Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2022

Bæn dagsis. Bænabók miðvikudagsmorgunn.

Góði Guð

Þú ert Guð sem gefur lífið og þú einn veist hvað á eftir að mæta mér í dag. Viltu gefa mér gleði, umburðarlyndi og hógværi, hvað sem hendir mig. Viltu gefa mér gleðina þína og hjálpa mér að sjá alltaf jákvæða hluti í öllum kringumstæðum. Þakka þér fyrir þá trú sem þú hefur gefið mér og ég bið þig að auka mér trú. Hjálpaðu mér að líkjast þér, Jesús, og fylltu mig af krafti þínum. Ég bið þig, Drottinn, að vernda mig í dag frá öllum slysum og hættum og frá öllum sjúkdómum og veikindum. Varðveittu mig í umferðinni og gefðu mér skynsemi. Viltu líka gefa að ég heyri þegar þú talar og hjálpaðu mér að hlýða þér. Ég vil ganga með þér hvern einasta dag og viltu gefa að ég láti gott af mér leiða. Leiddu mig í veg fyrir það fólk sem þú vilt að ég hitti í dag og láttu ljósið þitt lýsa í mér. Jesús,vertu velkominn inn í hjarta mitt í dag og alla daga.

Í Jesú nafni, amen.


Bæn kvöldsin. Bænabók Þriðjudagskvöld.

Góði guð

Þakka þér fyrir að mega koma fram fyrir þig hvar og hvenær sem er. Þakka þér fyrir að þú þekkir alla hluti og í návist þinni get ég verið nákvæmlega eins og ég er. Þú þekkir mig betur en ég sjálf/ur og þú veist hvað ég hugsa. Fyrirgefðu mér, Drottinn, að ég hef oft syndgað gegn þér og gert það sem rangt er í þínum augum. En ég vil vera góð manneskja og ég vil vaxa og þroskast í lífinu. Hjálpaðu mér að láta ekki óhöpp lífsins, særandi orð eða háðsglósur annarra skapa hatur í hjarta mínu. Ég bið fyrir öllum þeim sem einhvern tíma hafa sært mig.Hjálpaðu mér að fyrirgefa þeim og ég bið þig, Jesús, að hjálpa þeim að fyrirgefa mér. Hjálpaðu mér að láta ekki vonsku annarra hafa þau áhrif á mig að ég verði vond/ur og bitur. Gefðu heldur, Drottinn, að jákvætt viðhorf mitt og góðmennska breyti framkomu annarra til betri vegar. Svo bið ég þig að gefa mér góða nótt í nótt og vernda heimilið mitt. 

Í Jesú nafni,amen.


Bæn dagsis.Bænabók. Þriðjudagsmorgunn.

Góði Guð 

Þakka þér fyrir að þú sendir Jesú í heiminn til að verða frelsarinn minn. þakka þér, Jesú, fyrir að vilja koma og ganga þann veg sem Guð ætlaði þér.Þakka þér fyrir að gefast ekki upp og ég bið þig að hjálpa mér í dag að í dag að hafa sama hugarfar og þú. Viltu hjálpa mér að gefast aldrei upp og viltu gefa að ég finni þann tilgang sem þú, Drottinn, hefur með líf mínu. Jesús, viltu hjálpa mér við allt sem ég tek mér fyrir hendur í dag. Láttu það heppnast og viltu hjálpa mér að vera þér til gleði. Hjálpaðu mér líka að upphefja ekki sjálfa/n mig því að allir mínir hæfileikar og kostir eru frá þér komnir. Þú einn hefur líf mitt í þinni hendi og þú veist hversu margir ævidagar mínir verða. Viltu gefa, Drottinn minn, að ég verði tilbúin/n að mæta þér og ég bið þess að nafnið mitt verði skráð í lífsins bók og aldrei afmáð þaðan. Þinn er mátturinn og þin er dýrðin.

Í Jesú nafni, amen.

 


Bæn kvöldsins.Bænabók. mán/kvöld.

Góði Guð

Þakka þér fyrir þennan dag. sem nú er kominn að kvöldi. Þakka þér fyrir alla þá sem ég hitti í dag og viltu varðveita okkur öll frá öllu illu. Ég bið þig, Jesús, að fyrirgefa mér það sem ég gerði rangt í dag og hjálpaðu mér að gera það sem rétt er. Viltu hjálpa mér að hleypa aldrei hatri inn í hjarta mitt heldur lifa í kærleika og fyrirgefningu þinni. Þakka þér fyrir lífið sem þú gafst mér og viltu hjálpa mér að fara vel með allar þær gjafir sem þú hefur gefið mér. Viltu vaka yfir heimili mínu í nótt og gæta mín á meðan ég sef. Láttu líkama þinn og blóð, Jesús, sem við minnumst í altarisgöngunni vernda okkur öll og alla okkar lífsleið. Þinn er mátturinn og dýrðin. 

Í Jesú nafni, amen.


Bæn dagsi

Jesús-kristur-málverk-jesús-bjarga-okkur-list-innréttingarnar-6-11190Svo mælti Drottinn: Nemið staðar við vegina og lítist um og spyrjið um gömlu göturnar, hver sé hamingjuleiði, og farið hana, svo að þér finnið sálum yðar hvíld. Jer.6:16.

Óttist aðeins Drottin og þjónið honum trúlega af öllu hjarta yðar, því sjáið, hversu mikið hann hefir fyrir yður gjört. 1.Sam.12:24

Styrkist nú í Drottni og í krafti máttar hans. Efes.6:10


Bæn dagsis Bænabók. mán/morgunn.

Góði Guð

Þakka þér fyrir nóttina sem þú gafst mér.Þakka þér fyrir að leyfa mér að vakna og lifa. Ég þakka þér fyrir, Drottinn, að þú gefur mér styrk til að takast á við vikuna sem er framundan og allt sem henni fylgir. Viltu hjálpa mér að líkjast þér í dag. Hjálpaðu mér að vera sú manneskja sem þú skapaðir mig til að verða. Verði þinn vilji í lífi mínu. Heilagur andi viltu fylla mig af þér og hjálpa mér að líkjast Jesú á allan hátt. Hjálpaðu mér, Drottinn, að vera góð/ur við alla sem ég hitti í dag og viltu láta ljós þitt lýsa í mér. Jesús, ég bið þig að koma inn í hjarta mitt og fylla  það af kærleika til allra manna. Ég bið þess líka að ríki þitt komi á jörðinni. Viltu, Drottinn, blessa landið mitt, heimilið mitt og alla sem mér þykir vænt um.Frelsaðu okkur frá öllu illu og hjálpaðu okkur að vera tilbúin að mæta þér.

Í Jesú nafni amen.


Bæn dagsis úr bænabók sun/morgunn.

Góði Guð

Vertu velkominn inn í hjarta mitt í dag. Viltu hjálpa mér að halda því hreinu og hjálpaðu mér að gæta tungu minnar. Ég bið þess að þú stýrir skrefum mínum í dag, að þú leiðir mig þangað sem þú vilt. Hjálpaðu mér að láta gott af mér leiða og bera ljósið þitt og kærleika til allra þeirra sem ég hitti í dag. Ég bið þig Drottinn, að hjálpa mér að láta aldrei skapið hlaupa með mig í gönur. Vilt þú sníða af þá galla sem þú sérð í fari mínu til þess að allir þeir kostir sem þú hefur gefið mér fái notið sín betur, þér til dýrðar og öðrum til blessunar.Hjálpaðu mér að muna að lífið er gjöf frá þér og ég þarfnast hjálpar þinnar til að fara vel með það. Ég fel hús mitt allt, ættingja mína, vini og Íslendinga alla í þínar hendur í dag. Hjálpaðu okkur öllum að fylgja þér og gefðu okkur þinn frið.

Í Jesú nafni, amen.  


bænabók. Laugardagsmorgunn..

Góði Guð

Þakka þér fyrir þennnan dag. Þakka þér fyrir allt sem þú gefu mér. Hjálpaðu mér að feta í fótspoor þíin í dag Hjálpaðu mér að leita þín af öllu hjarta. Verði þinn vilji í lífi mínu í dag. Viltu hjálpa mér að skilja hvað þú , Jesús, gerðir fyrir mig á Golgata. Þakka þér fyrir að þú dóst á krossinum til þess að ég kæmist til þín þegar þú kallar mig burt úr þessum heimi. Leyfðu mér að finna hinnsanna tilgang lífsins og hjálpaðu mér að trúa á þig. Þú ert styrkurinn minnog ég vil fylgja þér. Drottinn, ég bið þig að hjálpa mér að lifa í friði, sátt og samlyndi við alla menn og gefðu mér styrk til að þegja yfir þeim leyndarnálum sem mér er trúað fyrir.

Í Jesú nafni amen.


Bæn dagsis. Gleðilegt nýtt ár

20211228_115522Mannssonurinn er kominn að leita að hinu týnda og frelsa það. Lúk.19:10.

þú skalt vegsama drottin Guð þinn fyrir landið góða, sem hann gaf þér. 5.Mós.8:10.

Jesús sagði: ,,Þannig verður fögnuður með englum Guðs yfir einum syndara, sem gjörir iðrum." Lúk.15:10.

Jesús séði: ,,Hús mitt á að vera bænahús, en þér gjörið það að ræningjabæli." Matt.21:13.

Þeir, sem leita Drottins, fara einskis góðs á mis Sálm.34:11.

 


« Fyrri síða

Höfundur

Gunnlaugur Halldór Halldórsson
Gunnlaugur Halldór Halldórsson

Ég elska Jesús. gunnlaugurh62@gmail.com

327 dagar til jóla

Jan. 2025
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (31.1.): 9
  • Sl. sólarhring: 32
  • Sl. viku: 190
  • Frá upphafi: 214236

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 87
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu færslur

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband