Bloggfærslur mánaðarins, febrúar 2024

Bæn dagsins

Jesús settist gegnt fjárhirslunni og horfði á fólkið leggja peninga í hana. Margir auðmenn lögðu þar mikið. Þá kom ekkja ein fátæk og lét þar tvo smápeninga, eins eyris virði. Og Jesús kallaði til sín lærisveina sína og sagði við þá: ,,Sannlega segi ég ykkur þessi fátæka ekkja gaf meira en allir hinir er lögðu í fjárhirsluna.Allir gáfu þeir af allsnægtum sínum en hún gaf af skorti sínum allt sem hún átti, alla björg sína."

Amen.

Mark:12:41-44


Bæn dagsins

Þetta talaði Jesús, hóf augu sín til himins og sagði: ,,Faðir stundin er komin. Ger son þinn dýrlegan til þess að sonurinn geri þig dýrlegan. Þú gafst honum vald yfir öllum mönnum að hann gefi eilíft líf öllum þeim sem þú hefur gefið honum.Amen.

Jóhannesarguðspjall:17:1-2


Bæn dagsins

Þá heyrði ég rödd Drottins sem spurði: ,,Hvern skal ég senda? Hver vill reka erindi vort?" Ég svaraði: ,,Hér er ég. Send þú mig." Hann sagði: ,,Far þú og seg þessu fólki: Hlustið og hlustið en skiljið ekki. Horfið og horfið en skiljið ekki. Sljóvga hjarta þessa fólks, deyf eyru þess og loka augum þess svo að það sjái ekki með augunum, heyri ekki með eyrunum og skilji ekki með hjartanu, svo að það snúi ekki við og læknist." Þá spurði ég: ,,Hversu lengi,Drottinn?" Hann svaraði: ,,Það til borgirnar verði eyddar og enginn býr í þeim og þar til húsin verða mannlaus og akurlendið eyðimörk, þar til Drottinn hrekur fólkið langt í burt og eyðingin verður mikil í landinu. Og þótt enn sé tíundi hluti eftir skal honum eytt eins og rótarstúfur er eftir þegar eik eða terebintutré hefur verið fellt. Þannig verður stúfurinn heilagt sæði." Amen.

Jesaja:6:8-13


Bæn dagsins

Þá flaug einn serafanna til mín. Hann hélt á glóandi koli sem hann hafði tekið af altarinu með töng.  Hann snerti munn minn með kolinu og sagði: ,,þetta hefur snortið varir þínar, sekt þín er frá þér tekin og friðþægt er fyrir synd þína." Amen.

Jesaja:6:6-7


Bæn dfagsins

Við raust þeirra nötruðu undirstöður þröskuldanna og húsið fylltist af reyk. Þá sagði ég: ,,Vei mér, það er úti um mig því að ég er maður með óhreinar varir og bý meðal fólks með óheinar varir en samt hafa augu mín séð konunginn, Drottin allsherjar." Amen.

Jesaja:6:4-5


Bæn dagsins

Þeir kölluðu hver til annars og sögðu: ,,Heilagur, heilagur, heilagur er Drottinn allsherjar, öll jörðin er full af hans dýrð." Amen

Jesaja:6:3


Bæn dagsins

Ég vona á Drottinn, sál mín vonar, hans orðs bíð ég. Meir en vökumenn morgun, vökumenn morgun, þráir sál mín Drottin. amen.

Sálm:130:5-6


Bæn dagsins

Ef þú, Drottinn, gæfir gætur að misgjörðum, Drottinn, hver fengi þá staðist? En hjá þér er fyrirgefning svo að menn óttist þig. Amen.

Sálm:130:3-4 

 


Bæn dagsins

Úr djúpinu ákalla ég þig, Drottinn, Drottinn, heyr þú raust mína, lát eyru þín hlusta á grátbeiðni mína. Amen.

Sálm:130:1-2


Bæn dagsins

Allir sem hata Síon skulu hörfa sneyptir. Þeir skulu verða sem gras á þekju sem skrælnar áður en það sprettur. Sláttumaðurinn skal ekki fylla hönd sína né heldur sá fang sitt sem bindur. Og enginn sem fram hjá fer mun segja: ,,Blessum Drottins sé með yður."

 

  Vér blessum yður í nafni Drottins. Amen.

Sálm:129:5-8


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Gunnlaugur Halldór Halldórsson
Gunnlaugur Halldór Halldórsson

Ég elska Jesús. gullidori@gmail.com

230 dagar til jóla

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (8.5.): 14
  • Sl. sólarhring: 23
  • Sl. viku: 162
  • Frá upphafi: 208162

Annað

  • Innlit í dag: 11
  • Innlit sl. viku: 117
  • Gestir í dag: 9
  • IP-tölur í dag: 9

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband