Bloggfærslur mánaðarins, maí 2025

Bæn dagsins...

Minnstu, Drottinn, háðungar þjóna þinna, á mér hvílir háð margra þjóða sem fjandmenn þínir smánuðu þig með, Drottinn, og vanvirtu fótspor þíns smurða. Lofaður sé Drottinn að eilífu. Amen. Amen.

Sálm:89:51-53


Bæn dagsins...

Hversu lengi, Drottinn, ætlar þú að dyljast, á reiði þín að loga sem eldur? Minnstu þess hve ævi mín er stutt og til hvílíks  þú hefur skapað mennina. Hver er sá er lifir og sér eigi dauðann, hver heimtir líf sitt úr greipum Heljar? Hvar eru fyrri náðarverk þín, Drottinn, sem þú sórst Davíð í trúfesti þinni? Amen. 

Sálm:89:47-50


Bæn dagsins

Þú hefur hafið hægri hönd óvina hans og glatt alla fjandmenn hans. Þú snerir sverðseggjum hans undan og studdir hann ekki í stríðinu. Þú eyddir vegsemd hans og steyptir hásæti hans til jarðar. Þú hefur stytt æskudaga hans og hulið hann smán. Amen.

Sálm:89:43-46


Bæn dagsins ...

En nú hefur þú hafnað þínum smurða, útskúfað honum í reiði þinni, þú hefur rift sáttmálanum við þjón þinn, vanhelgað kórónu hans og fleygt til jarðar. Þú braust niður alla varnarmúra hans og lagðir virki hans í rúst. Allir vegfarendur ræna hann og grannar hans hæða hann. Amen.

Sálm:89.39-42


Bæn dagsins...

Ætt hans skal haldast við um aldur og ævi og hásæti hans sem sólin frammi fyrir mér, það skal standa að eilífu sem tunglið, hið trausta vitni ofar skýjum." Amen.

Sálm:89:37-38


Bæn dagsins...

Ég mun ekki vanhelga sáttmála minn og ekki taka það aftur sem mér hefur af vörum liðið. Eið sór ég við heilagleika minn: Ég mun aldrei bregðast Davíð. Amen.

Sálm:89:35-36


Bæn dagsins...

Hverfi synir hans lögmáli mínu, fylgi þeir ekki reglum mínum, vanhelgi lög mín og haldi ekki boðorð mín,þá mun ég vitja afbrota þeirra með vendinum og misgjörða þeirra með plágum en miskunn mína mun ég ekki frá honum taka og eigi bregða trúfesti minni. Amen.

Sálm:89:31-34


Bæn dagsins...

Ég geri hann að frumburði mínum, að hinum æðsta meðal konunga jarðar. Ég mun varðveita miskunn mína við hann að eilífu, sáttmáli minn við hann skal stöðugur standa. Ég mun viðhalda ætt hans um aldur og hásæti hans meðan himinninn stendur. amen.

Sálm:89:28-30


Bæn dagsins...

Hann mun hrópa til mín: Þú ert faðir minn, Guð minn, og klettur hjálpræðis minn. Amen.

Sálm:89:27


Bæn dagsins...

Trúfesti mín og miskunn skulu vera með honum og vegna nafns míns mun horn hans hátt upp hafið. Ég legg hönd hans á hafið, hægri hönd hans á fljótin. Amen.

Sálm:89:25-26


Næsta síða »

Höfundur

Gunnlaugur Halldór Halldórsson
Gunnlaugur Halldór Halldórsson

Ég elska Jesús. gunnlaugurh62@gmail.com

192 dagar til jóla

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (15.6.): 11
  • Sl. sólarhring: 13
  • Sl. viku: 135
  • Frá upphafi: 216734

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 78
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.