10.1.2022 | 05:05
Bæn dagsins.
Jesús sagði: ,,Þannig verður fögnuður með englum Guðs yfir einum syndara, sem gjörir iðrun." Lúk.15:10.
Jesús sagði: ,,Hjarta yðar skelfist ekki. Trúið á Guð, og trúið á mig." Jóh. 14:1.
Trúmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.1.2022 | 22:36
Bréf Páls til Kólossumanna.
Fyrirmæli
Verið stöðug í bæninni, Biðjið með þakkargjörð. Biðjið jafnframt fyrir mér að Guð opni mér dyr fyrir orðið og ég geti boðað leyndardóm Krists. Hans vegna er ég nú í böndum. Biðjið að ég megi birta hann eins og mér ber að tala. Umgangist þá viturlega sem fyrir utan eru og notið hverja stund. Mál ykkar sé ætíð ljúflegt en salti kryddað til þess að þið vitið hvernig þið eigið að svara hverjum manni. 4:2-6
Trúmál | Breytt s.d. kl. 22:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.1.2022 | 11:08
Bæn dagsins
Jesús sagði: ,,Biðjið, og yður mun gefast, leitið, og þér munuð finna, knýið á, og fyrir yður mun upp lokið verða." Matt.7:7
Drottinn er minn hirðir, mig mun ekkert bresta. Sálm.23:1
Síðasta daginn, hátíðardaginn mikla, stóð Jesús þar og kallaði: ,,Ef nokkurn þyrstir, þá komi hann til mín og drekki." Jóh.7:37
Trúmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.1.2022 | 21:36
Bæn kvöldsin. Bænabók Sunnudagskvöld.
Góði Guð
Þakka þér fyrir helgina sem nú er að baki. Viltu hjálpa mér að vera þér til gleði og öllum til hjálpa og hamingju sem verða á vegi mínum næstu daga. Huggaðu Þá sem syrgja og eiga bágt og hjálpaðu þeim að leita huggunar í orði þínu, Biblíunni. Viltu blessa þjóðina mína í nótt og alla daga. Ég bið þig líka að vera með prestunum og þeim sem heimsækja þá sem eiga erfitt. Ég þakka þér fyrir, Drottinn, að mega segja þér allt. Þú skilur allt og ferð ekki með það lengra. Ég bið fyrir öllum sem hafa sært mig og ég bið þig að hjálpa mér að fyrirgefa þeim. Ég bið þig líka að fyrirgefa mér allt sem ég hef gert rangt og viltu hjálpa þeim að fyrirgefa mér sem ég hef sært. Ég legg mig í þína hendur í nótt og bið að þinn vilji verði í lífi mínu.
Í Jesú nafni, amen.
Trúmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.1.2022 | 14:51
Bæn dagsins. Bænabók Laugardagskvöld.
Góði Guð
Þakka þér fyrir þennan dag sem nú er að baki. Þakka þér fyrir að þú varst með mér í dag, fylgdir mér eftir og hjálpaðir mér. Viltu vaka yfir mér í nótt og öllu mínu fólki. Viltu gefa að við vöknum frísk og heil heilsu í fyrramálið Drottins degi. Hjálpaðu okkur öllum að fara vel með gjafir þínar og vera góð hvert við annað. Ég bið þig Jesús, að þinn vilji verði í lífi mínu, að þú hjálpir mér að líkjast þér í orði og verki. Viltu hjálpa mér að lesa orðið þitt, Biblíuna, og gefa mér skilning á því sem ég les. Varðveittu skref mín frá hrösun og verndaðu mig og allt mitt fólk frá öllu illu. Ég fel landið mitt í þínar hendur í nótt og alla daga.
Í Jesú nafni, amen.
Trúmál | Breytt s.d. kl. 15:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.1.2022 | 20:26
Bæn Kvöldsin Bænabók. Föstudagskvöld.
Góði Guð
Þakka þér fyrir varðveislu þína í dag. Þakka þér fyrir að mega tala við þig hvern einasta kvöld. Þakka þér fyrir að þú skulir alltaf hafa tíma. Ég bið. Jesú, fyrir öllum þeim sem á þig trúa. Viltu auka þeim trú. Ég bið líka fyrir þeim sem eru ofsóttir fyrir að trúa á þig. Hjálpaðu þeim að gefast ekki upp. Elsku Jesú, ég bið þig líka að vera með öllum kristniboðunum Út um allan heim, gefa þeim visku og styrk til að takast á við allt sem mætir þeim. Leiddu þá alla eftir þínum vilja. Hjálpaðu öllum börnunm út um allan heim sem eiga ekkert heimili. Ég bið þig líka að hugga og hjálpa öllum börnum á Íslandi sem eiga bágt. Hjálpaðu þeim sem eiga forelda sem drekka mikið eða neyta fíkniefna. Sendu þína lausn inn á þau heimili. Svo bið égþig, Jesú, um frið yfir mitt hús í nótt og rektu allt illt í burtu.
Í Jesú nafni, amen.
Trúmál | Breytt 8.1.2022 kl. 15:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.1.2022 | 05:03
Bæn dagsis Bænabók Föstudagsmorgunn.
Góði Guð
Ég þakka þér fyrir nýjan dag. Þakka þér fyrir hvíld næturinnar. Þakka þér fyrir dagana sem að baki eru og þakka þér fyrir þá sem framundan eru.Viltu hjálpa mér að vera trú/r í öllu sem ég tek mér fyrir hendur í dag. Viltu gefa mér löngun til að vera heiðarleg/ur og segja satt. Hjálpaður mér að stæra mig ekki í dag og gerðu að ég geri ekki lítið úr öðrum. Ég á ekkert sem ég hef ekki þegið úr þinni hendi og ég bið þig að hjálpa mér að muna það. Jesús, vilt þú sjálfur ganga mér við hlið í dag og ég bið þess að aðrir megi finna að þú ert vinur minn. Ég þakka þér fyrir að þú bregst mér ekki og bið þig að hjálpa mér að bregðast þér ekki. Heilagur andi, þú sem hjálpar mér og biður fyrir mér,gerður að ég megi kynnast þér betur og þekkja þig. Verði þinn vilji í lífi mínu, Drottinn, í dag og alla daga.
Í Jesú nafni, amen.
Trúmál | Breytt 8.1.2022 kl. 15:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.1.2022 | 20:38
Bæn kvöldsin Bænabók Fimmtudagskvöld.
Góði Guð
Ég þakka þér fyrir þennan dag. Þakka þér fyrir að ég fékk að vakna í morgun og lifa fram á kvöld. Viltu hugga alla þá sem hafa misst vini sína eða ættingja. Viltu hugga alla þá sem kvíða nóttunni og leyfa þeim að finna þig og þann frið sem þú gefur. Ef það er eitthvað, Drottinn, sem ég hef gert og þér líkar ekki þá bið ég að fyrirgefa mér. Ef ég hef komið illa framvið einhvern án þess að taka eftir því, þá bið ég þig að fyrirgefa mér, og ég bið þig líka að hjálpa þeim að fyrirgefa mér sem ég hef sært. Hér er ég, Drottinn. Gerðu mig eins og þú vilt hafa mig. Taktu gallana burt úr fari mínu og mótaðu mig eins og þú vilt. Ég þakka þér fyrir að áætlun þín er mér fyrir bestu. Þú elska mig eins og ég er og þú hefur máttinn til að laga það sem betur má fara. Góða nótt, Jesús.
Í Jesú nafni, amen.
Trúmál | Breytt s.d. kl. 20:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.1.2022 | 04:56
Bæn dagsis Bænabók Fimmtudagsmorgunn.
Góði Guð
enn á ný hefur þú varðveitt mig og gætt mín vel. Hjálpaðu mér í dag að fara vel með gjafir þínar. Jesús, viltu varðveita hjarta mitt hreint. Gefðu mér visku til að hleypa engu óhreinu inn í huga minn eða hjarta og ég bið þig, Jesús, að bía í hjarta mínu. Leyfðu mér að finna hvenær þér mislíkar það sem ég geri eða hugsa svo ég geri hagað mér vel á allan hátt. Ég legg þennan dag í þínar hendur og allt sem ég þarf að gera í dag. Viltu hjálpa mér að lifa þannig að ég þurfi ekki að sjá eftir neinu í kvöld. Hjálpaðu mér að vera sannur vinur vina minna og bregðast þeim ekki. Hjálpaður mér líka að tala ekki illa um neinn og vera góð/ur við þá sem eru minni máttar. Taktu burt allan kvíða, óróa og efa og hjálpaðu mér að treysta þér Jesús, fylltu mig af anda þínum og varðveittu mig í trúnni á þig.
Í Jesú nafni, amen.
Trúmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.1.2022 | 20:04
Bæn kvöldsin. Bænabók Miðvikudagskvöld.
Góði Guð
Þakka þér fyrir þennan dag sem nú er kominn að kvöldi. Þakka þér fyrir að þú varst með mér í dag, fylgdir mér hvert sem ég fór og verndaðir mig frá öllu illu. Viltu gefa mér þinn frið. Hjálpaðu mér að leggja allt í þínar hendur sem íþyngir mér. Jesús, ég þakka þér fyrir að þú lifir og viltu leyfa mér að finna fyrir nærveru þinni á þessari stundu. Gefðu að ég megi finna fyrir nærveru þinni hvern einasta dag. Ég bið þig að vaka yfir öllum ættingjum mínum og vinum í nótt og vera með öllum þeim sem eiga bágt. Viltu gefa þinn frið yfir landið mitt í nótt og gefa vináttu og kærleika inn á öll heimilin. Þér er enginn hlutur hulinn, Drottinn, og þú getur allt. Þess vegna bið ég þig að hjálpa öllum þeim sem þurfa á þinni hjálp að halda, en kunna ekki að leita til þín og þekkja þig ekki. Opnaðu hjarta þeirra fyrir orði þínu, Biblíunni, og sendu einhvern til þeirra sem færir þeim þinn frið.
Í Jesú nafni, amen.
Trúmál | Breytt s.d. kl. 20:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.1.2022 | 04:51
Bæn dagsis. Bænabók miðvikudagsmorgunn.
Góði Guð
Þú ert Guð sem gefur lífið og þú einn veist hvað á eftir að mæta mér í dag. Viltu gefa mér gleði, umburðarlyndi og hógværi, hvað sem hendir mig. Viltu gefa mér gleðina þína og hjálpa mér að sjá alltaf jákvæða hluti í öllum kringumstæðum. Þakka þér fyrir þá trú sem þú hefur gefið mér og ég bið þig að auka mér trú. Hjálpaðu mér að líkjast þér, Jesús, og fylltu mig af krafti þínum. Ég bið þig, Drottinn, að vernda mig í dag frá öllum slysum og hættum og frá öllum sjúkdómum og veikindum. Varðveittu mig í umferðinni og gefðu mér skynsemi. Viltu líka gefa að ég heyri þegar þú talar og hjálpaðu mér að hlýða þér. Ég vil ganga með þér hvern einasta dag og viltu gefa að ég láti gott af mér leiða. Leiddu mig í veg fyrir það fólk sem þú vilt að ég hitti í dag og láttu ljósið þitt lýsa í mér. Jesús,vertu velkominn inn í hjarta mitt í dag og alla daga.
Í Jesú nafni, amen.
Trúmál | Breytt s.d. kl. 05:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.1.2022 | 19:58
Bæn kvöldsin. Bænabók Þriðjudagskvöld.
Góði guð
Þakka þér fyrir að mega koma fram fyrir þig hvar og hvenær sem er. Þakka þér fyrir að þú þekkir alla hluti og í návist þinni get ég verið nákvæmlega eins og ég er. Þú þekkir mig betur en ég sjálf/ur og þú veist hvað ég hugsa. Fyrirgefðu mér, Drottinn, að ég hef oft syndgað gegn þér og gert það sem rangt er í þínum augum. En ég vil vera góð manneskja og ég vil vaxa og þroskast í lífinu. Hjálpaðu mér að láta ekki óhöpp lífsins, særandi orð eða háðsglósur annarra skapa hatur í hjarta mínu. Ég bið fyrir öllum þeim sem einhvern tíma hafa sært mig.Hjálpaðu mér að fyrirgefa þeim og ég bið þig, Jesús, að hjálpa þeim að fyrirgefa mér. Hjálpaðu mér að láta ekki vonsku annarra hafa þau áhrif á mig að ég verði vond/ur og bitur. Gefðu heldur, Drottinn, að jákvætt viðhorf mitt og góðmennska breyti framkomu annarra til betri vegar. Svo bið ég þig að gefa mér góða nótt í nótt og vernda heimilið mitt.
Í Jesú nafni,amen.
Trúmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.1.2022 | 06:44
Bæn dagsis.Bænabók. Þriðjudagsmorgunn.
Góði Guð
Þakka þér fyrir að þú sendir Jesú í heiminn til að verða frelsarinn minn. þakka þér, Jesú, fyrir að vilja koma og ganga þann veg sem Guð ætlaði þér.Þakka þér fyrir að gefast ekki upp og ég bið þig að hjálpa mér í dag að í dag að hafa sama hugarfar og þú. Viltu hjálpa mér að gefast aldrei upp og viltu gefa að ég finni þann tilgang sem þú, Drottinn, hefur með líf mínu. Jesús, viltu hjálpa mér við allt sem ég tek mér fyrir hendur í dag. Láttu það heppnast og viltu hjálpa mér að vera þér til gleði. Hjálpaðu mér líka að upphefja ekki sjálfa/n mig því að allir mínir hæfileikar og kostir eru frá þér komnir. Þú einn hefur líf mitt í þinni hendi og þú veist hversu margir ævidagar mínir verða. Viltu gefa, Drottinn minn, að ég verði tilbúin/n að mæta þér og ég bið þess að nafnið mitt verði skráð í lífsins bók og aldrei afmáð þaðan. Þinn er mátturinn og þin er dýrðin.
Í Jesú nafni, amen.
Trúmál | Breytt s.d. kl. 06:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.1.2022 | 20:21
Bæn kvöldsins.Bænabók. mán/kvöld.
Góði Guð
Þakka þér fyrir þennan dag. sem nú er kominn að kvöldi. Þakka þér fyrir alla þá sem ég hitti í dag og viltu varðveita okkur öll frá öllu illu. Ég bið þig, Jesús, að fyrirgefa mér það sem ég gerði rangt í dag og hjálpaðu mér að gera það sem rétt er. Viltu hjálpa mér að hleypa aldrei hatri inn í hjarta mitt heldur lifa í kærleika og fyrirgefningu þinni. Þakka þér fyrir lífið sem þú gafst mér og viltu hjálpa mér að fara vel með allar þær gjafir sem þú hefur gefið mér. Viltu vaka yfir heimili mínu í nótt og gæta mín á meðan ég sef. Láttu líkama þinn og blóð, Jesús, sem við minnumst í altarisgöngunni vernda okkur öll og alla okkar lífsleið. Þinn er mátturinn og dýrðin.
Í Jesú nafni, amen.
Trúmál | Breytt s.d. kl. 20:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.1.2022 | 07:30
Bæn dagsi
Svo mælti Drottinn: Nemið staðar við vegina og lítist um og spyrjið um gömlu göturnar, hver sé hamingjuleiði, og farið hana, svo að þér finnið sálum yðar hvíld. Jer.6:16.
Óttist aðeins Drottin og þjónið honum trúlega af öllu hjarta yðar, því sjáið, hversu mikið hann hefir fyrir yður gjört. 1.Sam.12:24
Styrkist nú í Drottni og í krafti máttar hans. Efes.6:10
Trúmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.1.2022 | 06:44
Bæn dagsis Bænabók. mán/morgunn.
Góði Guð
Þakka þér fyrir nóttina sem þú gafst mér.Þakka þér fyrir að leyfa mér að vakna og lifa. Ég þakka þér fyrir, Drottinn, að þú gefur mér styrk til að takast á við vikuna sem er framundan og allt sem henni fylgir. Viltu hjálpa mér að líkjast þér í dag. Hjálpaðu mér að vera sú manneskja sem þú skapaðir mig til að verða. Verði þinn vilji í lífi mínu. Heilagur andi viltu fylla mig af þér og hjálpa mér að líkjast Jesú á allan hátt. Hjálpaðu mér, Drottinn, að vera góð/ur við alla sem ég hitti í dag og viltu láta ljós þitt lýsa í mér. Jesús, ég bið þig að koma inn í hjarta mitt og fylla það af kærleika til allra manna. Ég bið þess líka að ríki þitt komi á jörðinni. Viltu, Drottinn, blessa landið mitt, heimilið mitt og alla sem mér þykir vænt um.Frelsaðu okkur frá öllu illu og hjálpaðu okkur að vera tilbúin að mæta þér.
Í Jesú nafni amen.
Trúmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.1.2022 | 12:07
Bæn dagsis úr bænabók sun/morgunn.
Góði Guð
Vertu velkominn inn í hjarta mitt í dag. Viltu hjálpa mér að halda því hreinu og hjálpaðu mér að gæta tungu minnar. Ég bið þess að þú stýrir skrefum mínum í dag, að þú leiðir mig þangað sem þú vilt. Hjálpaðu mér að láta gott af mér leiða og bera ljósið þitt og kærleika til allra þeirra sem ég hitti í dag. Ég bið þig Drottinn, að hjálpa mér að láta aldrei skapið hlaupa með mig í gönur. Vilt þú sníða af þá galla sem þú sérð í fari mínu til þess að allir þeir kostir sem þú hefur gefið mér fái notið sín betur, þér til dýrðar og öðrum til blessunar.Hjálpaðu mér að muna að lífið er gjöf frá þér og ég þarfnast hjálpar þinnar til að fara vel með það. Ég fel hús mitt allt, ættingja mína, vini og Íslendinga alla í þínar hendur í dag. Hjálpaðu okkur öllum að fylgja þér og gefðu okkur þinn frið.
Í Jesú nafni, amen.
Trúmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.1.2022 | 14:03
bænabók. Laugardagsmorgunn..
Góði Guð
Þakka þér fyrir þennnan dag. Þakka þér fyrir allt sem þú gefu mér. Hjálpaðu mér að feta í fótspoor þíin í dag Hjálpaðu mér að leita þín af öllu hjarta. Verði þinn vilji í lífi mínu í dag. Viltu hjálpa mér að skilja hvað þú , Jesús, gerðir fyrir mig á Golgata. Þakka þér fyrir að þú dóst á krossinum til þess að ég kæmist til þín þegar þú kallar mig burt úr þessum heimi. Leyfðu mér að finna hinnsanna tilgang lífsins og hjálpaðu mér að trúa á þig. Þú ert styrkurinn minnog ég vil fylgja þér. Drottinn, ég bið þig að hjálpa mér að lifa í friði, sátt og samlyndi við alla menn og gefðu mér styrk til að þegja yfir þeim leyndarnálum sem mér er trúað fyrir.
Í Jesú nafni amen.
Trúmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.1.2022 | 11:05
Bæn dagsis. Gleðilegt nýtt ár
Mannssonurinn er kominn að leita að hinu týnda og frelsa það. Lúk.19:10.
þú skalt vegsama drottin Guð þinn fyrir landið góða, sem hann gaf þér. 5.Mós.8:10.
Jesús sagði: ,,Þannig verður fögnuður með englum Guðs yfir einum syndara, sem gjörir iðrum." Lúk.15:10.
Jesús séði: ,,Hús mitt á að vera bænahús, en þér gjörið það að ræningjabæli." Matt.21:13.
Þeir, sem leita Drottins, fara einskis góðs á mis Sálm.34:11.
Trúmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
223 dagar til jóla
Tenglar
Mínir tenglar
- Lindin útvarp
- Bylgjan útvarp
- útvarp saga Útvarp
- Létt Bylgjan Útvarp
heimasíðu
- S Á Á vogur
- AA samtökinn AA á Íslandi
- Hjálpræðisherinn Jesús
- Gospel Ísland
- Glaetan bókakaffi. er í Reykjavík
- manchester united manchester united vefurinn á Íslandi
- Biblían
- Boðunarkirkjan kópavogi
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (15.5.): 15
- Sl. sólarhring: 20
- Sl. viku: 97
- Frá upphafi: 216288
Annað
- Innlit í dag: 13
- Innlit sl. viku: 73
- Gestir í dag: 13
- IP-tölur í dag: 13
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Nýjustu færslur
- 15.5.2025 Bæn dagsins...
- 14.5.2025 Bæn dagsins...
- 13.5.2025 Bæn dagsins...
- 12.5.2025 Bæn dagsins...
- 11.5.2025 Bæn dagsins...
- 10.5.2025 Bæn dagsins...
- 9.5.2025 Bæn dagsins...
- 8.5.2025 Bæn dagsins...
- 7.5.2025 Bæn dagsins...
- 6.5.2025 Bæn dagsins...
Bloggvinir
-
Anna Heiða Harðardóttir
-
Auðun Gíslason
-
Rósa Aðalsteinsdóttir
-
Kvíðin kona
-
Páll Vilhjálmsson
-
Aðalbjörn Leifsson
-
ADHD
-
Helena Leifsdóttir
-
Agný
-
Ágúst Ólafur Ágústsson
-
Guðrún Sæmundsdóttir
-
Alma Guðmundsdóttir og Freyja Haraldsdóttir
-
Aida.
-
Árni þór
-
Ásdís Rán
-
Bryndís Böðvarsdóttir
-
Baldvin Jónsson
-
Bergþóra Guðmunds
-
Bergljót Hreinsdóttir
-
Benna
-
Bergþóra Árnadóttir - RIP 15.2.48 - 8.3.07
-
Birna G
-
Guðbjörg Edda Björgvinsdóttir
-
Guðrún Olga Clausen
-
Bjarni Harðarson
-
Blúshátíð í Reykjavík
-
brahim
-
Helga Kristjánsdóttir
-
Hilmar Sæberg Ásgeirsson
-
egvania
-
Ester
-
Elma Berglind Stefánsdóttir
-
Jóhann Helgason
-
Dagrún Þórný Marínardóttir
-
Eygló Hjaltalín
-
Grétar Örvarsson
-
Svanur Heiðar Hauksson
-
Samtök um rannsóknir á ESB ...
-
Brosveitan - Pétur Reynisson
-
Halla Vilbergsdóttir
-
gudni.is
-
Guðríður Arnardóttir
-
Guðrún Norberg
-
Gunnlaugur Helgason
-
Ágúst Böðvarsson
-
halkatla
-
Sverrir Halldórsson
-
Heiða
-
Heiður Helgadóttir
-
Helga Dóra
-
Þórarinn Þ Gíslason
-
Helga Nanna Guðmundsdóttir
-
Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir
-
Taflfélagið Hellir
-
Hugarafl - Valdefling
-
Óskar Arnórsson
-
Nancy Drew
-
Inga Lára Helgadóttir
-
Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir
-
Svava frá Strandbergi
-
Vilborg Traustadóttir
-
Íris María
-
Jakob Falur Kristinsson
-
Jens Guð
-
Jóhann Hauksson
-
Jóna Á. Gísladóttir
-
Kafteinninn
-
Jón Ingi Cæsarsson
-
Jón Magnússon
-
Pétur Björgvin
-
Jón Valur Jensson
-
Karl V. Matthíasson
-
Elísa Ósk Jónsdóttir
-
Kristín Ketilsdóttir
-
Mín veröld
-
Þórdís Ragnheiður Malmquist
-
Kristin stjórnmálasamtök
-
Ómar Ragnarsson
-
Kristján L. Möller
-
Lára Stefánsdóttir
-
Lára Hanna Einarsdóttir
-
Guðný Lára
-
Mofi
-
Guðmundur St Ragnarsson
-
Myndlistarfélagið
-
Nanna Katrín Kristjánsdóttir
-
oktober
-
Ólafur Jóhannsson
-
Öll lífsins gæði?
-
Gunnhildur Hauksdóttir
-
Pálmi Gunnarsson
-
Rafn Haraldur Sigurðsson
-
Ragnar Birkir Bjarkarson
-
Rakel Lind
-
Rannsóknarskýrslan
-
Ragnheiður Katla Laufdal
-
Ruth
-
Sædís Ósk Harðardóttir
-
Sigvarður Hans Ísleifsson
-
Sigríður Jónsdóttir
-
Skák.is
-
Óskar Sigurðsson
-
Heiða B. Heiðars
-
Brynja skordal
-
Snorri Óskarsson
-
HÉR & NÚ
-
Sigþrúður Þorfinnsdóttir
-
Sverrir Stormsker
-
Svavar Alfreð Jónsson
-
Sveinn Arnarsson
-
Björgvin Þangbrandur "Birkirmár" Gíslasson
-
Tómas Ibsen Halldórsson
-
Valdís Anna Jónsdóttir
-
Unnur Arna Sigurðardóttir
-
Guðfríður Lilja
-
Ásar, Víkingafélag Akureyrar
-
Guðsteinn Haukur Barkarson
Eldri færslur
2025
2024
2023
2022
2021
2019
2018
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
2007
Um bloggið
gulli dori
Af mbl.is
Innlent
- Óumræðilega stolt af þessu verkefni
- 162 ný leikskólapláss í borginni
- Aukin varnarframlög og ný öryggisstefna í mótun
- Ég á eitt úrræði eftir
- Töskurnar verði komnar í kvöld
- Logi misskildi spurningu Ingibjargar
- Borgin stendur við viðburðargjald
- Nýtt hitamet í maímánuði
- Stöðnun í hagkerfinu
- Inga ósátt við Sigríði
Erlent
- Stefnir í að kröfu Trump verði mætt
- Miklar áhyggjur af ofbeldi í Líbíu
- Friðarviðræður gætu hafist í kvöld
- Ákærður fyrir að stela frá utanríkisráðherra
- Prestur handtekinn vegna gruns um vörslu á barnaklámi
- Sarkozy laus við ökklabandið
- Saka TikTok um brot á auglýsingareglum
- Ræddi flugslysið við Pútín í Moskvu
- Rússar ráðast á Selenskí
- Selenskí til Tyrklands: Næstu skref óákveðin
Fólk
- Þekktur miðill lét fjarlægja æxli í heila
- Mynd af VÆB-bræðrum á BBC
- ABBA-dýrkendur þurfa að taka 27. september frá
- DeNiro barðist við tárin
- Mætti þjófunum hlaðin demöntum
- Vinsælir júrófarar draga jaðarmenningu fram í ljósið
- Okkur finnst víða reimt
- Tom Cruise næstum dottinn af flugvélavængnum
- Bræðurnir gætu átt rétt á reynslulausn
- Hoppað í fangið á VÆB