Bloggfærslur mánaðarins, ágúst 2009

Bæn

pray

Náðin Drottins vors Jesú Krists sé mað anda yðar. Filem.1:25.

Bæn dagsins: Ég bið að mega vera hluti af samrýmdri deild. Ég bið að ég fái að leggja minn skerf til að hún nái sínum göfugu markmiðum. 24 stunda bókin 15 ágúst.

Jesus_10022

Bæn

14 ágúst 2009

Gleð þig, ungi maður, í æsku þinni, og lát liggja vel á þér unglingsár þín, og breyt þú eins og hjartað leiðir þig og eins og augun girnast, en vit, að fyrir allt þetta leiðir Guð þig fyrir dóm.Préd.11:9.

Bæn dagsins: Ég bið að ég þiggi innihaldsríkt andlegt líf með gleði. Ég bið að ég njóti lífsins eftir bestu getu. 24 stunda bókin


Bæn

101072

Hversu dýrmæt er miskunn þín, ó Guð, mannanna börn leita hælis í skugga vængja þinna.  Þau seðjast af feiti húss þíns, og þú lætur þau drekka úr lækjum unaðsemda þinna.  Hjá þér er uppspretta lífsins, í þínu ljósi sjáum vér ljós. Sálm 36:8-10.

Bæn dagsins: Ég bið að ég taki raunverulegum framförum til betra lífs. Ég bið, að ég geri mig aldrei fullkomlega ánægðan með núverandi ástandi. 24 stunda bókin 13 ágúst.

Bið Guð/Jesús að blessa allar þá sem lesa þetta.Amen.


Bæn

12 ágúst 2009

En það er hið eilífa líf að þekkja þig, hinn eina sanna Guð, og þann sem þú sendir, Jesú Krist. Jóh.17:3.

Bæn dagsins: Ég bið að mega vera samverkamaður Guðs. Ég bið, að ég geti orðið mönnum til hjálpar með góðu fordæmi.24 stunda bókin 12 ágúst.

Bið Guð/Jesús að blessa allar þá sem lesa þetta.Amen.


kvöld bæn

Anna Gulli

Hjartað brann í brjósti mér, við andvörp mín logaði eldurinn upp, ég sagði: ,,Lát mig, Drottinn, sjá afdrif mín og hvað mér er útmælt af dögum, lát mig sjá, hversu skammær ég er.  Sjá, örfáar þverhendur hefir þú gjört daga mína, og ævi mín er sem ekkert fyrir þér. Sálm.39:4-6.

Ég sagði: ,,Ég vil gefa gætur að vegum mínum, að ég drýgi eigi synd með tungunni, ég vil leggja haft á munn minn, meðan hinn illgjarni er nánd við mig."  Ég var hljóður og þagði, en kvöl mín ýfðist. sálm 39:2-3.

Ég játa misgjörð mína, harma synd mína, og þeir sem án saka eru óvinir mínir, eru margir, fjölmargir þeir er hata mig að ástæðulausu. Þeir gjalda mér gott með illu, sýna mér fjandskap, af því ég legg stund á það sem gott er.  Yfirgef mig ekki, Drottinn, Guð minn, ver ekki fjarri mér, skunda til liðs við mig, Drottinn, þú hjálp mín. Sálm.38:19-23.

bæna ljós  Anna og Gulli

Bæn

11 ágúst 2009

Aðra dæmisögu sagði hann þeim: ,,Líkt er himnaríki mustarðskorni, sem maður tók og sáði í akur sinn.  Smæst er það allra sáðkorna, en nær það vex, er það öllum jurtum meira, það verður tré, og fuglar himins koma og hreiðra sig í greinum þess." matt.13:31-32.

Bæn dagsins: Ég bið að ég verði leiddur frá óreiðu til reglusemi. Ég bið, að mér hlotnist velgengni í stað vandræða. 24 stunda bókin.11 ágúst.

bið Guð/Jesús að blessa allar sem lesa þetta.Amen. 


Bæn

10 ágúst 2009

Þú hefir gjört vel til þjóns þíns eftir orði þínu, Drottinn.Sálm.119:65.

Bæn dagsins: Ég bið að ég kunni fótum mínum forráð. Ég bið, að ég fái að standa með Guði 24 stunda bókin 10 ágúst.

Bið Guð/Jesús að blessa allar sem lesa þetta.Amen.

sacred_heart_chaplet

Bæn

Picture 003

Náð og friður margfaldist yður til handa með þekkingu á Guði og Jesí, Drottni vorum.2.Pét.1:2.

Bæn dagsins: Ég bið að ég sé dag hvern fús til að breytast til batnaðar. Ég bið, að ég feli mig að öllu leyti Guði á vald.24 stunda bókin 9 ágúst.

Ég bið Guð/Jesús að blessa allar sem lesa þetta.Amen.

barn

Bæn

8 ágúst 2009

Hann svaraði: ,,Ekki er það yðar að vita tíma eða tíðir, sem faðirinn setti af sjálfs sín valdi.  En þér munuð öðlast kraft, er heilagur andi kemur yfir yður, og þér munuð verða vottar mínir í Jerúsalem og allri Júdeu, í Samaríu og allt til endimarka jarðarinnar." Post.1:7-8.

Bæn dagsins: Ég bið að ég verði þess albúinn að gera það sem mér ber. Ég bið, að ég verði líka viðbúinn að viðurkenna þörfina fyrir afþreyingu.24 stunda bókin 8 ágúst.

Bið Guð/Jesús að blessa allar þá sem lesa þetta.Amen.


Bæn

Krossur10

Guð er oss hæli og styrkur, örugg hjálp í nauðum. Sálm.46:2.

Bæn dagsins: Ég bið að ég megi hafa sterka tilfinningu fyrir því að allt fari vel. Ég bið, að ekkert megni að hagga þessari sannfæringu minni. 24 stunda bókin 7 ágúst.

Bið Guð/Jesús að blessa allar þá sem lesa þetta.Amen

amen-heart

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Gunnlaugur Halldór Halldórsson
Gunnlaugur Halldór Halldórsson

Ég elska Jesús. gullidori@gmail.com

33 dagar til jóla

Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.11.): 12
  • Sl. sólarhring: 12
  • Sl. viku: 105
  • Frá upphafi: 212108

Annað

  • Innlit í dag: 8
  • Innlit sl. viku: 77
  • Gestir í dag: 8
  • IP-tölur í dag: 8

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu færslur

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.