12 og 12.

aagulllogoBæn dagsins: úr 24 stunda bók

Ég bið að ég finni að Guð er ekki of fjarlægur til að ég geti treyst á hjálp hans. Ég bið að ég sé öruggur um að hann sé fús að veita mér þann styrk sem ég þarf.

Íhugun dagsins:

Þótt Guð sé ósýnilegur, er hann alltaf nálægur þeim sem trúa á hann og treysta honum og sækja til hans þann styrk sem þeir þurfa til að mæta erfiðleikum lífsins. Þótt æðri máttur sé hulinn mannlegum sjónum er hann ávallt til reiðu þegar við biðjum hann í auðmýkt. Tilfinningin að Guð sé með okkur ætti ekki að vera duttlungum háð, heldur ættum við að reyna að vera alltaf meðvituð um mátt hans og kærleika sem bakhjarl lífs okkar.

AA hugleiðing dagsins.

AA samtökin eru mannleg að uppbyggingu, en tilgangur þeirra er guðdómlegur. Tilgangurinn er að beina mér í áttina til Guðs og betra lífernis. Göngu minni hefur verið beint á rétta braut. Ég finn það í rótum hjarta míns. Ég er á réttri leið. Framtíðin er örugg í hendi Guðs. Hvað sem hún ber í skauti sér, getur ekkert orðið mér um megn. Ég hef æðri mátt með mér til að hjálpa mér gegnum hvað sem er. Stefni ég til Guðs og betri daga?

þetta er dagurinn í dag úr 24 stunda bók 28.12


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnlaugur Halldór Halldórsson
Gunnlaugur Halldór Halldórsson

Ég elska Jesús. gullidori@gmail.com

243 dagar til jóla

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 35
  • Sl. viku: 159
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 101
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.