Bloggfærslur mánaðarins, ágúst 2023

Bæn dagsins

Ég lofa þig, Drottinn, því að þú dróst mig upp úr djúpinu og lést óvini mína ekki hlakka yfir mér.AMEN.

sálm 30:2


Bæn dagsins

Raust Drottins brýtur sedrustré, Drottinn brýtur sundur sedrustrén á Líbanon. Hann lætur Líbanon hoppa eins og kálf, Sirjonfjall eins og villinaut.AMEN

sálm 29:5-6


Bæn dagsns

Raust Drottins hljómar yfir vötnunum, Guð dýrðarinnar lætur þrumur drynja, Drottinn ríkir yfir hinum miklu vötnum. Raust Drottins hljómar með krafti, raust Drottins hljómar með tign. AMEN.

sálm 29:3-4


Bæn dagsins

:Tjáið Drottni vegsemd, þér guðasynir, tjáið Drottni vegsemd og vald. Tjáið Drottni dýrð þá er nafni hans hæfir, fallið fram fyrir Drottin í helgum skrúða. AMEN.

Sálm 29:1-2


Bæn dagsins

Hjálpa lýð þínum og blessa eign þína. Ver hirðir þeirra og ber þá að eilífu. AMEN

sálm 28:9


Bæn dagsins

Ég hlaut hjálp, því fagnar hjarta mitt, og með ljóðum mínum lofa ég hann. Drottinn er styrkur lýð sínum, vígi til varnar sínum smurða.AMEN.

sálm 28:7-8


Bæn dagsins

Lofaður sé Drottinn því að hann hefur heyrt grátbeiðni mína. Drottinn er styrkur minn og skjöldur, honum treystir hjarta mitt.AMEN.

sálm 28:6-7


Bæn dagsins

Til þín, Drottinn, hrópa ég, þú bjarg mitt, ver eigi hljóður gagnvart mér. Ef þú þegir við mér verð ég sem þeir er til grafar eru gengnir. Heyr þú grátbeiðni mína þegar ég hrópa til þín á hjálp, þegar ég lyfti höndum til hins allra helgasta í musteri þínu. Sviptu mér ekki burt með óguðlegum og níðingum sem tala vinsamlega við náunga sinn en hafa illt í hyggju. Launa þeim eftir verkum þeirra, eftir þeirra illu breytni, launa þeim eftir verkum handa þeirra, lát þá kenna á eigin verkum. Þar sem þeir virða verk Drottins einskis eða handaverk hans mun hann rífa þá niður og aldrei reisa þá upp.AMEN.

sálm 28:1-5 


Til hamingju

Ofursel mig ekki græðgi hatursmanna minna, falsvitni rísa gegn mér og blása af heift. En ég treysti því að fá að sjá gæsku Drottins á landi lifenda. Já, vona á Drottin, ver öruggur og hugrakkur, vona á Drottin. AMEN.

sálm 27:12-14


Bæn dagsins

Þótt faðir minn og móðir yfirgefi mig tekur Drottinn mig að sér. Vísa mér veg þinn, Drottinn, leiddu mig  á beina braut vegna óvina minna.Amen.

sálm 27:10-11


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Gunnlaugur Halldór Halldórsson
Gunnlaugur Halldór Halldórsson

Ég elska Jesús. gullidori@gmail.com

33 dagar til jóla

Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.11.): 9
  • Sl. sólarhring: 13
  • Sl. viku: 102
  • Frá upphafi: 212105

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 74
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu færslur

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.