Postulasagan 2

Ræða Péturs

Systkin, óhikað get ég talað við ykkur um ættföðurinn Davíð. Hann dó og var grafinn og leiði hans er til hér allt til þessa dags. En hann var spámaður og vissi að guð hafði með eiði heitið honum að setja einhvern niðja hans í hásæti hans. Því var það upprisa Krists sem hann sá fyrir þegar hann sagði: Þennan Jesú reisti Guð upp og erum við allir vottar þess. Nú er hann hafinn upp til hægri handar Guðs og hefur af föðurnum tekið við heilögum anda, sem fyrirheitið var, og úthellt honum eins og þið sjáið og heyrið. Ekki steig Davíð upp til himna en hann segir:

Drottinn sagði við minn drottin: Set þig mér til hægri handar þangað til ég geri óvini þína að fótskör þinni.

Með öruggri vissu viti þá öll Ísraels ætt að þennan Jesú, sem þið krossfestuð, hefur Guð gert bæði að Drottni og Kristi." Er menn heyrðu þetta var sem stungið væri í hjörtu þeirra og þeir sögðu við Pétur og hina postulana: ,,Hvað eigum við að gera, bræður?" Pétur sagði við þá : ,,Takið sinnaskiptum og látið skírast í nafni Jesús Krists svo að þið öðlist fyrirgefningu syndanna og gjöf heilags anda. Því að ykkur er ætlað fyrirheitið, börnum ykkar og öllum þeim sem í fjarlægð eru, öllum þeim sem Drottinn Guð vor kallar til sín." Og með öðrum fleiri orðum brýndi hann þá og hvatti og sagði: ,,Látið frelsast frá þessari rangsnúnu kynslóð." En þau sem veittu orði hans viðtöku tóku skírn og  þann dag bættust við um þrjú þúsund sálir. Þau ræktu trúlega uppfræðslu postulanna og samfélagið, brotning brauðsins og bænirnar. Post 2:29-42.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Hver er summan af níu og núlli?
Nota HTML-ham

Höfundur

Gunnlaugur Halldór Halldórsson
Gunnlaugur Halldór Halldórsson

Ég elska Jesús. gullidori@gmail.com

33 dagar til jóla

Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.11.): 15
  • Sl. sólarhring: 15
  • Sl. viku: 108
  • Frá upphafi: 212111

Annað

  • Innlit í dag: 11
  • Innlit sl. viku: 80
  • Gestir í dag: 10
  • IP-tölur í dag: 10

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu færslur

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.