Bæn dagsis úr bænabók sun/morgunn.

Góði Guð

Vertu velkominn inn í hjarta mitt í dag. Viltu hjálpa mér að halda því hreinu og hjálpaðu mér að gæta tungu minnar. Ég bið þess að þú stýrir skrefum mínum í dag, að þú leiðir mig þangað sem þú vilt. Hjálpaðu mér að láta gott af mér leiða og bera ljósið þitt og kærleika til allra þeirra sem ég hitti í dag. Ég bið þig Drottinn, að hjálpa mér að láta aldrei skapið hlaupa með mig í gönur. Vilt þú sníða af þá galla sem þú sérð í fari mínu til þess að allir þeir kostir sem þú hefur gefið mér fái notið sín betur, þér til dýrðar og öðrum til blessunar.Hjálpaðu mér að muna að lífið er gjöf frá þér og ég þarfnast hjálpar þinnar til að fara vel með það. Ég fel hús mitt allt, ættingja mína, vini og Íslendinga alla í þínar hendur í dag. Hjálpaðu okkur öllum að fylgja þér og gefðu okkur þinn frið.

Í Jesú nafni, amen.  


Bloggfærslur 2. janúar 2022

Höfundur

Gunnlaugur Halldór Halldórsson
Gunnlaugur Halldór Halldórsson

Ég elska Jesús. gunnlaugurh62@gmail.com

223 dagar til jóla

Maí 2025
S M Þ M F F L
        1 2 3
4 5 6 7 8 9 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28 29 30 31

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (15.5.): 12
  • Sl. sólarhring: 21
  • Sl. viku: 94
  • Frá upphafi: 216285

Annað

  • Innlit í dag: 10
  • Innlit sl. viku: 70
  • Gestir í dag: 10
  • IP-tölur í dag: 10

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.