Bæn kvöldsin. Bænabók Miðvikudagskvöld.

Góði Guð

Þakka þér fyrir þennan dag sem nú er kominn að kvöldi. Þakka þér fyrir að þú varst með mér í dag, fylgdir mér hvert sem ég fór og verndaðir mig frá öllu illu. Viltu gefa mér þinn frið. Hjálpaðu mér að leggja allt í þínar hendur sem íþyngir mér. Jesús, ég þakka þér fyrir að þú lifir og viltu leyfa mér að finna fyrir nærveru þinni á þessari stundu. Gefðu að ég megi finna fyrir nærveru þinni hvern einasta dag. Ég bið þig að vaka yfir öllum ættingjum mínum og vinum í nótt og vera með öllum þeim sem eiga bágt. Viltu gefa þinn frið yfir landið mitt í nótt og gefa vináttu og kærleika inn á öll heimilin. Þér er enginn hlutur hulinn, Drottinn, og þú getur allt. Þess vegna bið ég þig að hjálpa öllum þeim sem þurfa á þinni hjálp að halda, en kunna ekki að leita til þín og þekkja þig ekki. Opnaðu hjarta þeirra fyrir orði þínu, Biblíunni, og sendu einhvern til þeirra sem færir þeim þinn frið.

Í Jesú nafni, amen.


Bæn dagsis. Bænabók miðvikudagsmorgunn.

Góði Guð

Þú ert Guð sem gefur lífið og þú einn veist hvað á eftir að mæta mér í dag. Viltu gefa mér gleði, umburðarlyndi og hógværi, hvað sem hendir mig. Viltu gefa mér gleðina þína og hjálpa mér að sjá alltaf jákvæða hluti í öllum kringumstæðum. Þakka þér fyrir þá trú sem þú hefur gefið mér og ég bið þig að auka mér trú. Hjálpaðu mér að líkjast þér, Jesús, og fylltu mig af krafti þínum. Ég bið þig, Drottinn, að vernda mig í dag frá öllum slysum og hættum og frá öllum sjúkdómum og veikindum. Varðveittu mig í umferðinni og gefðu mér skynsemi. Viltu líka gefa að ég heyri þegar þú talar og hjálpaðu mér að hlýða þér. Ég vil ganga með þér hvern einasta dag og viltu gefa að ég láti gott af mér leiða. Leiddu mig í veg fyrir það fólk sem þú vilt að ég hitti í dag og láttu ljósið þitt lýsa í mér. Jesús,vertu velkominn inn í hjarta mitt í dag og alla daga.

Í Jesú nafni, amen.


Bloggfærslur 5. janúar 2022

Höfundur

Gunnlaugur Halldór Halldórsson
Gunnlaugur Halldór Halldórsson

Ég elska Jesús. gunnlaugurh62@gmail.com

223 dagar til jóla

Maí 2025
S M Þ M F F L
        1 2 3
4 5 6 7 8 9 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28 29 30 31

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (15.5.): 12
  • Sl. sólarhring: 20
  • Sl. viku: 94
  • Frá upphafi: 216285

Annað

  • Innlit í dag: 10
  • Innlit sl. viku: 70
  • Gestir í dag: 10
  • IP-tölur í dag: 10

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.