Bloggfærslur mánaðarins, nóvember 2023

Bæn dagsins

Kom hún þá með alabastursbuðk með smyrslum, nam staðar að baki Jesú til fóta hans grátandi, tók að væta fætur hans með tárum sínum, þerraði þá með höfuðhári sínu, kyssti þá og smurði með smyrslunum. Amen.

Lúk:7:38


Bæn dagsins

Farísei nokkur bauð Jesú til máltíðar og hann fór inn í hús faríseans og settist til borðs. En kona ein í bænum, sem var bersyndug, varð þess vís að hann sat að borði í húsi faríseans. Amen.

Lúk:7.36-37


Bæn dagsins

Við  sungum ykkur sorgarljóð og ekki vilduð þið gráta. Nú kom Jóhannes skírari, át hvorki brauð né drakk vín, og þið segið: Hann hefur illan anda. Og Mannsonurinn er kominn, ertu og drekkur og þið segið: Hann er marth´hákur og vínsvelgur, vinur tollheimtumanna og syndara! En öll börn spekinnar sjá og játa hvar hún er að verki." Amen.

Lúk:7:33-35


Bæn dagsins

,,Við hvað á ég þá að líkja mönnum  þessarar kynslóðar? Hverju eru þeir líkir? Líkir eru þeir börnum sem á torgi sitja og kallast á: Við lékum fyrir ykkur á flautu og ekki vilduð þið dansa.Amen.

Lúk:7:31-32


Bæn dagsins

Og allir sem á hlýddu, jafnvel tollheimtumenn, viðurkenndu að hér var Guð að verki og létu skírast af Jóhannesi. En farísear og lögvitringar gerðu að engu áform Guðs um þá og létu Jóhannes ekki skíra sig.Amen.

Lúk:7:29-30


Bæn dagsins

Ég segi ykkur: Enginn er sá af konu fæddur sem er meiri en Jóhannes. En hinn minnsti í Guðs ríki er honum meiri." Amen.

Lúk:7:28


Bæn dagsins

þá er sendimenn Jóhannesar voru farnir burt tók Jesús að tala til mannfjöldans um Jóhannes: ,,Hvað fóruð þið að sjá í óbyggðum? Reyr af vindi skekinn? Hvað fóruð þið að sjá? Prúðbúinn mann? Nei, í konungssölum er þá að finna sem skartklæðin bera og lifa í sællífi. Hvað fóruð þið þá að sjá? Spámann? Já, segi ég ykkur, og það meira en spámann.Hann er sá sem um er ritað:

         Ég sendi sendiboða minn á undan þér, 

          hann á að ryðja þér braut. Amen

    Lúk:7:24-27


Bæn dagsins

Á þeirri stundu læknaði hann marga af sjúkdómum, meinum og illum öndum og gaf mörgum blindum sýn. Og hann svaraði þeim: ,,Farið og kunngjörið Jóhannesi það sem þið hafið séð og heyrt: Blindir fá sýn, haltir ganga, líkþráir hreinsast og daufir heyra, dauðir rísa upp og fátækum er flutt fagnaðarerindi. Og sæll er sá sem hafnar ekki því sem ég geri." Amen

7:21-23.


Bæn dagsins

Lærisveinar Jóhannesar sögðu honum frá öllu þessu. Jóhannes kallaði þá til þín tvo lærisveina sína, send þá til Drottins og lét spyrja: ,,Ert þú sá sem koma skal eða eigum við að vænta annast?"Mennirnir fóru til hans og sögðu: ,,Jóhannes skírari sendi okkur til þín og spyr:Ert þú sá sem koma skal eða eigum við að vænta annars?" Amen.

Lúk:7:18-20


Bæn dagsins

En ótti greip alla og þeir vegsömuðu Guð og sögðu: ,,Spámaður mikill er risinn upp meðal okkar," og  ,,Guð hefur vitjað lýðs síns." Og þessi fregn um Jesú barst út um alla Júdeu og allt nágrennið. Amen.

Lúk:7:16-17


« Fyrri síða

Höfundur

Gunnlaugur Halldór Halldórsson
Gunnlaugur Halldór Halldórsson

Ég elska Jesús. gullidori@gmail.com

219 dagar til jóla

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 44
  • Sl. sólarhring: 46
  • Sl. viku: 172
  • Frá upphafi: 208449

Annað

  • Innlit í dag: 21
  • Innlit sl. viku: 106
  • Gestir í dag: 21
  • IP-tölur í dag: 20

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband