Bæn dagsins...

Vínið er illkvittið, sterkur drykkur glaumsamur, fávís verður sá sem lætur leiðast afvega. Reiði konungs er eins og ljónsöskur, sá sem egnir hann gegn sér hættir lífi sínu. Það er manni sómi að forðast deilur en afglapinn kveikir þrætur. Letinginn plægir ekki á réttum tíma, því leitar hann um uppskerutímann og grípur í tómt. Ráð mannshjartans eru sem djúp vötn og hygginn maður eys af þeim. Amen.

Orðs:20:1-5


Bæn dagsins...

Hlýddu ráðum og taktu umvöndun svo að þú verðir vitur að lokum. Mörg er ráðagerð mannshjartans en áform Drottins standa. Maðurinn þráir miskunnarverk og betri er fátækur maður en lygari. Að óttast Drottin leiðir til lífs,þá hvílast menn mettir og óhultir. Latur maður dýfir hendinni ofan í skálina en nennir ekki að bera hana upp að munni sér. Sláir þá spottarann verður hinn fávísi hygginn, sé vandað um við skynsaman mann vex hann að viti. Sá sem misþyrmir föður sínum og rekur burt móður sína, sá sonur fremur smán og óhæfu. Sonur minn, hættu að hlýða á umvöndun og þú fjarlægist orð þekkingarinnar. Gagnslaust vitni hæðir  réttinn og illkvittni býr í munni ranglátra. Spottarar eiga refsingar í vændum og bök heimskingjanna verða barin. Amen.

Orðs:19.20-29


Bloggfærslur 13. október 2024

Höfundur

Gunnlaugur Halldór Halldórsson
Gunnlaugur Halldór Halldórsson

Ég elska Jesús. gullidori@gmail.com

69 dagar til jóla

Okt. 2024
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.10.): 9
  • Sl. sólarhring: 12
  • Sl. viku: 130
  • Frá upphafi: 211515

Annað

  • Innlit í dag: 7
  • Innlit sl. viku: 104
  • Gestir í dag: 7
  • IP-tölur í dag: 7

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu færslur

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband