Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2025

Bæn dagsins...

Hann er upp risinn

Að liðnum hvíldardegi, þegar lýsti af fyrsta degi vikunnar, komur þær María Magdalena og María hin til að líta á gröfina. Þá varð landskjálfti mikill því engill Drottins sté niður af himni, kom og velti steininum og settist á hann. Hann var sem elding ásýndum og klæðin hvít sem snjór. Varðmennirnir skulfu af hræðslu við hann og urðu sem örendir. En engillinn mælti við konurnar: ,,þið skuluð eigi óttast. Ég veit að þið leitið að Jesú hinum krossfesta. Hann er ekki hér. Hann er upp risinn, eins og hann sagði. Amen.

Matt:28:1-6


Bæn dagsins...

Lofaður sé Drottinn, bjarg mitt, sem æfir hendur mínar til bardaga, fingur mína til orrustu. Þú ert miskunn mín og vígi, vörn mín og hjálparhella, skjöldur minn og athvarf, hann leggur undir mig þjóðir. Amen.

Sálm:144:1-2


Bæn dagsins...

Síon heyrir þetta og gleðst og dætur Júda fagna yfir dómum þínum, Drottinn. Því að þú, Drottinn, ert Hinn hæsti yfir allri jörðinni, mjög hátt hafinn yfir alla guði. Þér, sem elskið Drottin, hatið illt. Hann verndar dýrkendur sína, frelsar þá úr hendi óguðlegra. Ljós skín réttlátum og gleði hjartahreinum. Gleðjist, þér réttlátir, yfir Drottni, vegsamið hans heilaga nafn. Amen.

Sálm:97:8-12


Bæn dagsins...

Sá er situr í skjóli Hins hæsta og dvelst í skugga Hins almáttka segir við Drottin: ,,hæli mitt og háborg, Guð minn, er ég trúi á."

Hann frelsar þig úr snöru fuglarans, frá drepsótt eyðingarinnar, hann skýlir þér með fjöðrum sínum, undir vængjum hans mátt þú hælis leita, trúfesti hans er skjöldur og vígi. Eigi þarft þú að óttast ógnir næturinnar eða örina sem flýgur um daga, drepsóttina sem læðist um í dimmunni eða sýkina sem geisar um hádegið. Þótt þúsund falli þér við hlið og tíu þúsund þér til hægri handar þá nær það ekki til þín. þú munt sjá með eigin augum, horfa á hvernig óguðlegum er endurgoldið. Amen.

Sálm:91:1-8


Bæn dagsins...

Þú annast landið og vökvar það, fyllir það auðlegð. Lækur Guðs er bakkafullur, þú sérð mönnum fyrir korni því að þannig hefur þú gert landið úr garði. Plógförin á jörðinni gegnvæti þú, sléttar plægt land, mýkir jarðveginn með regnskúrum, blessar það sem úr honum vex. Amen.

Sálm:65:10-11


Bæn dagsins...

Lofaður sé Drottinn því að hann hefur sýnt mér dásamlega náð í öruggri borg. Ég hugsaði í angist minni: ,,Ég er burtrekinn frá augum þínum." Samt heyrðir þú ákall mitt er ég hrópaði til þín. Amen.

Sálm:31:22-23


Bæn dagsins...

Hver mun rísa gegn guðlausum mín vegna, hver standa með mér gegn illgjörðamönnum? Hefði Drottinn ekki verið hjálp mín yrði bústaður minn brátt í landi þagnarinnar. Þegar ég hugsa: ,,Mér skriðnar fótur," þá styður mig miskunn þín, Drottinn. Þegar áhyggju þaka mig hressir huggun þín sál mína. Amen.

Sálm:94:16-19


Bæn dagsins...

Drottinn, heyr þú bæn mína, ljá eyra grátbeiðni minni í trúfesti þinni, bænheyr mig í réttlæti þínu. Leið þjón þinn ekki rétt því að enginn sem lifir er réttlátur fyrir augliti þínu.

Óvinur ofsækir mig. Hann traðkar líf mitt niður, lætur mig búa í myrkri eins og þá sem löngu eru dánir. Kjarkurinn bregst mér, hjartað stöðvast í brjósti mér. Amen.

Sálm:143:1-4


Bæn dagsins...

Vér sjáum ekki táknin sem oss voru ætluð, þar er enginn spámaður framar, enginn meðal vor veit hve lengi þetta varir. Amen.

Sálm:74:9


Bæn dagsins...

Drottinn er konungur, skrýddur hátign, Drottinn er skrýddur, gyrtur mætti. Heimurinn er stöðugur, haggast ekki. Hásæti þitt stendur stöðugt frá öndverðu, frá eilífð ert þú. Fljótin hófu upp, Drottinn, fljótin hófu upp raust sína, fljótin hefja upp gný sinn. Máttugri en gnýr mikilla vatna, máttugri en brimöldur hafsins, er  Drottinn í upphæðum. Vitnisburðir þínir haggast ekki. Heilagleiki sæmir húsi þínu, Drottinn, um allar aldir.

Sálm:93:1-5


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Gunnlaugur Halldór Halldórsson
Gunnlaugur Halldór Halldórsson

Ég elska Jesús. gunnlaugurh62@gmail.com

221 dagur til jóla

Maí 2025
S M Þ M F F L
        1 2 3
4 5 6 7 8 9 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28 29 30 31

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.5.): 8
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 95
  • Frá upphafi: 216320

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 73
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband