orð í dag.

29.6.10.

Guð hefur ekki ætlað oss til að verða reiðinni að bráð, heldur til að öðlast sáluhjálp fyrir Drottin vorn Jesú Krist,  sem dó fyrir oss, til þess að vér mættum lifa með honum, hvort sem vér vökum eða sofum.Þessal.5:9-10.

Drottinn Guð Jesús blessi alla þá sem lesa þetta

16.4.10.
Amen

orð í dag.

28.6.10.

Allar augu vona á þig, og þú gefur þeim fæðu þeirra á réttum tíma.    Þú lýkur upp hendi þinni og seður allt sem lifir með blessun. Sálm.145:15 og 16.

Bið Drottinn Guð Jesús að blessa alla þá sem lesa þetta.

28.6.10.
Amen

orð í dag

27.6.10Sönn guðhræðsla og fölsk

Ef einhver fer með annarlegar kenningar og fylgir ekki hinum heilnæmu orðum Drottins vors Jesú Krists og því, sem guðrækni vor kennir, þá hefur hann ofmetnast og veit ekki neitt.  Hann er sótttekinn af þrætum og orðastælum.  Af þessu fæðist öfund, deilur, lastmæli, vondar hugsanir, þjark og þras hugspilltra manna, sem eru sneyddir sannleikanum, en skoða guðhræðsluna sem gróðaveg.  Já, guðhræðslan samfara nægjusemi er mikill gróðavegur.  Því að ekkert höfum vér inn í heiminn flutt og ekki getum vér heldur flutt neitt út þaðan. Ef vér höfum fæði og klæði, þá látum oss það nægja. En þeir, sem ríkir vilja verða, falla í freistni og snöru og alls kyns óviturlegar og skaðlegar fýsnir, er sökkva mönnunum er rót alls þess, sem illt er. Við þá fíkn hafa nokkrir villst frá trúnni og valdið sjálfum sér mörgum harmkvælum. 1.Tím.6:3-10.

27.6.10
Amen


orð í dag.

6.6.10

Og hinir vitru munu skína eins og ljómi himinhvelfingarinnar og þeir, sem leitt hafa marga til réttlætis, eins og stjörnurnar um aldur og ævi. Heart Margir munu verða klárir, hreinir og skírir, en hinir óguðlegu munu breyta óguðlega, og engir óguðlegir munu skilja það, en hinir vitru munu skilja það. Daníel.12: 3. 10.Heart

HeartDrottinn Jesús Kristur blessi ykkur sem lesaHeart

9..4..10..
AmenHeart

 


orð í dag.

5.6.10.

Fyrst þér því eruð uppvaktir með Kristi, þá keppist eftir því, sem er hið efra, þar sem Kristur situr við hægri hönd Guðs. Kól.3:1.Heart

HeartDrottinn Jesús Kristur blessi ykkur sem lesa Heart

9..4..10..
Amen

orð í dag

4.6.10.

En hjá Drottni, Guði vorum, er miskunnsemi og fyrirgefning, því að vér höfum verið honum mótsnúnir  og ekki hlýtt raustu Drottins guðs vors, að breyta eftir boðorðum hans, þeim er hann fyrir oss lagði fyrir munn þjóna sinna, spámannanna. Daníel.9:9-10.Heart

             HeartDottinn Guð blessi ykkurHeart

12.4.10.
Amen

 


orð í dag

3.6.10.

Hræðist ekki þá, sem líkamann deyða, en fá ekki deytt sálina. Hræðist heldur þann, sem megnar að tortíma bæði sálu og líkama í helvíti. Matt.10:28.Heart

Haltu fast í agann, slepptu honum ekki, varðveittu hann, því að hann er líf þitt. Orðs.4:13Heart

2 des 09
Amen

orð í dag

2.6.10.

Vakið því allar stundir og biðjið, svo að þér megið umflýja allt þetta, sem koma á, og standast frammi fyrir mannssyninum." Lúk.21:36.Heart

Sérhver, sem trúir á Krist, mun ekki verða til skammar.Róm.9:33.Heart

HeartDrottinn blessi ykkur sem lesa þettaHeart

14.03.10
Amen

orð í dag

1.6.10

Ef einhver er í Kristi, er hann skapaður á ný, hið gamla varð að engu, sjá, nýtt er orðið til. 2.Kor.5:17.Heart

Allt er frá Guði, sem sætti oss við sig fyrir Krist og gaf oss þjónustu sáttargjörðarinnar. 2.Kor.5:18.Heart

6.4.10.
AmenHeart

orð í dag

30.5.10

Því ég mun gefa yður orð og visku, sem engir mótstöðumenn yðar fá staðið í gegn né hrakið. Lúk.21:15.

Jesús sagði biðjið
Amen

orð í dag.

25.5.10.AHH

Drottinn er góður, athvarf á degi neyðarinnar, og hann þekkir þá sem treysta honum.Nahúm.1:7.

Um Jesúm; ,,Ekki er hjálpræðið í neinum. Og ekkert annað nafn er mönnum gefið um víða veröld, sem getur frelsað oss." Post.4:12.

16.4.10.
Amen

orð í dag

19..5..10..

Og hann tók sig upp og fór til föður sins. En er hann var enn langt í burtu, sá faðir hans hann og kenndi í b´rjósti um hann, hljóp og féll um háls honum og kyssti hann. Lúk.15:20.

Guð er enginn hlutur um megn. Lúk.1:37.

Ef einhver óttast Drottin, mun hann kenna honum veg þann, er hann á að velja. Sálm.25:12.

Hreinum.2.maí.2009
Amen

orð í dag.

18.5.10.

Hann dæmir heiminn með réttvísi, heldur réttlátan dóm yfir þjóðunum.  Hinum snauða verður eigi ávallt gleymt, von hinna hrjáðu bregst eigi sífellt. Sálm.9:9 og 19.

Ég vil lofa þig, Drottinn, af öllu hjarta, segja frá öllum þínum dásemdarverkum. Sálm.9:2.

4.5.10
Amen

orð í dag.

17.5.10.

Um tvennt bið ég þig, synja mér þess eigi, áður en ég dey; Lát fals og lygaorð vera fjarri mér, gef mér hvorki fátækt né auðæfi, en veit mér minn deildan verð. Ég kynni annars að verða of saddur og afneita og segja; ,,Hver er Drottinn?" eða ef ég yrði fátækur, kynni ég að stela og misbjóða nafni Guðs míns. Orðskv.30:7-9.

Ræg eigi þjóninn við húsbónda hans, svo að hann biðji þiðji þér ekki óbæna og þú verðir að gjalda. Orðskv.30:10.

Elsku Jesús.7.maí.2009
Amen

orð í dag.

16.5.10.

Brákaðan reyrinn brýtur hann ekki sundur, og dapran hörkveik slökkur hann ekki. Hann boðar réttinn með trúfesti. Jes.42:3

Þú skalt vegsama Drottin Guð þinn fyrir landið góða, sem hann gaf þér. 5.Mós.8:10.

5.4.10.
Amen

orð í dag.

15.5.10.

Því brýni ég yður, bræður, að þér,vegna miskunnar Guðs, bjóðið fram sjálfa yður að lifandi, heilagri, Guði þóknanlegri fórn. Það er sönn og rétt guðsdýrkun af yðar hendi.  Hegðið yður eigi eftir öld þessari, heldur takið háttaskipti með endurnýjung hugarfarsins svo að þér fáið að reyna, hver sé vilji Guðs, hið góða, fagra og fullkomna. Róm.12:1-2.

frelsarinn góði
Amen

orð í dag.

14.5.10.

En ávöxtur andans er; Kærleiki, gleði, friður, langlyndi, gæska, góðvild, trúmennska,  hógværð og bindindi.  Gegn slíku er lögmálið ekki.  En þeir, sem tillheyra kristi Jesú, hafa krossfest holdið með ástríðum þess og girndum. Gal.5:22-24.

hjarta Jesús Krist

Amen


orð í dag

13.5.10.

En þann sem blygðast sín fyrir mig og mín orð, mun Mannssonurinn blygðast sín fyrir, er hann kemur í dýrð sinni og föðurins og heilagra engla. Lúk.9:26

Jesús sagði biðjið
Amen

orð í dag.

12.5.10

Lítið ekki aðeins á eigin hag, heldur einnig annarra. Filip.2:4.

Verið með sama hugarfari sem Jesús Kristur var.   Hann var í Guðs mynd. En hann fór ekki með það sem feng sinn að vera Guði líkur. Filip.2:5-6.

gud_290701
Amen

orð í dag

11.5.10

Þeir eru gróðursettir í húsi Dtottins, gróa í forgörðum Guðs vors. Jafnvel í hárri elli bera þeir ávöxt, þeir eru safamiklir og grænir.  Þeir kunngjöra, að Drottinn er réttlátur, klettur minn, sem ekkert ranglæti er hjá. Sálm.92:14-16.

Drottinn er konungur orðinn! Hann hefir íklæðst hátign, Drottinn hefir skrýðst, hann hefir spennt sig belti styrkleika síns og fest jörðina, svo að hún haggast eigi. Sálm.93:1.

21 ágúst 2009
Amen

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Gunnlaugur Halldór Halldórsson
Gunnlaugur Halldór Halldórsson

Ég elska Jesús. gunnlaugurh62@gmail.com

146 dagar til jóla

Júlí 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (31.7.): 8
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 76
  • Frá upphafi: 217349

Annað

  • Innlit í dag: 7
  • Innlit sl. viku: 58
  • Gestir í dag: 7
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu færslur

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband