orð í Gleði

head45f07dc387590 Hugrekki kemur innan að

                             Hjarta yðar skelfist ekki , trúið á Guð og trúið á mig (jóh 14:1)

                             Einu sinni var mús sem var svo hrædd við ketti að hún bað töframann að breyta sér í kött. Það bægði hræðslunni frá, þangað til hún mætti hundi. Hún grátbað töframanninn að breyta sér íhund. Músin sem varð köttur og síðan hundur var ánægð með lífið það til hún mætti tigrisdýri, svo enn varð töframaðurinn við ósk hennar að breyta henni í það sem hún óttaðist. En þegar tigurinn kom aftur, titrandi af skelfingu yfir að hafi séð veiðimann, þá sagði töframaðurinn að nú væri nóg komið. ,,Ég breyti þér aftur í mús, vegna þess að þótt þú hafir líkama tigrisdýrs þá ertu enn með músarhjarta." Hversu margir eru þeir ekki sem hafa byggt utan um sig öfluga vörn gegn lífinu og háskanum, en eru hið innra skelfd og kvíðin? Við mætum óttanum með afli eða auði, við leitum öryggis í hlutum, frægð, stöðu. En verkar það? Hugrekki sprettur af því hver við erum hið innra. Hið ytra getur veitt styrk en það er hjartað eitt sem gefur hugrekki.

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Aida.

Amen Amen.

Aida., 3.4.2008 kl. 08:26

2 identicon

Frábær lesning Amen

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 3.4.2008 kl. 09:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnlaugur Halldór Halldórsson
Gunnlaugur Halldór Halldórsson

Ég elska Jesús. gunnlaugurh62@gmail.com

327 dagar til jóla

Jan. 2025
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (31.1.): 9
  • Sl. sólarhring: 32
  • Sl. viku: 190
  • Frá upphafi: 214236

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 87
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu færslur

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.