Bæn kvöldsin. Bænabók Þriðjudagskvöld.

Góði guð

Þakka þér fyrir að mega koma fram fyrir þig hvar og hvenær sem er. Þakka þér fyrir að þú þekkir alla hluti og í návist þinni get ég verið nákvæmlega eins og ég er. Þú þekkir mig betur en ég sjálf/ur og þú veist hvað ég hugsa. Fyrirgefðu mér, Drottinn, að ég hef oft syndgað gegn þér og gert það sem rangt er í þínum augum. En ég vil vera góð manneskja og ég vil vaxa og þroskast í lífinu. Hjálpaðu mér að láta ekki óhöpp lífsins, særandi orð eða háðsglósur annarra skapa hatur í hjarta mínu. Ég bið fyrir öllum þeim sem einhvern tíma hafa sært mig.Hjálpaðu mér að fyrirgefa þeim og ég bið þig, Jesús, að hjálpa þeim að fyrirgefa mér. Hjálpaðu mér að láta ekki vonsku annarra hafa þau áhrif á mig að ég verði vond/ur og bitur. Gefðu heldur, Drottinn, að jákvætt viðhorf mitt og góðmennska breyti framkomu annarra til betri vegar. Svo bið ég þig að gefa mér góða nótt í nótt og vernda heimilið mitt. 

Í Jesú nafni,amen.


Bæn dagsis.Bænabók. Þriðjudagsmorgunn.

Góði Guð 

Þakka þér fyrir að þú sendir Jesú í heiminn til að verða frelsarinn minn. þakka þér, Jesú, fyrir að vilja koma og ganga þann veg sem Guð ætlaði þér.Þakka þér fyrir að gefast ekki upp og ég bið þig að hjálpa mér í dag að í dag að hafa sama hugarfar og þú. Viltu hjálpa mér að gefast aldrei upp og viltu gefa að ég finni þann tilgang sem þú, Drottinn, hefur með líf mínu. Jesús, viltu hjálpa mér við allt sem ég tek mér fyrir hendur í dag. Láttu það heppnast og viltu hjálpa mér að vera þér til gleði. Hjálpaðu mér líka að upphefja ekki sjálfa/n mig því að allir mínir hæfileikar og kostir eru frá þér komnir. Þú einn hefur líf mitt í þinni hendi og þú veist hversu margir ævidagar mínir verða. Viltu gefa, Drottinn minn, að ég verði tilbúin/n að mæta þér og ég bið þess að nafnið mitt verði skráð í lífsins bók og aldrei afmáð þaðan. Þinn er mátturinn og þin er dýrðin.

Í Jesú nafni, amen.

 


Bloggfærslur 4. janúar 2022

Höfundur

Gunnlaugur Halldór Halldórsson
Gunnlaugur Halldór Halldórsson

Ég elska Jesús. gunnlaugurh62@gmail.com

223 dagar til jóla

Maí 2025
S M Þ M F F L
        1 2 3
4 5 6 7 8 9 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28 29 30 31

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (15.5.): 12
  • Sl. sólarhring: 20
  • Sl. viku: 94
  • Frá upphafi: 216285

Annað

  • Innlit í dag: 10
  • Innlit sl. viku: 70
  • Gestir í dag: 10
  • IP-tölur í dag: 10

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband