Færsluflokkur: Trúmál og siðferði

orð í dag.

15.5.10.

Því brýni ég yður, bræður, að þér,vegna miskunnar Guðs, bjóðið fram sjálfa yður að lifandi, heilagri, Guði þóknanlegri fórn. Það er sönn og rétt guðsdýrkun af yðar hendi.  Hegðið yður eigi eftir öld þessari, heldur takið háttaskipti með endurnýjung hugarfarsins svo að þér fáið að reyna, hver sé vilji Guðs, hið góða, fagra og fullkomna. Róm.12:1-2.

frelsarinn góði
Amen

orð í dag.

14.5.10.

En ávöxtur andans er; Kærleiki, gleði, friður, langlyndi, gæska, góðvild, trúmennska,  hógværð og bindindi.  Gegn slíku er lögmálið ekki.  En þeir, sem tillheyra kristi Jesú, hafa krossfest holdið með ástríðum þess og girndum. Gal.5:22-24.

hjarta Jesús Krist

Amen


orð í dag

13.5.10.

En þann sem blygðast sín fyrir mig og mín orð, mun Mannssonurinn blygðast sín fyrir, er hann kemur í dýrð sinni og föðurins og heilagra engla. Lúk.9:26

Jesús sagði biðjið
Amen

orð í dag.

12.5.10

Lítið ekki aðeins á eigin hag, heldur einnig annarra. Filip.2:4.

Verið með sama hugarfari sem Jesús Kristur var.   Hann var í Guðs mynd. En hann fór ekki með það sem feng sinn að vera Guði líkur. Filip.2:5-6.

gud_290701
Amen

orð í dag

11.5.10

Þeir eru gróðursettir í húsi Dtottins, gróa í forgörðum Guðs vors. Jafnvel í hárri elli bera þeir ávöxt, þeir eru safamiklir og grænir.  Þeir kunngjöra, að Drottinn er réttlátur, klettur minn, sem ekkert ranglæti er hjá. Sálm.92:14-16.

Drottinn er konungur orðinn! Hann hefir íklæðst hátign, Drottinn hefir skrýðst, hann hefir spennt sig belti styrkleika síns og fest jörðina, svo að hún haggast eigi. Sálm.93:1.

21 ágúst 2009
Amen

orð í dag

10.5.10

Látið ekkert skaðlegt orð líða yður af munni, heldur það eitt, sem er gott til uppbyggingar, þar sem þörf gjörist, til þess að það verði til góðs þeim, sem heyra.  hryggið ekki Guðs heilaga anda, sem þér eruð innsiglaðir með til endurlausnardagsins. Efes.4:29-30.

Látið hvers konar beiskju ofsa, reiði, hávaða og lastmæli vera fjarlægt yður og alla mannvonsku yfirleitt. Efes.4:31.

4435_1154332853795_1091882203_30435505_5942120_s
Amen

orð í dag

9.5.10

Ég er Drottinn og enginn annar. Enginn Guð er til nema ég. Ég hertygjaði þig, þó að þú þekktir mig ekki, svo að menn skyldu kannast við það bæði í austri og vestri, að enginn er til nema ég.   Ég er Drottinn og enginn annar.  Ég tilbý ljósið og framleiði myrkrið, ég veiti heill og veld óhamingju.  ég er Drottinn, sem gjöei allt þetta. Jes.45:5-7.

29 Júní 2009
Amen

orð í dag

8.5.10

Þeir lögðu þá fast að honum og sögðu; ,,Vertu hjá oss, því að kvölda tekur og degi hallar."  Og hann fór inn til að vera hjá þeim. Lúk.24:29

Og svo bar við, er hann sat til borðs með þeim, að hann tók brauðið, þakkaði Guði, braut það og fékk þeim.  Þá opnuðust augu þeirra, og þeir þekktu hann, en hann hvarf þeim sjónum.  Og þeir sögðu hvor við annan; ,, Brann ekki hjartað í okkur, meðan hann talaði við okkur á veginum og lauk upp fyrir okkur ritningunum?" Þeir stóðu samstundis upp og fóru aftur til Jerúsalem. Þar fundu þeir þá ellefu og þá, er með þeim voru, saman komna,  og sögðu þeir;  ,,Sannarlega er Drottinn upp risinn og hefur birst Símoni."  Hinir sögðu þá frá því, sem við hafði borið á veginum, og hvernig þeir höfðu þekkt hann, þegar hann braut brauðið. Lúk.24:30-35.

vinátta
Amen

orð í dag

7..5..10..

Sýnið enga fégirni í hegðun yðar, en látið yður nægja það, sem þér hafið. Guð hefur sjálfur sagt; ,,Ég mun ekki sleppa af þér hendinni né yfirgefa þig."  Því getum vér öruggir sagt;

Drottinn er minn hjálpari, eigi mun ég óttast.  Hvað geta mennirnir gjört mér? Hebr.13:5-6

Drottinn er minn hirðir, mig mun ekkert bresta.  Á grænum grundum lætur hann mig hvílast, leiðir mig að vötnum þar sem ég má næðis njóta.  Hann hressir sál mína, leiðir mig um rétta vegu fyrir sakir nafns síns.  Jafnvel þótt ég fari um dimman dal,  óttast ég ekkert illt, því að þú ert hjá mér,  sproti þinn og stafur hugga mig.  Þú býr mér borð frammi fyrir féndum mínum,  þú smyr höfuð mitt með olíu,  bikar minn er barmafullur.  Já gæfa og náð fylgja mér alla ævidaga mína,  og í húsi Drottins bý ég langa ævi.Sálm.23.

07.05.2010
Amen

orð í dag

5.5.10

Því að svo mörg sem fyrirheit Guðs eru, þá er játun þeirra í honum. Þess vegna segjum vér og fyrir hann amen Guði til dýrðar. 2.Kor.1:20.

Lofaður sé Guð og faðir Drottins vors Jesú Krists, faðir miskunnsemdanna og Guð allrar huggunar. 2.Kor.1:3.

5.1.10.
Amen

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Gunnlaugur Halldór Halldórsson
Gunnlaugur Halldór Halldórsson

Ég elska Jesús. gunnlaugurh62@gmail.com

92 dagar til jóla

Sept. 2025
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.9.): 7
  • Sl. sólarhring: 24
  • Sl. viku: 94
  • Frá upphafi: 218254

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 73
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu færslur

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband