Bæn dagsins.

Jesús sagði: ,,Allt vald er mér gefið á himni og jörðu. Farið því og gjörið allar þjóðir, að lærisveinum, skírið þá í nafni föður, sonar og heilags anda, og kennið þeim að halda allt það, sem ég hefi boðið yður." Matt.28:18-20.

Ég er almáttugur Guð. Gakk þú fyrir mínu augliti og ver grandvar. 1.Mós. 17:1

Minnist bandingjanna, sem væruð þér sambandingjar þeirra. Minnist þeirra, er illt líða, þar sem þér sjálfir eruð einnig með líkama. Heb.13.3.


Markúsarguðspjall.

Skiljið þig ekki enn?

Um þessa mundir bar enn svo við að mikill mannfjöldi var saman kominn og hafði ekkert til matar.Jesús kallar þá til sín lærisveinana og sagir við þá: ,, Ég kenni í brjósti um mannfjöldann. Menn hafa nú verið hjá mér þrjá daga og hafa ekkert til matar. Láti ég þá fara fastandi heim til sín örmagnast þeir á leiðinni en sumir þeirra eru langt að." Þá svöruðu lærisveinarnir: ,,Hvar er hægt að fá brauð til að metta þetta fólk hér í óbyggðum?" Hann spurði þá: ,,Hve mörg brauð hafið þið?" Þeir sögðu: ,,Sjö." Þá bauð Jesús fólkinu að setjast á jörðina, tók brauðin sjö, gerði þakkir og braut þau og gaf lærisveinum sínum að þeir bæru þau fram. En þeir báru þau fram fyrir fólkið. Þeir höfðu og fáeina smáfiska. Hann bað Guð að blessa þá og bauð að einnig þeir skyldu bornir fram. Menn neyttu og urðu mettir. Síðan tóku lærisveinarnir saman leifarnar, sjö körfur. En þar voru um fjögur þúsund manns. Síðan lét hann fólkið fara. Og hann sté þegar í bátinn með lærisveinum sínum og kom í Dalmanútabyggðir. Þangað komu farísear og tóku að þrátta við Jesú, þeir vildu freista hans og kröfðu hann um tákn af himni. Hann andvarpaði þungan og mælti: ,,Hví heimtar þessi kynslóð tákn? Sannlega segi ég ykkur: Þessari kynslóð verður alls ekki gefið tákn." Hann skildi síðan við þá, sté aftur í bátinn og fór yfir um. Mark.8:1-13.


Bæn dagsins

Drottinn er minn hjálpari, eigi mun ég óttast. Hvað geta mennirnir gjört mér? Heb.13:6.

Ég fulltreysti einmitt því, að Guð, sem byrjaði í yður góða verkið, muni fullkomna það allt til dags Jesú Krists. Fil.1.6.

Guði séu þakkir, sem gefur oss sigurinn fyrir Drottin vorn Jesúm Krist! 1.kor.15:57.


Bæn dagsins

Drottinn agar þann, sem hann elskar, og hirtir harðlega hvern þann son, er hann að sér tekur. Þolið aga. Heb.12:6-7.

Ef Guð er með oss, hver er þá á móti oss? Róm.8:31.


Bæn dagsins

Guð er enginn hlutur um megn. Lúk.1:37.

Hjálp vor er fólgin í nafni Drottins, skapara himins og jarðar. Sálm. 124:8.

Kenn oss að telja daga vora, að vér megum öðlast viturt hjarta Sálm.90:12.


Markúsarguðspjall.

Allt gerir hann vel

Síðan hélt Jesús úr Týrusarbyggðum, um Sídon og yfir Dekapólisbyggðir miðjar til Galíleuvatns. Þá færa menn til hans daufan og málhaltan mann og biðja hann að leggja hönd sína yfir hann. Jesús leiddi hann afsíðis frá fólkinu, stakk fingrum sínum í eyru honum og vætti tungu hans með munnvatni sínu. Þá leit hann upp til himins, andvarpaði og sagði við hann: ,,Effaþa," það er:Opnist þú. Og eyru hans opnuðust og haft tungu hans losnaði og hann talaði skýrt. Jesús bannaði þeim að segja þetta neinum en svo mjög sem hann bannaði þeim því frekar sögðu þeir frá því. Menn undruðust mjög og sögðu: ,,Allt gerir hann vel, daufa lætur hann heyra og mállausa mæla." Mark.7:31-37.


Bæn dagsins.

Hann, sem þyrmdi ekki sínum eigin syni, heldur framseldi hann fyrir oss alla, hví skyldi hann ekki líka gefa oss allt með honum? Róm.8:32

Sá, sem trúir á soninn, hefir eilíft líf, en sá, sem óhlýðnast syninum, mun ekki sjá lífið, heldur varir reiði Guðs yfir honum. Jóh.3:36.

Gjörið iðrun, himnaríki er í nánd. Matt.4:17.


Markúsarguðspjall.

Eigi fékk hann dulist

Jesús tók sig upp þaðan og hélt til byggða Týrusar. Þar fór hann inn í hús og vildi engan láta vita. En eigi fékk hann dulist. Kona ein frétti þegar af honum og kom og féll honum til fóta en dóttir hennar hafði óhreinan anda. Konan var heiðin, ættuð úr Fönikíu sýrlensku. Hún bað Jesú að reka illa andann út af dóttur sinni. Hann sagði við hanna: ,,Lofaðu börnunum að seðjast fyrst, ekki sæmir að taka brauð barnanna og kasta því fyrir hundana." Hún svaraði honum: ,,Satt er það, herra, þó eta hundarnir undir borðinu af molum barnanna." Og Jesús sagði við hana: ,,Vegna þessara orða  skaltu heim snúa, illi andinn er farinn úr dóttir þinni." Hún fór heim, fann barnið liggjandi á rúminu og illi andinn var farinn. Mark.7:24-30.


Bæn dagsins.

Þá heyrði ég raust Drottins. Hann sagði: ,,Hvern skal ég senda? Hver vill vera erindreki vor?" Og ég sagði: ,,Hér er ég,send þú mig!" Jes.6:8

Mannssonurinn er ekki kominn til þess að láta þjóna sér, heldur til að þjóna og gefa líf sitt til lausnargjalds fyrir marga Matt. 20.28.

Fel þú Drottni verk þín, þá mun áformum þínum framgangt verða. Orðskv.  16:3.


Markúsarguðspjall.

Hið ytra og innra

Nú safnast að Jesú farísear og  nokkrir fræðimenn, komnir frá Jerúsalem. Þeir sáu að sumir lærisveina hans neyttu matar með vanhelgum, það er óþvegnum, höndum. En farísear, og reyndar Gyðingar allir, eta ekki nema þeir þvoi hendur sínar og fylgja þannig erfðavenju forfeðra sinna. Og ekki neyta þeir matar þegar þeir koma frá torgi nema þeir hreinsi sig áður. Þeir fara einnig eftir mörgum öðrum fyrirmælum sem þeim hefur verið kennt, svo sem að hreinsa bikara, könnur og eirkatla. Farísearnir og fræðimennirnir spyrja hann: ,,Hvers vegna fylgja lærisveinar þínir ekki erfðavenju forfeðranna heldur neyta matar með vanhelgum höndum?" Jesús svarar þeim: ,,Sannspár var Jesaja um ykkur hræsnara þar sem ritað er: Þessir menn heiðra mig með vörunum en hjarta þeirra er langt frá mér. Til einskis dýrka þeir mig því að þeir kenna það eitt sem menn hafa samið. Þið hafnið boðum Guðs en haldið erfikenning manna." Enn sagði Jesús við þá: ,,Listavel gerið þið að engu boðorð Guðs svo þig getið rækt erfikenning ykkar. Móse sagði: Heiðra föður þinn og móður þína, og Hver sem formælir föður eða móður skal deyja. En þið segið: Ef maður segir við föður sinn eða móður: það sem ég hefði átt að styrkja þig með er korban ég gef það til musterisins, þá leyfið þið honum ekki framar að gera neitt fyrir föður sinn eða móður. Þannig látið þið erfikenning ykkar, sem þið fylgið, ógilda orð Guðs. Og margt annað gerið þið þessu líkt."Aftur kallaði Jesús til sín mannfjöldann og sagði: ,,Heyrið mig öll og skiljið. Ekkert er það utan mannsins er saurgi hann þótt inn í hann fari. Hitt  saurgar manninn sem út frá honum fer. Ef einhver hefur eyru að heyra, hann heyri! Þegar Jesús var kominn inn frá fólkinu spurðu lærisveinar hans hann um líkinguna. Og hann sagir við þá: ,,Eruð þið einnig svo skilningslausir? Skiljið þið ekki að ekkert sem fer inn í manninn utan frá getur saurgað hann? því að ekki fer það inn í hjarta hans heldur maga og út síðan í safnþróna. Þannig lýsti hann alla fæðu hreina. Og hann sagði: ,,Það sem fer út frá manninum það saurgar manninn. Því að innan frá, úr hjarta mannsins, koma hinar illu hugsanir, saurlifnaður, þjófnaður, manndráp, hórdómur, ágirnd, illmennska, sviksemi, taumleysi, öfund, lastmælgi, hroki, heimska. Allt þetta illa kemur innan að og saurgar manninn." Mark.7:2-23.


Bæn dagsins.

Öllum þeim, sem tóku við honum (Jesú), gaf hann rétt til að verða Guðs börn, þeim er trúa á nafn hans. Jóh.1:12.

Varpa áhyggjum þínum á Drottin, hann mun bera umhyggju fyrir þér, hann mun eigi að eilífu láta réttlátan mann verða valtan á fótum. Sálm.55:23.

Um Krist: ,,Vér mátum hann einskis. En vorar þjáningar voru það, sem hann bar, og vor harmkvæli, er hann á sig lagði." Jes.53:3-4.


Markúsarguðspjall.

Það var ég 

Tafarlaust knúði Jesús lærisveina sína að fara í bátinn og halda á undan yfir Betsaídu meðan hann sendi fólkið brott. Og þá er hann hafði kvatt það fór hann til fjalls að biðjast fyrir. Þegar kvöld var komið var báturinn á miðju vatni en Jesús einn á landi. Hann sá að þeim var þungur róðurinn því að vindur var á móti þeim og er langt var liðið nætur kemur hann til þeirra gangandi á vatninu og ætlar fram hjá þeim. Þegar þeir sáu Jesú ganga á vatninu hugðu þeir að það færi vofa og æptu upp yfir sig. Því að allir sáu þeir hann og urðu skelfdir. En. Jesús mælti jafnskjótt til þeirra: ,,verið hughraustir, það er ég, verið óhræddir. Og hann sté í bátinn til þeirra og lægði þá vindinn. Og þeir urðu öldungis agndofa enda höfðu þeir ekki skilið það sem gerst hafði með brauðin, hjörtu þeirra voru blind.

ÞEIR URÐU HEILIR

Þegar þeir höfðu náð yfir um komu þeir að landi við Genesaret og lögðu það að. Um leið og þeir stigu úr bátnum þekku menn Jesú. Og fólk tók að steypa fram og aftur um allt það hérað og bera sjúklinga í burðarrekkjum hvert þangað sem það heyrði að hann væri. Og hvar sem Jesús kom í þorp, borgir eða bæi lögðu menn sjúka á torgin og báðu hann að þeir fengju rétt að snerta fald klæða hans og allir þeir sem snertu hann urðu heilir. Mark.6:45-56

 


Bæn dagsins.

Jesús sagði: ,,Hver, sem vill fylgja mér, afneiti sjálfum sér, taki kross sinn daglega og fylgi mér." Lúk.9:23.

Drottinn er góður, athvarf á degi neyðarinnar, og hann þekkir þá, sem treysta honum. Nahúm.1:7.

Hjálp mín kemur frá Drottni, skapara himins og jarðar. Sálm. 121:2.


Bæn dagsins.

Vísa mér veg þinn,Drottinn, lát mig ganga í sannleika þínum, gef mér heilt hjarta, að ég tigni nafn þitt. sálm.86:11.

Þann, sem þekkti ekki synd, gjörði hann að synd vor vegna, til þess að vér skyldum verða réttlæti Guðs í honum. 2.Kor.5:21.

Ég fyrirverð mig ekki fyrir fagnaðarerindið. Það er kraftur Guðs til hjálpræðis hverjum þeim, sem trúir. Róm.1:16.


Markúsarguðspjall.

Jesús mettar

Postularnir komur nú aftur til Jesú og sögðu honum frá öllu því er þeir höfðu gert og kennt. Hann sagði við þá: ,,Komið nú á óbyggðan stað, svo að við séum saman, og hvílist um stund." En fjöldi fólks var stöðugt að koma og fara svo að þeir höfðu ekki einu sinni næði til að matast. Og þeir fóru á bátnum einir saman á óbyggðan stað. Menn sáu þá fara og margir þekktu þá og nú streymdi fólk þangað gangandi úr öllum borgunum og varð á undan þeim. Þegar Jesús steig á land sá hann þar margt manna og hann kenndi í brjósti um þá því að þeir voru sem sauðir er engan hirði hafa. Og hann kenndi þeim margt. Þá er mjög var áliðið dags komu lærisveinarnir að máli við Jesú og sögðu: ,,Hér er engin mannabyggð og langt á daginn liðið. Lát fólkið fara svo að það geri náð til býla og þorpa hér í kring og keypt sér eitthvað til matar." En Jesús svaraði þeim: ,,Gefið því sjálfir að eta." Þeir svara honum: ,,Eigum við að fara og kaupa brauð fyrir tvö hundruð denara og gefa því að eta?" Jesús spyr þá: ,,Hve mörg brauð hafið þið? Farið og gætið að." Þeir hugðu að og svöruðu: ,, Fimm brauð og tvo fiska." Þá bauð hann þeim að láta alla setjast í grængresið og skipta sér í hópa. Fólkið settist niður í flokkum, hundrað í sumum en fimmtíu í öðrum. Og Jesús tók brauðin fimm og fiskana tvo, leit upp til himins, þakkaði Guði, braut brauðin og gaf lærisveinunum til að bera fram fyrir mannfjöldann. Fiskunum tveim skipti hann og meðal allra. Og allir neyttu og urðu mettir. Þeir tóku saman brauðbitana er fylltu tólf körfur, svo og fiskleifarnar. En þeir sem brauðanna neyttu voru fimmþúsund karlmenn. Mark.6:30-44.


Bæn dagsins.

Varpið allri áhyggju yðar á hann, því að hann ber umhyggju fyrir yður. 1.Pét.5:7.

Drottinn er nálægur öllum, sem ákalla, hann, öllum,sem ákalla hann í einlægni. Sálm.145:18.

Jesús sagði: ,,Himinn og jörð munu líða undir lok, en orð mín munu aldrei undir lok líða." Mark.13:31.


Markúsarguðspjall.

Heródes uggandi

Heródes konungur ftéttir þetta enda var nafn Jesú orðið víðfrægt. Sögðu sumir: ,,Jóhannes skírari er risinn upp frá dauðum, þess vegna gerir hann þessi kraftaverk." Aðrir sögðu: ,,Hann er Elía," enn aðrir: ,,Hann er spámaður eins og spámennirnir fornu." Þegar Heródes heyrði þetta sagði hann: ,,Jóhannes, sem ég lét hálshöggva, hann er upp risinn.2 En Heródes hefði sent menn að taka Jóhannes höndum, fjötra hann og varpa í fangelsi vegna Heródísar, konu Filippusar, bróður síns. Hann hafði gengið að eiga hana en Jóhannes hafði sagt við Heródes: ,,Þú mátt ekki eiga konu bróður þíns." Þess vegna lagði Heródes fæð á Jóhannes og vildi deyða hann en gat ekki því að Heródes hafði beyg af honum og verndaði hann þar eð hann vissi að hann var maður réttlátur og heilagur. Hann komst í mikinn vanda þegar hann hlýddi á mál hans en þó var honum ljúft að hlusta á hann. En nú kom hentugur dagur. Á afmæli sínu gerði Heródes veislu gæðingum sínum, hershöfðingjum og fyrirmönnum Galíleu. Dóttir Heródísar gekk þar inn og sté dans. Hún hreif Heródes og gesti hans og konungur sagði við stúlkuna: ,,Bið mig hvers þú vilt og mun ég veita þér." Og Heródes sór henni: ,,Hvað sem þú biður um það mun ég veita þér, allt að helmingi ríkis míns." Hún gekk þá út og spurði móður sína: ,,Um hvað á ég að biðja?" Hún svaraði: ,,Höfuð Jóhannesar skírara." Jafnskjótt skundaði hún til konungs og bað hann: ,, Gef mér þegar á fati höfuð Jóhannesar skírara." Konungur varð hryggur við en vegna eiðsins og gæska sinna vildi hann ekki synja henni þessa heldur sendi þegar böðul og bauð að færa sér höfuð Jóhannesar. Hann fór og hjó af höfuð Jóhannesar í fangelsinu, kom með höfuð hans á fati og færði stúlkunni en stúlkan móður sinni. þegar lærisveinar hans fréttu þetta komu þeir, tóku lík Jóhannesar og lögðu í gröf. Mark.6:14-29.  


Bæn dagsins

Flý þú æskunnar girndir, en stunda réttlæti, trú, kærleika og frið við alla þá, sem ákalla Drottin af hreinu hjarta. 2.Tím.2.22.

Síðasta daginn, hátíðardaginn mikla, stóð Jesús þar og kallaði: ,,Ef nokkurn þyrstir, þá komi hann til mín og drekki." Jóh.7:37.

Lát ekki hið vonda yfirbuga þig, heldur sigra þú illt með góðu. Róm.12:21.


Markúsarguðspjall.

Í Nasaret

Þaðan fór Jesús og kom í ættborg sína og lærisveinar hans fylgdu honum. Þegar hvíldardagur var kominn tók hann að kenna í samkundunni. Fjöldinn sem á hlýddi undraðist stórum. Menn sögðu: ,,Hvaðan kemur honum þetta? Hver er sú speki sem honum er gefin og hvernig getur hann gert slík kraftaverk? Er þetta ekki smiðurinn, sonur Maríu, bróðir þeirra Jakobs, Jóse, Júdasar og Símonar? Og eru ekki systurhans hér hjá okkur?" Og þeir hneyksluðust á honum. Þá sagði Jesús: ,,Hvergi er spámaður minna metinn en í landi sínu, með frændfólki sínu og heimamönnum." Og hann gat ekki gert þar neitt kraftaverk nema hann lagði hendur yfir nokkra sjúka og læknaði þá. Og hann undraðist vantrú þeirra. Mark.6:2-6.

Postular sendir.

Jesús fór nú um þorpin þar í kring og kenndi. Og hann kallaði þá tólf til sín, að senda þá út, tvo og tvo, og gaf þeim vald yfir óhreinum öndum. Hann bauð þeim að taka ekkert til ferðarinnar annað en staf, ekki brauð, mal né peninga í belti. Þeir skyldu hafa skó á fótum en ekki tvo kyrtla. Og hann sagði við þá: ,,Hvar sem þið fáið inni, þar sé aðsetur ykkar uns þið leggið upp að nýju. En hvar sem ekki er tekið við ykkur né á ykkur hlýtt, þaðan skuluð þið fara og hrista dustið af fótum ykkar þeim til viðvörunar." Þeir lögðu af stað og prédikuðu að menn skyldu taka sinnaskiptum, ráku út marga illa anda og smurðu marga sjúka með olíu og læknuðu þá.Mark.6:7-13.


Bæn dagsins.

Þakkið alla hluti, því að það er vilji Guðs með yður í Kristi Jesú. 1.þess.5:18.

Kristur Jesús afmáði dauðann, en leiddi í ljós líf og óforgengileika með fagnaðarerindinu. 2. Tím. 1:10.

Fyrir því hefir og Guð hátt upp hafið hann og gefið honum nafnið, sem hverju nafni er æðra, til þess að fyrir nafni Jesú skuli hvert kné beygja sig á himni, jörðu og undir jörðu og sérhver tunga játa Guði föður til dýrðar: Jesús Kristur er Drottinn. Fil. 2:9-11.

Sæli eru hjartahreinir, því að þeir munu Guð sjá Matt. 5:8.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Gunnlaugur Halldór Halldórsson
Gunnlaugur Halldór Halldórsson

Ég elska Jesús. gunnlaugurh62@gmail.com

223 dagar til jóla

Feb. 2022
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (15.5.): 5
  • Sl. sólarhring: 19
  • Sl. viku: 87
  • Frá upphafi: 216278

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 64
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband