Dagurinn í dag

27.2.11Dagur 4 í lífi mínu með nýja fortíð. Maður þarf ekkert að óttast ef maður trúi á Guð Jesús Krist.

Jesús sagði: ,,Óttast ekki, trú þú aðeins." Matt.5:36.

Jesús sagði: ,,Mínir sauðir heyra raust mína, og ég þekki þá, og þeir fylgja mér. Ég gef þeim eilíft líf, og þeir skulu aldrei að eilífu glatast, og enginn skal slíta þá úr hendi minni." Jóh.10:27-28.

Verið ávallt glaðir í Drottni. Ég segi aftur: Verið glaðir. Fil.4:4.

 


Dagurinn í dag

26.2.113 dagur í lífi mínu með nýja fortíð ég ætlar að taka á ótta mínum læt líf mitt í hendur Guðs.

Jesús sagði: ,,Elskið óvini yðar, og biðjið fyrir þeim, sem ofsækja yður." Matt.5:44.

Drottinn er í nánd. Fil.4:5.

Heiðra föður þinn og móður þína, eins og Drottinn Guð þinn hefir boðið þér, svo að þú verðir langlifur og svo að þér vegni vel í því landi, sem Drottinn Guð þinn gefur þér. 5.Mós.5:16.


manchester united

að skora

Stórsigur á útivelli enska úrvalsdeildinni 26.2.2011.

Wigan...0..Manchester United...4

Manchester United van stórsigur á útivelli gegn Wigan í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag Hernandez kom man utd yfir með marki á 17 mínútu og hann bætti við öðru marki á 74, Wayne Rooney bætti því þríðja við á 84, og Da Silva skoraði fjórða markið þremur mínútum fyrir leikslok. man utd er með fjögurra stiga forskot á Arsenal en bæði liðin hafa leikið 27 leiki man utd er með 60 stig wn Arsenal er með 56 stig.

Ferguson: frábær seinni hálfleikur. eru á toppi ensku

Hernandez með 2 mörk
Rooney 27.2.11
Rooney skoraði og lagði upp mark gegn Wigan
Rooney skoraði og lagði upp mark gegn Wigan

 


manchester united

Ferguson 25.2.11Ferguson: Annaðhvort Manchester United eða Arsenal verður Englandsmeistara.

imagesCA1K13TB

Dagurinn í dag.

25.2.11.Dagur 2 ný fortíð í lífi mínur.

Sæll er sá, er afbrotin eru fyrirgefin, synd hans hulin. Sálm.32:1

Hafið því nákvæma gát á, hvernig þér breytið, ekki sem fávísir, heldur sem vísir. Notið hverja stund, því að dagarnir eru vondir. Efes.5:15-16.

Sæll er hver sá, er óttast Drottin, er gengur á hans vegum. Já afla handa þinna skalt þú njóta. Sæll ert þú,vel farnast þér. Sálm.128:1-2.

Guð fyrirgefur.


Dagurinn í dag

Gulli Dóri. edrú dagur 24,2.11Þetta er dagurinn minn 24 Febrúar 2011 sem ég ætlar að búa til nýja fortíð.

Jesús sagði: ,,Hvar,sem tveir eða þrír eru saman komnir í mínu nafni, þar er ég mitt á meðal þeirra." Matt.18:20.

Ef einhver er í Kristi, er hann skapaður á ný, hið gamla varð að engu, sjá nýtt er orðið til. 2.Kor.5:17.


manchester united

Rooney mitt besta mark
Old Trafford13.2 2011
Manchester United...2..Manchester City...1
Rooney áttir stór leik
Rooney með flott mark..

 

 

 


orð í dag.

engilGuð er góðu og elska þig og mig í dag og allar dagar.Amen.

Vertu, Guð faðir, faðir minn, í frelsarans Jesú nafni. Hönd þín leiði mig út og inn, svo allri synd ég hafni.

Jesús Kristur, Guðs Sonur, vertu mér syndugum líknsamur.

Faðir minn á himnum, þú veist, hvaða verkefni ég á í vændum í dag þótt ég kunni að gleyma þér, þá gleymdu mér ekki.

Heyr mína bæn: Almáttugi, eilífi Guð. Í trausti til miskunnar þinnar nálgast ég þig. Ver mér náðugur og heyr mína bæn. Varpa mér ekki burt frá augliti þínu og tak ekki þinn Heilaga anda frá mér. Sál mín er hljóð frammi fyrir Guði einum. Frá honum kemur hjálp mín. Guð minn, þú talar til mín í orði þínu. Hjálpa mér að heyra og hlýða himneski, góði faðir.  Heyr mína bæn.


orð í dag.

2.2.11Þér eruð verði keyptir verðið ekki þrælar manna. 1.Kor.7:23.

Bræður, sérhver verði frammi fyrir guði kyrr í þeirri stétt, sem hann var kallaður í. 1.Kor.7:24.

Svo elskaði Guð heiminn, að hann gaf einkason sinn, til þess að hver sem á hann trúir, glatist ekki, heldur hafi eilíft líf. Jóh.3:16.

Drottinn blessi allar sem lesa.


manchester united.

Rooney fagnar fyrra marki sínu

Old Trafford:Úrvalsdeidinni.1.2.2011.

Manchester United...3..Aston Villa...1..

Wayne Rooney með tvennu í kvöld.

Manchester united eru áfram með fimm stiga forskot.

Það tók manchester united 50 sekúndur að komast í 1 - 0 Edwin van der Sar var fljótur að taka aukaspyrnu fyrir framan teiginn og sendi hárnákvæma sendingu inn fyrir á Rooney sem tók boltann niður og afgreiddi hann glæsilega í markið.

Manchester United ætlar ekkert að gefa eftir í ensku úrvalsdeidinni og lék í kvöld sinn 29 deildarleik í röð án þess að tapa.

Wayne Rooney skoraði sína fystu tvennu síðan í mars á síðasta ári

Rooney þrumar boltanum í mark villa

Wayne Rooney í stuði í kvöld gegn Aston Villa

united...3..villa...1..

 


orð í dag.

1.2.11.Drottinn er minn hirðir, mig mun ekkert bresta. Amen. Sálm.23.

Framar ber að hlýða Guði en mönnum. Amen. Post.5:29.

Trúr er Guð, sem yður hefir kallað til samfélags sonar síns, Jesú Krists, Drottins vors. Amen. 1.Kor.1:9.

Drottinn Jesús blessi allar sem lesa.


orð í dag.

31.1.11.

En hversu torskildar eru mér hugsanir þínar, ó Guð, hversu stórkostlegar eru þær allar samanlagðar.  Ef ég vildi telja þær, væru þær fleiri en sand kornin, ég mundi vakna og vera enn með hugann hjá þér. Amen. Sálm.139:17.18.

Legg kapp á að reynast hæfur fyrir Guði sem verkamaður, er ekki þarf að skammast sín og fer rétt með orð sannleikans. Amen. 2.Tím.2:15.

Drottinn Jesús blessi allar sem lesa.


orð í dag.

30.1.11.

Til þín hef ég augu mín, þú sem situr á himnum.  Eins og augu þjónanna mæna á hönd húsbónda síns, eins og augu ambáttarinnar mæna á hönd húsmóður sinnar, svo mæna augu vor á Drottin, Guð vorn, uns hann líknar oss. Amen. Sálm.123:1.2.

Guð auðsýnir kærleika sinn til vor, þar sem Kristur er fyrir oss dáinn, meðan vér enn vorum í syndum vorum. Amen. Róm.5:8.

Drottinn Jesús blessi allar sem lesa.


manchester united.

Michael Owen fagnar marki sínu

Michael Owen fagnar marki sínu

Bikarkeppni í ensku.29.1.2011.

Southampton...1..Manchester United...2..

Javier Hernandez tryggði united sigur skaut manchester united áfram í 5 umferð ensku bikarkeppninnar í knattspyrnu þegar hann skoraði sigurmarkið í 2 - 1 sigri gegn C deildarliði Southampton á st.marys.

Michael Owen og Javier Hernandez skoruðu fyrir manchester united í seinni hálfleik.

united komst áfram í bikarnum

Í leik Southampton og Manchester United sem fór 1 - 2 fyrir united

Javier skorar sigurnark

Ferguson: Hrósaði Hernandez.

 

 


orð í dag.

29.1.11

Sökum þess að þú ert dýrmætur í mínum augum og mikils metinn, og af því að ég elska þig, þá legg ég menn í sölurnar fyrir þig og þjóðir fyrir líf þitt.  Óttast þú eigi, því að ég er með þér. Ég kem með niðja þína úr austri og safna þér saman úr vestri. Amen. Jes.43:4-5.

Hjálp mín kemur frá Drottni, skapara himins og jarðar. Amen. Sálm.121:2.

Drottinn Jesús blessi allar sem lesa.


orð í dag.

28.1.11.

Og hann rétti út höndina yfir lærisveina sína og sagði: ,,Hér er móðir mín og bræður mínir. Hver sem gjörir vilja föður míns, sem er á himnum, sá er bróðir minn, systir og móðir." Amen. Matt.12:49-50.

Augu Guðs hvíla yfir vegum hvers manns, og han sér öll spor hans. Amen. Job.34:21.

Drottinn Jesús blessi allar sem lesa.

 


manchester united.

Alex Ferguson og Ryan Giggs á góðri stundu

Giggs: Fimm ár enn hjá Ferguson

Ryan Giggs, hinn reyndi leikmaður manchester united, kveðst fullviss um að Alex Ferguson verði áfram knattspyrnustjóri félagsins næstu fimm árin þó hann sé orðinn 69 ára gamall.

Hann styrkist bara með aldrinum.

Edwin van der Sar.leggur skóna og hanskana á hilluna

Edwin van hætti í vor.

Edwin van der Sar hollenski markvörðurinn hjá manchester united tilkynnti að hann myndi leggja skóna og hanskana á hilluna að þessu keppnistímabili loknu. Hann var fertugur í haust og hefur varið mark united í hálft sjötta ár og verið einn besti markvörður ensku úrvalsdeildarinnar á þeim tíma.

Alex Ferguson og Paul Scholes 28.1.11

Alex Ferguson vill halda í Paul Scholes.


orð .i dag

27.1.11.

Þér eru þegar hreinir vegna orðsins, sem ég hef talað til yðar.  Verið  í mér, þá verð ég í yður. Eins og greinin getur ekki borið ávöxt af sjálfri sér, nema hún sé á vínviðnum, eins getið þér ekki heldur borið ávöxt nema þér séuð í mér. Amen. Jóh.15:3-4.

Kristur Jesús tók á sig mein vor og bar sjúkdóma vora. Amen. Matt.8:17.

Drottinn Jesús blessi allar sem lesa


manchester united.

Paul Scholes í leik

Framtíð Scholes í óvissu...

Paul Scholes er enn óviss um hvort að hann verði enn leikmaður hjá manchester united á næstu leiktíð.  Scholes er 36 ára gamall og spilaði með united gegn Blackpool í ensku úrvalsdeildinni í gær. Leiknum lauk með 3 - 2 sigri united og lagði Scholes upp fyrsta mark liðsins fyrir Dimitar Berbatov. 

Þetta var fyrsti leikur Scholes með united síðan í lok nóvember og hann var ánægður með að vera byrjaður að spila á ný.

Ég veit ekki hvað ég mun gera á næsta tímabili. Ég vil bara einbeita mér að því að spila eins mikið og ég get sagði hann í viðtali á MUTV.

Ég vil gjarnan taka 1 - 2 vikur í frí um jólin en nú var ég aðeins lengur frá sem var ekki það sem ég ætlaði mér bætti hann við. Vonandi kemst ég í enn betra form á næstu vikum enda margir erfiðir leikir á útivelli fram undan.

cb5c4bd9-d9c1-48cc-b2cf-7a98ff94f323

orð í dag

  • 26.1.11.
  • Ég er með þér - segir Drottinn - til þess að frelsa þig. Ég vil gjöreyða öllum þeim þjóðum, sem ég hefi tvístrað þér á meðal. Þér einni vil ég ekki gjöreið, heldur vil ég hirta þig í hófi, en ég vil ekki láta þér með öllu óhegnt. Amen. Jer.30:11.

Jesús sagði: ,,Allt, sem þér viljið, að aðrir menn gjöri yður, það skuluð þér og þeim gjöra." Amen. Matt.7:12.

Drottinn Jesús gef mér kraft til að vera góður við allar og heiðalegu

Drottinn Jesús blessi allar sem lesa.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Gunnlaugur Halldór Halldórsson
Gunnlaugur Halldór Halldórsson

Ég elska Jesús. gunnlaugurh62@gmail.com

151 dagur til jóla

Júlí 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.7.): 11
  • Sl. sólarhring: 13
  • Sl. viku: 78
  • Frá upphafi: 217294

Annað

  • Innlit í dag: 9
  • Innlit sl. viku: 63
  • Gestir í dag: 8
  • IP-tölur í dag: 8

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu færslur

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.