Bæn.

12.3.2014.Bæn dagsins:

Ég bið að ég geti unað hinu einfalda lífi mínu. Ég bið, að ég haldi lífi mínu frjálsu og einföldu.

Fyrst þér því eruð uppvaktir með Kristi, þá keppist eftir því, sem er hið efra, þar sem Kristur situr við hægri hönd Guðs. Hugsið um það, sem er hið efra, en ekki um það, sem á jörðunni er. Kól.3:1-2.


Bæn.

11.3.2014.Bæn dagsins:

Guð gefi að ég megi gaumgæfa mikihæfa persónuleika uns ég mótast af fegurð þeirra og framkomu. Ég bið að ég með eigin líferni megi endurspegla hið fagra sem ég nem.

Hann skaltu láta heita Jesúm, því að hann mun frelsa lýð sinn frá syndum þeirra. Matt. 1:21.


Bæn.

10.3.2014.Bæn dagsins:

Ég bið að andi minn samstillist almættinu. Ég bið, að ég geti með trú og samfélagi við Guð fengið þann styrk sem ég þarfnast.

Guð skal reynast sannorður, þótt sérhver maður reyndist lygari. Róm.3:4.

 


Bæn.

9.3.2014Bæn dagsins:

Ég bið að ég geti verið hreinskilinn, einlægur, óeigingjarn, og kærleiksíkur. Ég bið, að ég geti þannig gefið lífi mínu innra gildi.

Fyrir því hefir og Guð hátt upp hafið hann og gefið honum nafnið, sem hverju nafni er æðra, til þess að fyrir nafni Jesú skuli hvert kné beygja sig á himni, jörðu og undir jörðu og sérhver tunga játa Guði föður til dýrðar: Jesús Kristur er Drottinn. Fil.2:9-11.


Bæn.

8.3.2014Bæn dagsins:

Ég bið að ég njóti Hjálpar og bata fyrir áhrif frá sönnu andlegu samfélagi. Ég bið, að ég skynji nærveru Guðs í uppbyggilengum félagsskap.

Orð krossins er heimska þeim, er glatast, en oss, sem hólpnir verðum ,er það kraftur Guðs. 1.Kor.1:18.


Bæn.

7.3.2014Bæn dagsins:

Ég bið að ég reyni af öllum mætti að gera vilja Guðs. Ég bið, að ég geri allt sem ég get til að hjálpa öðrum að átta sig á  Guðs vilja.

Jesús sagði: ,,Uppskeran er mikil, en verkamenn fáir. Biðjið þvíherra uppskerunnar að senda verkamenn til uppskeru sinnar.'' Matt.9:37-38.

Drottinn agar þann, sem hann elskar, og hirtir harðlega hvern þann son, er hann að sér tekur. Þolið aga. Heb.12:6-7.


Bæn.

6.3.2014.Bæn dagsins:

Ég bið að ég vinni fyrir Guð og með honum. Ég bið, að Guð hjálpi mér til að hjálpa öðrum.

Sæll er sá maður, sem stenzt freistingu, því að þegarhann hefir reynzt hæfur, mun hann öðlast kórónu lífsins, sem Guð hefir heitið þeim, er elska hann. Jak.1:12.


Bæn.

5.3.2014.Bæn dagsins:

Ég bið að ég sé óhræddur. Ég bið, að ég geti úthýst öllum ótta úr lífi mínu.

Með hverju getur ungur maður haldið vegi sínum hreinum? Með því að gefa gaum að orði þínu.

Farmar ber að hlýða Guði en mönnum.


Bæn.

4.3.2014Bæn dagsins:

Ég bið að ég verði óeigingjarnari, heiðvirðari, sannari og kærleiksríkari en áður. Ég bið að dag hvern velji ég réttu leiðina.

Jesús sagði: ,,Upskeran er mikil, en verkamenn fáir. Biðjið því herra uppskerunnar að senda verkamenn til uppskeru sinnar.'' Matt.9.37-38.

Á hagkvæmri tíð bænheyrði ég þig, og á hjálpræðis degi hjálpaði ég þér. 2.Kor.6:2


Bæn.

3.3.2014.Bæn dagsins:

Ég bið að ég sjái merki um framför mína á nýrri lífsbraut. Ég bið, að ég haldi alltaf áfram viðleitni minni til þroska.

Allir hafa syndgað og skortir Guðs dýrð, og þeir réttlætast án verðskuldunar af náð hans fyrir endurlausnina, sem er í Kristi Jesú. Róm.3:23-24.


Bæn.

2.3.2014.Bæn dagsins:

Ég bið að ég finni að máttur Guðs býr í mér. Ég bið að með hjálp hans geti ég tekist á við það sem að höndum ber.

Trú þú á Drottin Jesúm, og þú munt verða hólpinn og heimili þitt. Post.16:31.

Jesús sagði: ,,Óttast ekki, trú þú aðeins.'' Mark.5:36.


Bæn.

1.3.2014.Bæn dagsins:

Ég bið að andi Guðs verði mér fyrir öllu. Ég bið, að hann dafnihið innra með mér.

Styrkist nú í Drottni og í krafti máttar hans. Efes.6:10.

Ég og ættmenn mínir munum þjóna Drottni. Jós.24:15.

Sjá, hönd Drottins er eigi svo stutt, að hann geti ekki hjálpað, og eyra hans er ekki svo þykkt, að hann heyri ekki. Jes.59:1.

 


Bæn.

28.2.2014.Bæn dagsins:

Ég bið að ég verji meiri tíma einn með Guði. Ég bið að slíkar stundir veiti mér vaxandi styrk og fögnuð, sem auki gildi vinnu minnar.

Ef vér lifum, lifum vér Drottni, og ef vér deyjum, deyjum Drottni. Hvort sem vér þess vegna lifum eða deyjum, þá erum vér Drottins. Róm.14:8.


Bæn.

27.2.2014 anna heiða.Bæn dagsins:

Ég bið að höfgi gremju, áhyggna og ótta létti. Ég bið, að heilbrigði gleði, friður og æðruleysi komi í staðnn.

Hvort fær kona gleymt brjóstbarni sínu, að hún miskunni eigi lífsafkvæmi sínu? Og þó að þær gætu gleymt, þá gleymi ég þér samt ekki. Sjá, ég hefi rist þíg í lófa mína.  Jes. 49:15-16.


Bæn.

26.2.2014Bæn dagsins:

Ég bið að ég öðlist skilning á því, að hjá Guði sé allt sem ég þarfnast. Ég bið að ég skilji að máttur Guðs stendur mér ætíð til boða.

Drottinn bíður þess að geta miskunnaðyður og heldur kyrru fyrir, unz hann getur líknað yður. Því að Drottinn er Guð réttlætis. Sælir eru allir þeir, sem á hann vona. Jes.30:18.


Bæn.

25.2.2014Bæn dagsins:

Ég bið, að ég leggi mitt af mörkum til að skapa betri heim. Ég bið að ég eigi minn þátt í því að sigrahið illa í heiminum.

Ég geymi orð þín í hjarta mínu, til þess að ég skuli eigi syndga gegn þér. Sálm.119:11.

Jesús sagði: ,,Leyfið börnunum að koma til mín, varnið þeim eigi, því að slíkra er Guðs ríki.'' Matt.10:14.


Bæn.

24.2.2014Bæn dagsins:

Ég bið að alla gesti mína langi til þess að koma aftur. Ég bið, að engum gesti finnist ég haffna sér.

Jesús sagði: ,,Allt, sem þér viljið, að aðrir menn gjöri yður, það skuluð þér og þeim gjöra.'' Matt.7:12.


Bæn.

23.2.2014.Bæn dagsins:

Ég bið að ég læri að lifa innihaldsríku lífi. Ég bið að ég lifi daglega í nánu sambandi við Guð og njóti þeirrar gleði sem því fylgir.

Ef þú játar með munni þínum: Jesús er Drottinn - og trúir í hjarta þínu, að Guð hafi uppvakið hann frá dauðum, muntu hólpinn verða. Með hjartanu er trúað tilréttlætis, en með munninum játað til hjálpræðis. Róm. 10:9-10.


united.

Mayne Rooney fagnaði

Wayne Rooney fagnaði risasamningnum með marki.

Crystal Palace.0 - Manchester United.2

Englandmeistarar manchester united eru komnir aftur á sigurbraut eftir tap og jafntefli í síðustu þremur leikjum sínum.

En gerður góðan sigur á Crystal Pamiðlace 2 - 0.

Og mörkin skoruðu Robin van Persie og Wayne Rooney í seinni hálfleik.

united komið á skrið

 vonandi

united 2 C.palace0

 


Bæn.

1688544_10203412205972114_1616663422_n.jpg22 2 2014

Bæn dagsins:

Ég bið að hagi lífi mínu þannig að Guði sé þóknanlegt. Ég bið að ég berist með straumi hins góða í heiminum.

Þitt orð er lampi fóta minna og ljós á vegum mínum. Sálm.119:105.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Gunnlaugur Halldór Halldórsson
Gunnlaugur Halldór Halldórsson

Ég elska Jesús. gunnlaugurh62@gmail.com

166 dagar til jóla

Júlí 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (11.7.): 4
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 103
  • Frá upphafi: 217101

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 56
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband