Bloggfærslur mánaðarins, október 2023

Bæn dagsins

Skömmu síðar bar svo við að Jesús hélt  til borgar sem heitir Nain og lærisveinar hans fóru með honum og mikill mannfjöldi. Þegar hann nálgaðist borgarhliðið þá var verið að bera út látinn mann, einkason móður sinnar sem var ekkja, og mikill fjöldi úr borginni var með henni. Og er Drottinn sá hana kenndi hann í brjósti um hana og sagði við hana:,,Grát þú eigi!. Og hann gekk að og snart líkbörurnar en þeir sem báru námu staðar. Þá sagði hann: ,,Ungi maður,ég segi þér, rís þú upp!" Hinn látni settist þá upp og tók að mæla og Jesús gaf hann móður hans. Amen.

Lúk 7:11-15.


Bæn dagsins

Þegar Jesús heyrði þetta furðaði hann sig á honum, sneri sér að mannfjöldanum sem fylgdi honum og mælti: ,,Ég segi ykkur, ekki einu sinni í Ísrael hef ég fundið þvílíka trú." Sendimenn sneru þá aftur heim og fundu þjóninn heilan heilsu. Amen.

Lúk:7:9-10


Bæn dagsins

Jesús fór með þeim. Þegar hann átti skammt til hússins sendi hundraðshöfðinginn vini sína til hans og lét segja við hann: ,,Ómaka þig ekki, Drottinn, því að ég er ekki verður þess að þú gangir inn undir þak mitt. Þess vegna hef ég ekki heldur talið sjálfan mig verðan þess að koma til þín. En mæl þ´æu eitt orð og mun sveinn minn heill verða. Því að sjálfur er ég maður sem verður að lúta valdi og ræður yfir hermönnum og ég segi við einn: Far þú, og hann fer og við annan: Kom þú, og hann kemur og við þjón minn: Ger þetta, og hann gerir það."Amen.

Lúk:7:6-8


Bæn dagsins

Þeir komu til Jesú, báðu hann ákaft og sögðu: ,,Verður er hann þess að þú veitir honum þetta því að hann elskar þjóð okkar og hann hefur reist samkunduna handa okkur." Amen.

Lúk:7:4-5


Bæn dagsins

Þá er Jesús hafði lokið við að tala við fólkið fór hann til Kapernaúm.Hundraðshöfðingi nokkur hafði þjón sem hann mat mikils. Þjónninn var sjúkur og dauðvona. Þegar hundraðshöfðinginn heyrði um Jesú sendi hann til hans öldunga Gyðinga og bað hann koma og bjarga lífi þjóns síns. Amen.

Lúk:7:1-3


Bæn dagsins

Hann er líkur manni er byggði hús, gróf djúpt fyrir og grundvallaði það á bjargi. Nú kom flóð og flaumurinn skall á því húsi en fékk hvergi hrært það vegna þess að var vel byggt. Hinn, er heyrir það sem ég segi og breytir ekki eftir því, er líkur manni sem sem byggði hús á jörðinni án  undirstöðu. Flaumurinn skall á því og það hús fékk þegar og fall þess varð mikið." Amen.

Lúk:6:48-49


Bæn dagsins

En hví kallið þér mig Drottin, Drottin, og gerið ekki það sem ég segi? Ég skal sýna yður hverjum sá er líkur sem kemur til mín, heyrir orð mín og breytir eftir þeim.Amen.

Lúk:6:46-47


Bæn dagsins

Því að ekki er til gott tré er beri slæman ávöxt né heldur slæmt tré er beri góðan ávöxt. En hvert tré þekkist af ávexti sínum enda lesa menn ekki fíkjur af þistlum né vínber af þyrnirunni. Góður maður ber gott fram úr góðum sjóði hjarta síns en vondur maður ber vont fram úr vondum sjóði. Af gnægð hjartans mælir munnur hans. Amen.

Lúk:6:43-45


Bæn dagsins

Þá sagði Jesús þeim og líkingu: ,,Hvort fær blindur leitt blindan? Munu ekki báðir falla í gryfju? Ekki er lærisveinn meistaranum fremri en hver sem er fullnuma verður eins og meistari hans. Hví sérð þú flísina í auga bróður þíns en tekur ekki eftir bjálkanum í auga þínu? Hvernig færð þú sagt við bróður þinn:Bróðir, lát mig draga flísina úr auga þér, en sérð ekki bjálkann í þínu auga?  Hræsnari, drag fyrst bjálkann úr auga þér og þá sérðu glöggt til að draga flísina úr auga bróður þíns. Amen.

Lúk:6:39-42


Bæn dagsins

Dæmið ekki og þér munuð eigi verða dæmd. Sakfellið eigi og þér munuð eigi verða sakfellið. Fyrirgefið öðrum og Guð mun fyrirgefa yður. Gefið og yður mun gefið verða. Góður mælir, troðinn, skekinn, fleytifullur mun lagður í skaut yðar. Því með þeim mæli, sem þér mælið, mun yður aftur mælt verða." Amen.

Lúk:6:37-


Næsta síða »

Höfundur

Gunnlaugur Halldór Halldórsson
Gunnlaugur Halldór Halldórsson

Ég elska Jesús. gullidori@gmail.com

241 dagur til jóla

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.4.): 12
  • Sl. sólarhring: 15
  • Sl. viku: 173
  • Frá upphafi: 207897

Annað

  • Innlit í dag: 8
  • Innlit sl. viku: 111
  • Gestir í dag: 8
  • IP-tölur í dag: 8

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband