Bloggfærslur mánaðarins, ágúst 2023

Bæn dagsins

Ár mín og líkami. og líf mitt í andvörpum, mér förlast kraftur sakir sektar minnar og bein mín tærast. Ég verð öllum óvinum mínum að spotti, háðsefni grönnum mínum og kunningjar hræðast mig og þeir sem mæta mér á götu sneiða hjá mér. Ég er gleymdur sem látinn væri, orðinn eins og brotið ker. Ég heyri hvískur margra, ógn í öllum áttum. Þeir sitja á svikráðum við mig og ætla að svipta mig lífi. En ég treysti þér, Drottinn, og segi: ,,Þú ert Guð minn." Í þinni hendi ertu dagar mínir, frelsa mig úr greipum óvina minna og ofsækjenda. Lát ásjónu þína lýsa yfir þjón þinn, hjálpa mér sakir elsku þinnar.AMEN.

sálm 31:11-17 


Bæn dagsins

Miskunna mér, Drottinn, því að ég er í nauðum staddur, döpruð af harmi eru augu mín, sál mín og líkami.AMEN.

sálm 31:10


Bæn dagsins

Ég gleðst og fagna yfir trúfesti þinni því að þú sást neyð mína og gafst gætur að mér í þrengingum, lést mig ekki ganga í greipar óvinarins heldur beindir fótum mínum á víða velli.AMEN.

sálm 31:8-9


Bæn dagsins

Í þínar hendur fel ég anda minn, þú frelsar mig, Drottinn, þú trúfasti  Guð. Ég hata þá sem dýrka fánýt skurðgoð en treysti Drottni. AMEN.

sálm 31:6-7


Bæn dagsins

Hjá þér, Drottinn, leita ég hælis, lát mig aldrei verða til skammar. Bjarga mér í réttlæti þínu. Hneig eyra þitt að mér, kom skjótt mér til hjálpar. Ver mér verndarbjarg, vígi mér til hjálpar, því að þú ert bjarg mitt og vígi og sakir nafns þíns munt þú leiða mig og stjórna mér. Leystu mig úr netinu sem lagt var fyrir mig því að þú ert vörn mín. AMEN.

sálm 31:2-5


Bæn dagsins

þú breyttir gráti mínum í gleðidans, leystir af mér hærusekkinn og gyrtir mig fögnuði, því vil ég syngja þér lof og eigi þagna. 

Drottinn, Guð minn, ég vil þakka þér að eilífu. AMEN.

sálm 30:12-13


Bæn dagsins

Til þín, Drottinn, hrópaði ég og ákallaði Guð minn um miskunn: ,,Hvaða ávinningur er af dauða mínum, af því að ég gangi til grafar? Getur duftið lofað þig, kunngjört trúfesti þína? Heyr, Drottinn, ver mér náðugur, Drottinn, kom mér til hjálpar." AMEN.

sálm 30:9-11.


Bæn dagsins

Ég uggði ekki að mér og sagði: ,,Aldrei skriðnar mér fótur." Drottinn, af náð þinni gerðir þú fjall mitt að vígi en þegar þú huldir auglit þitt skelfdist ég. AMEN.

Sálm 30:7-8


Bæn dagsins

Andartak stendur reiði hans en alla ævi náð hans. Að kveldi gistir oss grátur en gleðisöngur að morgni. AMEN.

sálm 30:6


Bæn dagsins

Drottinn, Guð minn, ég hrópaði til þín og þú læknaði mig. Drottinn, þú heimtir sál mína úr helju, lést mig halda lífi þegar aðrir gengu til grafar. Syngið Drottni lof, þér hans trúuðu, vegsamið hans heilaga nafn. AMEN.

sálm 30:3-5


Næsta síða »

Höfundur

Gunnlaugur Halldór Halldórsson
Gunnlaugur Halldór Halldórsson

Ég elska Jesús. gullidori@gmail.com

241 dagur til jóla

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.4.): 9
  • Sl. sólarhring: 16
  • Sl. viku: 170
  • Frá upphafi: 207894

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 108
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.