Bæn dagsins...Orð hinna vitru...

Hneig eyra þitt og hlusta á orð hinna vitru, veit fræðslu minni athygli. Gott er að þú geymir þau í brjósti þér, að þau verði sífellt á vörum þér. Til þess að traust þitt sé á Drottni fræði ég þig dag, já, þig. Hef ég ekki ritað þér þrjátíu sinnum heilræði og fræðslu, til þess að gera þér ljósan sannleika, sannleiksorð, svo að þú flytjir þeim áreiðanleg orð er senda þig? Rændu ekki fátæklinginn af því að hann er fátækur og níðstu ekki á lítilmagnanum í borgarhliðinu því að Drottinn mun flytja mál þeirra og ræna þá lífinu er þá ræna. Leggðu ekki lag þitt við reiðigjarnan mann og eigðu ekki samneyti við hinn skapbráða til þess að þú temjir þér ekki hegðun hans og leggir snörur fyrir líf þitt. Vertu ekki einn af þeim sem ganga til handsala, þeim sem ganga í ábyrgð fyrir skuldum. Þegar þú átt ekkert að greiða með, þá verður hvílan tekin undan þér. Færðu ekki úr stað hin forna landamerki sem forfeður þínir hafa sett. Sjáir þú mann vel færan í verki sínu mun hann veita konungum  þjónustu sína en ekki þjóna ótignum mönnum. Amen.

orðs:22:17-29

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Hver er summan af tíu og fjórtán?
Nota HTML-ham

Höfundur

Gunnlaugur Halldór Halldórsson
Gunnlaugur Halldór Halldórsson

Ég elska Jesús. gullidori@gmail.com

33 dagar til jóla

Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.11.): 10
  • Sl. sólarhring: 14
  • Sl. viku: 103
  • Frá upphafi: 212106

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 75
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu færslur

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.