Bloggfærslur mánaðarins, nóvember 2013

Bæn.

bæn

Bæn dagsins:

Ég bið að ég veiti stöðugt áfram því sem mér gefst. Ég bið að ég haldi læknum tærum og rennandi.

Ég bið að mér finnist að ekkert gott verk sé mér ofviða ef ég bið Guð um hjálp. Ég bið að ég verði nytsamur undir leiðsögn hans.

Ég bið, að vilji minn sé sveigjanlegur. Ég bið að hann sé samstilltur vilja Guðs.

Ég bið að ég fyllist sönnu æðruleysi. Ég bið, að fá að lifa í kyrrð og friði.


Bæn.

bæn

Bæn dagsins:

Ég bið að ég verði viss um einhverja bænheyrslu. Ég bið að ég verði ánægður með hana, hvernig sem hún kemur fram.

Ég bið að ég sætti mig við allt, sem á mig er lagt, sem eðlilegan þátt lífsins. Ég bið að mér takist að nýta það öðrum til hjálpar.

Ég bið að ég taki við hverju verkefni sem reynsluprófi. Ég veit að mér mistekst ekki, ef Guð er með mér.

Ég bið að í dag opni ég sál mína fyrir græðandi snertingu Guðs. Ég bið að máttur minn þverri ekki á miðri leið, heldur fái ég með bænagjörð endurnýjað hugrekki mitt.


« Fyrri síða

Höfundur

Gunnlaugur Halldór Halldórsson
Gunnlaugur Halldór Halldórsson

Ég elska Jesús. gullidori@gmail.com

222 dagar til jóla

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.5.): 8
  • Sl. sólarhring: 15
  • Sl. viku: 127
  • Frá upphafi: 208333

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 95
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.