonu æsku þinnar, ástarhindinni, dádýrinu yndislega. Brjóst hennar geri þig ætíð drukkinn og ást hennar fjötri þig ævinlega. Hví skyldir þú, sonur minn, láta aðra konu töfra þig og taka framandi konu í faðm þér? Vegir hvers manns blasa við Drottni, hann gætir að öllum leiðum hans. Misgjörðir hins óguðlega fanga hann, hann lætur fangast í snörur eigin synda. Hann deyr vegna skorts á aga,heimskan stígur honum til höfuðs. Amen.
Orðs:5:Þ8-23
Trúmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.8.2024 | 06:55
Bæn dagsins...Varað við lausung
Sonur minn, gefðu gaum að speki minni, ljáðu eyra þitt hyggindum mínum til þess að þú varðveitir mannvit og varir þínar geymi þekkingu. Hunang drýpur af vörum framandi konu og munnur hennar er hálli en olía. En síðar verður hún beiskari en malurt og beitt eins og tvíeggjað sverð. Fætur hennar feta niður til dauðans, spor hennar liggja til heljar. Hún ratar ekki áleið lífsins, brautir hennar eru á reiki og áttum hefur hún glatað. Heyrið mig því, synir, og víkið ekki frá orðum mínum.Amen.
Orðs:5:1-7
Trúmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.8.2024 | 09:41
bæn Dagsins...Ávinningur spekinnar
Vegur ranglátra er eins og niðamyrkur, þeir vita ekki um hvað þeir hrasa. Sonur minn, gefðu gaum að máli mínu, hneigðu eyra þitt að orðum mínum. Láttu þau ekki víkja frá augum þínum, varðveittu þau innst í hjarta þínu því að þau eru líf þeim sem hljóta þau og lækning öllum líkama þeirra. Varðveit hjarta þitt framar öllu öðru því að þar eru uppsprettur lífsins. Haltu munni þínum fjarri fláum orðum og vörum þínum fjarri lygamálum. Beindu augum þínum fram á við og sjónum þínum að því sem fram undan er. Veldu fótum þínum beina braut, þá verður ætíð traust undir fótum. Víktu hvorki til hægri né vinstri, haltu fæti þínum frá illu. Amen.
Orðs:4:22-27
Trúmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.8.2024 | 05:23
Bæn dagsins...Ávinningur spekinnar
Varðveittu leiðsögnina og slepptu henni ekki, varðveittu hana því að hún er líf þitt. Farðu ekki brautir ranglátra og gakktu ekki á vegi vondra manna. Sneiddu hjá honum, farðu hann ekki, snúðu frá honum og farðu fram hjá. Þeir geta ekki sofið nema þeir hafi gert illt og þeim kemur ekki dúr á auga nema þeir hafi fellt einhvern, brauð glæpsins þeir og drekka vín ofbeldisins. Gata réttlátra er eins og bjartur árdagsljómi, því bjartari sem nær líður hádegi.Amen.
Orðs:4:13-18
Trúmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.8.2024 | 05:30
Bæn dagsins...Ávinningur spekinnar
Hlustaðu, sonur minn, og gefðu gaum að orðum mínum, þá verða æviár þín mörg. Ég vísa þér veg spekinnar og leiði þig á braut ráðvendninnar, á göngunni verður leið þín ekki þröng og hlaupirðu muntu ekki hrasa. Amen.
Orðs:4:10-12
Trúmál | Breytt s.d. kl. 05:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.8.2024 | 05:34
Bæn dagsins...Ávinningr spekinnar
Aflaðu þér visku, aflaðu þér hygginda. Gleymdu ekki orðum mínum og víktu ekki frá þeim. Hafnaðu ekki viskunni, hún mun varðveita þig, elskaðu hana og þá mun hún vernda þig. Viska er fyrir öllu, aflaðu þér visku, kostaðu öllu til að afla þér hygginda. Hafðu hana í hávegum og þá mun hún hefja þig, faðmaðu hana og hún mun verða þér til sæmdar. Hún mun setja unaðslegan sveig á höfuð þér og sæma þig glæstri kórónu." amen.
Orðs:4:5-9
Trúmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.8.2024 | 05:19
Bæn dagsins...ávinningur spekinnar
Heyrið synir, áminningu föður yðar og hlustið á svo að þér öðlist skilning. Góðan lærdóm veiti ég yður, hafnið ekki tilsögn minni. Þegar ég var sonur í föðurhúsum, viðkvæmt einkabarn móður minnar, þá kenndi faðir minn mér og sagði við mig: ,,Hjarta þitt haldi fast við orð mín, varðveittu fyrirmæli mín og þá muntu lifa.Amen.
Orðs:4:1-4
Trúmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.8.2024 | 05:45
BNæn dagsins...Leiðin til spekinnar
Þegar þú leggst til hvíldar þarftu ekki að hræðast og sofnir þú verður svefninn vær. Þú þarft hvorki að kvíða felmtrinu né eyðingu hinna ranglátu þegar hún dynur yfir því að Drottinn verður athvarf þitt og varðveitir fót þinn svo að hann verði ekki fanginn. Synjaðu ekki góðs þeim sem þarfnast ef það er á þínu valdi að veita það. Segðu ekki við náunga þinn: ,,Farðu og komdu aftur. Á morgun skal ég gefa þér," ef þú átt það til. Bruggaðu ekki vélræði gegn náunga þínum meðan hann dvelst öruggur hjá þér. Deildu ekki við neinn að ástæðulausu hafi hann ekki gert neitt á hlut þinn. Öfundaðu ekki ofbeldismanninn og sæðstu ekki eftir neinum verkum hans. Því að andstyggð er sá Drottni sem afvega fer en ráðvandir menn eru alúðarvinir hans. Bölvun Drottins er yfir húsi hins rangláta en bústað réttlátra blessar hann. Háðska menn hæðir hann en hógværum veitir hann náð. Vitrir menn hljóta heiður en heimskingjar bera smán býtum. Amen.
Orðs:3:24-35
Trúmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.8.2024 | 07:05
Bæn dagsins...Leiðin til spekinnar
Langir lífdagar eru í hægri hendi hennar, auður og sæmd í vinstri hendi hennar. Vegir hennar eru yndislegir vegir og allar götur hennar leggja til velfarnaðar. Hún er tré lífsins þeim sem höndla hana og sæll er hver sá er heldur fast í hana. Drottinn grundvallaði jörðina með visku og kom himninum fyrir af speki. Fyrir þekkingu hans mynduðust hafdjúpin og döggin drýpur úr skýjunum. Sonur minn, varðveittu visku og gætni, láttu þær ekki víkja frá augum þínum, þá verða þær sálu þinni til lífs og hálsi þínum til prýði. Þá muntu ganga veg þinn óhultur og ekki hrasa. Amen.
Orðs:3:16-23
Trúmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.8.2024 | 09:43
Bæn dagsins...Leiðin til spekinnar
Sonur minn, hafnaðu ekki leiðsögn Drottins og láttu þér ekki gremjast umvöndun hans. Drottinn agar þann sem hann elskar og lætur þann son finna til sem hann hefur mætur á. Sæll er sá maður sem öðlast speki, sá sem hlýtur hyggindi. Því að betra er að afla sér hennar en silfurs og arðurinn af henni er betri en gull. Hún er dýrmætari en perlur, allir dýrgripir þínir jafnast ekki ávið hana.Amen.
Orðs:3:11-15
Trúmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.8.2024 | 05:37
Bæn Dagsins...Leiðin til spekinnar
Festu þau um háls þér og ritaðu þau á spjald hjarta þíns, þá muntu hljóta hylli og góð hyggindi, jafnt í augum Guðs sem manna. Treystu Drottni af öllu hjarta en reiddu þig ekki á eigið hyggjuvit. Minnstu hans á öllum vegum þínum, þá mun hann gera leiðir þínar greiðar. Þú skalt ekki þykjast vitur en óttast Drottin og forðast illt,það er heilnæmt líkama þínum og hressing beinum þínum. Tignaðu Drottin með eigum þínum og með frumgróða allrar uppskeru þínar, þá verða hlöður þínar fullar og vínberjalögurinn mun flóa úr vínþróm þínum.amen.
Orðs:4-10
Trúmál | Breytt s.d. kl. 05:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.8.2024 | 05:19
Bæn dagsins...Leiðin til spekinnar
Sonur minn, gleymdu ekki kenningu minni og hjarta þitt varðveiti ráð mín því að langa lífdaga farsæl ár og velgengni munu þau veita þér ríkulega.Kærleikur og tryggð munu aldrei yfirgefa þig. Amen.
Orðs:3:1-3
Trúmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.8.2024 | 05:45
Bæn dagsins...Spekin, vörn gegn illu
Aðgætnin mun vernda þig og hyggindin varðveita þig til þess að frelsa þig frá vegi hins illa, frá þeim mönnum sem fara með fals, sem hverfa af leið einlægninnar og ganga á vegum myrkursins, sem gamna sér við ódæði og fagna yfir illskuverkum, sem fara hlykkjóttar leiðir og eru komnir á glapstigu í breytni sinni, til að frelsa þig frá léttúðardrós og blíðmælgi hinnar framandi konu sem hefur yfirgefið unnusta æsku sinnar og gleymt sáttmála Guðs síns, húsi hennar hallar til dauðans og brautir hennar liggja niður til framliðinna, þeir sem inn til hennar fara snúa ekki aftur og aldrei ná þeir á lífsins stigu, til þess að þú gangir á vegi góðra manna og haldir þig á leið réttlátra. Hinir hreinlyndu munu byggja landið og hinir ráðvöndu verða þar áfram. En hinir ranglátu verða upprættir úr landinu og hinum svikulu verður tortímt. Amen.
Orðs:2:11-22
Trúmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.8.2024 | 05:25
Bæn dagsins...Spekin,vörn gegn illu
Þá skilur þú einnig hvað réttlæti er, réttur og réttsýni, skilur sérhverja braut hins góða. Speki mun þá koma til hjarta þíns, og þekkingin verða sálu þinni til yndis.Amen.
Orðs:2:9-10
Trúmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.8.2024 | 11:31
Bæn dagsins...Spekin. vörn gegn illu
Drottinn veitir speki, af munni hans kemur þekking og hyggindi. Hann geymir hinum ráðvöndu gæfuna og er skjöldur þeirra sem breyta grandvarlega því að hann vakir yfir stígum réttlætisins og varðveitir veg sinna réttsýnu.Amen.
Orðs:2:6-8
Trúmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.8.2024 | 11:09
Bæn dagsins...Spekin, vörn gegn illu
Sonur minn, ef þú hlýðir orðum mínum og geymir boðorð mín hjá þér, veitir spekinni athygli þína og hneigir hjarta þitt að hyggindum, já ef þú kallar á skynsemina og hrópar á hyggindin, ef þú leitar að þeim eins og silfri og grefur eftir þeim eins og fólgnum fjársjóðum, þá mun þér lærast að óttast Drottin og veitast þekking á Guði. Amen.
Orðs:2:5
Trúmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.8.2024 | 17:37
Bæn dagsins...Spekin prédikar sinnaskipti
Spekin kallar hátt á strætunum og lætur rödd sína gjalla á torgunum. Hún hrópar á glaummiklum gatnamótum, við borgarhliðin hefur hún upp rödd sína: Hve lengi ætlið þér, fávísu menn, að elska fávísna og hinir háðgjörnu að hafa yndi af háði og heimskingjar að amast við þekkingu? Látið skipast við umvöndun mína, ég læt anda minn streyma yfir yður og kunngjöri yður orð mín. En þér færðust undan þegar ég kallaði og enginn gaf því gaum þótt ég rétti út höndina, heldur létuð þér öll mín ráð sem vind um eyru þjóta og skeyttuð ekki um aðfinnslur mínar og því mun ég hlæja að ógæfu yðar og hæða yður þegar ógæfan dynur yfir yður, þegar skelfingin hvolfist yfir yður eins og þrumuveður og ógæfa yðar nálgast eins og fellibylur, þegar neyð og angist dynja yfir yður. Þá munu þeir kalla á mig en ég mun ekki svara, þeir munu leita mín en ekki finna mig. Þeir hötuðust við þekkingu og létu hjá líða að óttast Drottin, þeir sinntu ekki ráðum mínum og smáðu alla umvöndun mína og því skulu þeir fá að neyta ávaxta breytni sinnar og mettast af eigin vélræði. Því að fráhvarf fávísra drepur þá og uggleysi heimskingjanna tortímir þeim. En sá sem hlýðir á mig mun búa óhultur og öruggur og engri ógæfu kvíða. Amen.
Orðs:1:20-33
Trúmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
231 dagur til jóla
Tenglar
Mínir tenglar
- Lindin útvarp
- Bylgjan útvarp
- útvarp saga Útvarp
- Létt Bylgjan Útvarp
heimasíðu
- S Á Á vogur
- AA samtökinn AA á Íslandi
- Hjálpræðisherinn Jesús
- Gospel Ísland
- Glaetan bókakaffi. er í Reykjavík
- manchester united manchester united vefurinn á Íslandi
- Biblían
- Boðunarkirkjan kópavogi
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (7.5.): 16
- Sl. sólarhring: 16
- Sl. viku: 130
- Frá upphafi: 216173
Annað
- Innlit í dag: 10
- Innlit sl. viku: 72
- Gestir í dag: 10
- IP-tölur í dag: 10
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Nýjustu færslur
- 7.5.2025 Bæn dagsins...
- 6.5.2025 Bæn dagsins...
- 5.5.2025 Bæn dagsins...
- 4.5.2025 Bæn dagsins...
- 3.5.2025 Bæn dagsins...
- 2.5.2025 Bæn dagsins...
- 1.5.2025 Bæn dagsins...
- 30.4.2025 Bæn dagsins...
- 29.4.2025 Bæn dagsins...
- 28.4.2025 Bæn dagsins...
Bloggvinir
-
Anna Heiða Harðardóttir
-
Auðun Gíslason
-
Rósa Aðalsteinsdóttir
-
Kvíðin kona
-
Páll Vilhjálmsson
-
Aðalbjörn Leifsson
-
ADHD
-
Helena Leifsdóttir
-
Agný
-
Ágúst Ólafur Ágústsson
-
Guðrún Sæmundsdóttir
-
Alma Guðmundsdóttir og Freyja Haraldsdóttir
-
Aida.
-
Árni þór
-
Ásdís Rán
-
Bryndís Böðvarsdóttir
-
Baldvin Jónsson
-
Bergþóra Guðmunds
-
Bergljót Hreinsdóttir
-
Benna
-
Bergþóra Árnadóttir - RIP 15.2.48 - 8.3.07
-
Birna G
-
Guðbjörg Edda Björgvinsdóttir
-
Guðrún Olga Clausen
-
Bjarni Harðarson
-
Blúshátíð í Reykjavík
-
brahim
-
Helga Kristjánsdóttir
-
Hilmar Sæberg Ásgeirsson
-
egvania
-
Ester
-
Elma Berglind Stefánsdóttir
-
Jóhann Helgason
-
Dagrún Þórný Marínardóttir
-
Eygló Hjaltalín
-
Grétar Örvarsson
-
Svanur Heiðar Hauksson
-
Samtök um rannsóknir á ESB ...
-
Brosveitan - Pétur Reynisson
-
Halla Vilbergsdóttir
-
gudni.is
-
Guðríður Arnardóttir
-
Guðrún Norberg
-
Gunnlaugur Helgason
-
Ágúst Böðvarsson
-
halkatla
-
Sverrir Halldórsson
-
Heiða
-
Heiður Helgadóttir
-
Helga Dóra
-
Þórarinn Þ Gíslason
-
Helga Nanna Guðmundsdóttir
-
Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir
-
Taflfélagið Hellir
-
Hugarafl - Valdefling
-
Óskar Arnórsson
-
Nancy Drew
-
Inga Lára Helgadóttir
-
Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir
-
Svava frá Strandbergi
-
Vilborg Traustadóttir
-
Íris María
-
Jakob Falur Kristinsson
-
Jens Guð
-
Jóhann Hauksson
-
Jóna Á. Gísladóttir
-
Kafteinninn
-
Jón Ingi Cæsarsson
-
Jón Magnússon
-
Pétur Björgvin
-
Jón Valur Jensson
-
Karl V. Matthíasson
-
Elísa Ósk Jónsdóttir
-
Kristín Ketilsdóttir
-
Mín veröld
-
Þórdís Ragnheiður Malmquist
-
Kristin stjórnmálasamtök
-
Ómar Ragnarsson
-
Kristján L. Möller
-
Lára Stefánsdóttir
-
Lára Hanna Einarsdóttir
-
Guðný Lára
-
Mofi
-
Guðmundur St Ragnarsson
-
Myndlistarfélagið
-
Nanna Katrín Kristjánsdóttir
-
oktober
-
Ólafur Jóhannsson
-
Öll lífsins gæði?
-
Gunnhildur Hauksdóttir
-
Pálmi Gunnarsson
-
Rafn Haraldur Sigurðsson
-
Ragnar Birkir Bjarkarson
-
Rakel Lind
-
Rannsóknarskýrslan
-
Ragnheiður Katla Laufdal
-
Ruth
-
Sædís Ósk Harðardóttir
-
Sigvarður Hans Ísleifsson
-
Sigríður Jónsdóttir
-
Skák.is
-
Óskar Sigurðsson
-
Heiða B. Heiðars
-
Brynja skordal
-
Snorri Óskarsson
-
HÉR & NÚ
-
Sigþrúður Þorfinnsdóttir
-
Sverrir Stormsker
-
Svavar Alfreð Jónsson
-
Sveinn Arnarsson
-
Björgvin Þangbrandur "Birkirmár" Gíslasson
-
Tómas Ibsen Halldórsson
-
Valdís Anna Jónsdóttir
-
Unnur Arna Sigurðardóttir
-
Guðfríður Lilja
-
Ásar, Víkingafélag Akureyrar
-
Guðsteinn Haukur Barkarson