Bæn Dagsins...Hagnýt ráð

Sonur minn, varðveittu orð mín og hugfestu fyrirmæli mín. Varðveittu fyrirmæli mín, því að þá munt þú lifa, og leiðsögn mína eins og sjáaldur auga þíns. Bind þau á fingur þína og skráðu þau á spjald hjarta þíns," og kallaðu skynsemina vinkonu svo að þær varðveiti þig fyrir hinni framandi komu, hinni blíðmálugu konu. Út um gluggann á húsi mínu skimaði ég milli rimlanna og sá þar meðal sveinanna ungan og vitstola mann. Hann kom að götuhorni og fetaði leiðina að húsi hennar, í rökkrinu, að kvöldi dags, um miðja nótt og í niðdimmu. Konan gekk til móts við hann, klædd sem skækja og undirförul í hjarta, eirðarlaus óhemja er hún og hefst aldrei við heima, hún er ýmist á götunum eða á torgunum og liggur í leyni við hvert horn, þrífur í hann og kyssir hann og segir í blygðunarleysi: ,,Ég átti að færa heillafórn, í dag hef ég goldið heit mitt. Þess vegna fór ég út að finna þig til þess að leita þín, og hef nú fundið þig. Ég hef búið rúm mitt ábreiðum, marglitum ábreiðum úr egypsku líni. Myrru, alóe og kanel hef ég stökkt á hvílu mína. Komdu, við drekkum okkur ástdrukkin, njótum ásta fram á morgun. Maðurinn minn er að heiman, hann er farinn í langferð. Peningapyngjuna tók hann með sér, hann kemur ekki heim fyrr en í tunglfyllingu." Hún tælir hann með fortölum og ginnir hann með blíðmælgi. Hann fer rakleiðis á eftir henni eins og naut á leið til slátrunar, eins og hjörtur sem anar í netið uns örin smýgur gegnum lifur hans, eins og fuglinn hraðar sér í snöruna og veit ekki að líf hans er í veði. Þér yngismenn, hlýðið því á mig og gefið gaum að orðum mínum. Láttu ekki hjartað tælast á leið hennar, vallstu ekki inn á götur hennar. Marga hefur hún sært ólífissári og fórnarlömb hennar eru óteljandi. Hús hennar er helvegur niður til heimkynna dauðans. Amen.

Orðs:7:1-27


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Hver er summan af þremur og sex?
Nota HTML-ham

Höfundur

Gunnlaugur Halldór Halldórsson
Gunnlaugur Halldór Halldórsson

Ég elska Jesús. gullidori@gmail.com

33 dagar til jóla

Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.11.): 9
  • Sl. sólarhring: 13
  • Sl. viku: 102
  • Frá upphafi: 212105

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 74
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu færslur

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.